Á morgun, laugardaginn 19. október verður svokallaður „opinn laugardagur“ í boði í félagsaðstöðunni í Skeljanesi, sem er nýjung á yfirstandandi vetrardagskrá.
Félagsmenn hafa – undir styrkri stjórn Ara Þórólfs Jóhannessonar, TF1A, VHF stjóra ÍRA – unnið að uppsetningu og frágangi gervihnattabúnaðar félagsins til fjarskipta um Es’Hail-2/P4A / Oscar 100 gervitunglið. Stöðin er nú frágengin og verður til sýnis og prófunar á laugardag frá kl. 10:30-16:00 á tali, morsi og stafrænum tegundum útgeislunar.
Ari mun fræða okkur um þessa tegund fjarskipta og ennfremur
sýna færanlega stöð til sambanda um tunglið, sem hann hefur m.a. prófað frá
Akureyri og um síðustu vitahelgi, frá Knarrarósvita.
Félagsmenn eru hvattir til að koma við í Skeljanesi og fara í loftið. Kaffi verður á könnunni.
Axel Sölvason, TF3AX, hefur haft sitt síðasta QSO; merki hans er hljóðnað.
Bergur Axelsson, TF3BX, sonur hans, lét félaginu í té þær upplýsingar að Axel hafi látist á Hrafnistu í Reykjavík 15. október. Hann var á 88. aldursári, leyfishafi nr. 81.
Jarðarförin fer fram í Lindakirkju í Kópavogi 30. október kl. 11 árdegis.
Um leið og við minnumst Axels með þökkum og virðingu færum
við fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.
Einar Kjartansson, TF3EK, umsjónarmaður leikanna kynnti helstu niðurstöður og úrslit í Skeljanesi 17. október. Þar kom m.a. fram, að alls tóku 14 stöðvar þátt í ár, samanborið við 15 á síðasta ári (2018).
Jónas Bjarnason, TF3JB, formaður ÍRA, þakkaði TF3EK undirbúning og umsjón leikanna. Síðan voru afhent veðlaun. Í tilefni 40. TF útileikanna voru 1. verðlaun glæsilegur verðlaunabikar (til eignar) og viðurkenningarskjöl fyrir fimm efstu sætin:
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, VHF stjóri félagsins og Georg Kulp, TF3GZ, settu upp ADSB loftnet fyrir flug radar og 1 GHz viðtæki í Skeljanesi 15. október. Búnaðurinn nemur merki frá flugvélum. Skoða má á heimasíðu viðtækisins þau svæði sem hann þekur. Vefslóðin er adsb.utvarp.com
Loftnetið var sett upp vestanmegin við húsið, en viðtækið er staðsett í fjarskiptaherbergi TF3IRA, tengt við 24“ borðskjá. Búnaðurinn kemur vel út að sögn TF1A og var hann ánægður með útkomuna eftir fyrstu prófanir.
Nýr viðburður á vetrardagskrá ÍRA verður haldinn í félagsaðstöðunni fimmtudaginn 17. október kl. 20:30. Þá mætir Einar Kjartansson, TF3EK, umsjónarmaður TF útileikanna í Skeljanes og kynnir úrslit í leikunum 2019.
Viðurkenningar eru að venju vandaðar, en í tilefni 40. TF útileikanna er glæsilegur verðlaunabikar í 1. verðlaun. Viðurkenningarskjöl verða jafnframt afhent fyrir fyrstu fimm sætin.
Félagar eru hvattir til að mæta tímanlega. Veglegar kaffiveitingar.
Stjórn ÍRA.
–
Einar Kjartansson, TF3EK, umsjónarmaður TF útileikanna.
Þau TF1A, TF3SUT, TF3DT, TF3GZ, TF3ML og Jessica (YL frá Kanada) gerðu ferð á Skálafell í dag, 12. október. Verkefnið var að gera við TF3RPK endurvarpann sem hafði verið úti í nokkur misseri.
Verkefnið gekk að óskum og er TF3RPK nú QRV á ný á 145.575 MHz. Inngangstíðnin er -600 Hz og tónn er 88,5 Hz. Huber+Suhner ½“ heliax fæðilína er notuð upp í Diamond SE-300 loftnetið.
Í dag (13. október) var komið á tengingum með 430 MHz hlekk við endurvarpana í Bláfjöllum og á Mýrum. TF3DT sá hópnum fyrir glæsilegum veitingum, sbr. meðfylgjandi ljósmynd af korditori tertu (merkt TF3RPK) frá Jóa Fel bakara.
Þakkir til hópsins fyrir verkefni vel úr hendi leyst.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-10-12 19:51:442019-10-14 00:24:45TF3RPK QRV Á NÝ FRÁ SKÁLAFELLI
Skráning á námskeið ÍRA til amatörprófs er opin til 15.
október. Í ljósi mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að taka allt að 25
þátttakendur.
Námskeiðið hefst föstudaginn 18. október og lýkur í desember
með prófi Póst- og fjarskiptastofnunar. Kennt verður mánudaga, þriðjudag og
miðvikudaga kl. 18:30-21:30 í húsnæði Háskólans í Reykjavík.
Áhugasamir eru beðnir um að skrá nafn sitt og tölvupóstfang
á “ira hjá ira.is”. Skráningu fylgir engin skuldbinding.
Fyrirspurnum má beina til Jóns Björnssonar, TF3PW,
umsjónarmanns námskeiða félagsins; tölvupóstfang „nonni.bjorns hjá gmail.com
Ath. skráning verður aðeins opin til miðnættis þriðjudaginn
15. október n.k.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-10-11 17:19:502019-10-11 17:19:51MIKIL AÐSÓKN – SKRÁNING FRAM Á ÞRIÐJUDAG
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-10-08 18:52:352019-10-08 18:56:54SAC SSB KEPPNIN ER UM HELGINA
Skráning á námskeið ÍRA til amatörprófs er opin til 15.
október. Örfá sæti eru laus, en miðað er við mest 20 þátttakendur.
Námskeiðið hefst föstudaginn 18. október og lýkur fyrir jól með prófi Póst- og fjarskiptastofnunar. Kennt verður á kvöldin 2-3 daga í viku kl. 18:30-21:30 í húsnæði Háskólans í Reykjavík.
Áhugasamir eru beðnir um að skrá nafn sitt og tölvupóstfang
á “ira hjá ira.is”. Skráningu fylgir engin skuldbinding.
Fyrirspurnum má beina til Jóns Björnssonar, TF3PW,
umsjónarmanns námskeiða félagsins; tölvupóstfang „nonni.bjorns hjá gmail.com
Skráning verður opin til miðnættis þriðjudaginn 15. október
n.k.
Ný vetrardagskrá ÍRA hefst fimmtudaginn 10. október í
Skeljanesi.
Óskar Sverrisson, TF3DC, mætir á staðinn kl. 20:30 og sýnir okkur DVD myndband frá VP8ORK DX-leiðangrinum sem farinn var til Suður-Orkneyja 27. janúar til 8. febrúar 2011.
Margar TF stöðvar náðu sambandi við leiðangurinn, en eyjurnar eru staðsettar á vestanverðum Suðurskautsskaganum. Fjöldi sambanda VP8ORK var alls 63.433. Fjarlægð frá TF er nær 14 þúsund kílómetrar.