BREYTT DAGSETNING, VERÐUR 8. ÁGÚST
Áður auglýst úrslit og verðlaunaafhending í VHF/UHF leikunum 2019 verður fimmtudaginn 8. ágúst en ekki fimmtudag 1. ágúst. Beðist er velvirðingar á þessari breytingu. Stjórn ÍRA.
This author has not written his bio yet.
But we are proud to say that TF3JB contributed 2430 entries already.
Áður auglýst úrslit og verðlaunaafhending í VHF/UHF leikunum 2019 verður fimmtudaginn 8. ágúst en ekki fimmtudag 1. ágúst. Beðist er velvirðingar á þessari breytingu. Stjórn ÍRA.
Úrslit í VHF/UHF leikunum 2019 verða kynnt í Skeljanesi, fimmtudaginn 8. ágúst, kl. 20:30, en ekki 1. ágúst eins og áður var auglýst. Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, umsjónarmaður leikanna, mun fara yfir helstu niðurstöður. Hann mun m.a. skýra frá nýju Íslandsmeti í drægni á 23 cm bandinu sem sett var að þessu sinni. Alls voru tæpir […]
Góð gjöf var móttekin fyrir hönd ÍRA í dag, laugardaginn 27. júlí 2019. Um er að ræða 11 metra háan þrístrendan loftnetsturn sem er samsettur ú 4 einingum. Turninn, sem er úr áli, er afar meðfærilegur. Hann hafði verið í geymslu utandyra í nokkurn tíma (eins og sjá má á myndunum), en auðvelt er að […]
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, VHF stjóri félagsins, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 25. júlí. Hann hafði meðferðis og sýndi nýja fjarskiptabúnaðinn sem verður settur upp til að hafa sambönd frá TF3IRA í gegnum Es’Hail-2/P4A / OSCAR 100 gervitunglið. Hann skýrði hvað væri framundan, þ.e. uppsetning diskloftnets utanhúss og ýmsar samstillingar. Ari nefndi m.a. að það yrði […]
Búnaðurinn fyrir nýja gervitunglið er kominn til landsins og Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, VHF stjóri ÍRA, fékk transverter‘inn tollafgreiddan í dag (23. júlí). Um er að ræða 20W Oscar 100 transverter frá PE1CMO, sem bæði er fyrir „up“ og „down link“ á 70 cm. Það þýðir, að transverter‘inn tengist Kenwood TS-2000 stöð félagsins beint – […]
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 25. júlí. Opin málaskrá, nýjustu tímaritin og góður félagsskapur. Kaffi, te, konfekt og meðlæti. Stjórn ÍRA.
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, umsjónarmaður VHF/UHF leikanna, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 18. júlí og kynnti reglur leikanna 2019 og svaraði spurningum. Keli byrjaði stundvíslega kl. 20:30 og sýndi okkur glærur þar sem hann fór vel yfir helstu atriði og útskýrði m.a. reitakerfið, 6 klst. regluna, QSO upplýsingar, stigagjöf og margfaldara. Þá fór hann yfir sérstaka leikasíðu […]
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, umsjónarmaður VHF-UHF leikanna, mætir í Skeljanes fimmtudaginn 18. júlí og kynnir og fer yfir reglurnar fyrir leikana sem verða um næstu helgi, 20.-21. júlí. Leikurinn hefst 20. júlí kl. 00:01. Keli segist gera ráð fyrir að margir muni byrja af krafti á slaginu miðnætti. Tilkoma nýja Oscar 100 gervitunglsins hefur hvatt amatöra […]
Stjórn ÍRA samþykkti á fundi sínum nýlega, að heimila félagssjóði kaup á eftirfarandi búnaði frá Microsat í Póllandi: Microsat WX3in1 Mini APRS Advanced Digipeater/I-gate (2 stk.) PLXDigi – APRS Digipeater (2 stk.) Guðmundur Sigurðsson, TF3GS, setti fram beiðni til félagsins f.h. APRS hópsins. Hann segir, að búnaðurinn muni þétta kerfið og auka gæði og notkunarmöguleika […]
Opið hús var í félagsaðstöðunni fimmtudaginn 11. júlí. Að venju var mikið rætt yfir kaffinu, m.a. um mismunandi loftnet, hæð yfir jörðu, fæðilínur, útgeislun og útgeislunarhorn, kóaxkapla og tengi (enda er júlímánuður = loftnetamánuður). Einnig skoðuðu menn dót sem nýlega hefur borist félaginu frá þeim Garðari Gíslasyni TF3IC, Carl Jóhanni Lilliendahl TF3KJ og NN, sbr. […]
