SKELJANES FIMMTUDAGINN 16. MAÍ – OPIÐ HÚS
Opið hús verður í félagsaðstöðunni Skeljanesi fimmtudaginn 16. maí kl. 20:00-22:00. Opin málaskrá, kaffi, kex, kökur og góður félagsskapur. Stjórn ÍRA.
This author has not written his bio yet.
But we are proud to say that TF3JB contributed 2001 entries already.
Opið hús verður í félagsaðstöðunni Skeljanesi fimmtudaginn 16. maí kl. 20:00-22:00. Opin málaskrá, kaffi, kex, kökur og góður félagsskapur. Stjórn ÍRA.
Laugardaginn 11. maí voru menn árrisulir og var mætt í Skeljanes í morgunkaffi. Verkefni dagsins var að færa og setja Diamond SX-200N VHF/UHF stangarloftnet TF3IRA á nýja festingu. Veður var eins og best verður á kosið, sól og vart ský á himni en nokkuð napurt eða um 6°C. Loftnetið var fyrst sett upp á bráðabirgðafestingu […]
Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A, VHF-stjóri ÍRA og Erik Finskas TF3EY/OH2LAK, settu upp búnað og gerðu tilraunir í gegnum nýja Es’hail-2/P4A / Oscar 100 gervitunglið í fjarskiptaherbergi ÍRA þann 9. maí. Til að gera langa sögu stutta, náðust 13 sambönd á SSB frá TF3IRA í gegnum nýja tunglið. Fyrsta sambandið var við IT9CJC á Sikiley þann […]
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, gerði grein fyrir og kynnti úrslit í Páskaleikum ÍRA 2019 í Skeljanesi 9. maí. Leikarnir fóru fram 20.-21. apríl s.l. og var þátttaka góð en 17 leyfishafar skiluðu inn gögnum, af 20 skráðum. Keppnisreglum var breytt fyrir viðburðinn og sagði Hrafnkell að vænta mætti smávægilegra breytinga fyrir leikana á næsta ári (2020). […]
Njáll Hilmar Hilmarsson, TF3NH, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 9. maí og fjallaði um gervihnattasamskipti hjá radíóamatörum og iðnaðinum. Þetta var síðasta erindið á vetrardagskrá ÍRA í febúar-maí. Erindi hans var fróðlegt og áhugavert og veitti góða innsýn í þennan spennandi „heim“ fjarskiptanna sem radíóamatörum stendur til boða og iðnaðurinn notar. Hann fór yfir sendingar frá […]
Síðasta erindið á vetrardagskrá ÍRA í febrúar-maí 2019 verður í boði fimmtudaginn 9. maí kl. 20:30. Þá mætir Njáll Hilmar Hilmarsson, TF3NH, í Skeljanes og flytur erindi um „Gervihnattasamskipti“. Talað verður um gervihnattasamskipti sem radíóamatörar nota og sem notuð eru í iðnaði. Farið verður yfir þróun í þessum geirum og m.a. rætt um samskiptaleiðir með […]
Kaffispjall á laugardegi var í boði í félagsaðstöðu ÍRA þann 4. maí, frá kl. 13:30. Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætti á staðinn með nýju Icom IC-9700 stöðina, nýjan FeelElec FY-6800 „signal generator“ og loftnet og mælitæki til móttöku merkja frá nýja Oscar 100 gervitunglinu. Daggeir Pálsson, TF7DHP, mætti einnig á staðinn með nýja Kenwood TS-590SG […]
Georg Magnússon TF2LL mætti í Skeljanes 2. maí og flutti erindið „Loftnetabúskapur TF2LL í Norðtungu í Borgarfirði“. Eins og flestum er kunnugt, er loftnetsaðstaða TF2LL er ein sú besta hér á landi á meðal radíóamatöra, auk þess sem fjarskiptatæki og annar búnaður stöðvarinnar er í fremstu röð. Erindi Georgs var vel flutt, áhugavert, fróðlegt og […]
Kaffispjall verður í boði í félagsaðstöðunni laugardaginn 4. maí. Húsið opnar kl. 13:30. Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætir á staðinn og tekur með sér nýjan kínverskan „generator“ sem nær upp í 60 MHz sem hann segir að sé „ótrúlega góður“ miðað við ótrúlega lágt verð. Sérstakur laugardagsgestur er Daggeir Pálsson, TF7DHP, frá Akureyri. Margt spennandi […]
Georg Magnússon TF2LL kemur í Skeljanes fimmtudaginn 2. maí og flytur erindi undir heitinu: „Loftnetabúskapur TF2LL í Norðtungu í Borgarfirði“. Líkt og flestum er kunnugt, er loftnetsaðstaða TF2LL ein sú besta á meðal radíóamatöra hér á landi, auk þess sem fjarskiptabúnaður stöðvarinnar er í fremstu röð. Eftir veðurtjón árin 2015 og 2016 hefur hann endurnýjað […]