W3LPL, skrifar í dag á netinu (10. apríl) að líklegt sé að botninum í skilyrðunum hafi verið náð um jólaleytið 2019. Hann segir þó að ekki verði hægt að staðfesta það fyrr en síðar á árinu.
Þetta eru góðar fréttir fyrir radíóamatöra og hann segir, að
vonandi getum við látið okkur hlakka til að lota 25 fari af krafti í gang á
þessu ári. Hann nefnir í því sambandi, að af síðustu fimm sólblettum hafi
einvörðungu AR-2557 tilheyrt lotu 24.
Fréttir berast af skilyrðum á 50 MHz vestanhafs. W2OR nefnir góðar opnanir í skrifum sínum á netinu í gær (9. apríl) niður til Suður-Ameríku og Karíbahafsins (á morsi og FT8 samskiptahættinum), auk sambanda á milli KG4NE (á Guantanamo) og CE54DXU (í Chile). Þetta lofar góðu fyrir okkur hér uppi í norðrinu þótt skilyrðin á 6 metrum opnist yfirleitt seinna hér heldur en þessum heimshlutum.
Mynd frá 25. júní 2018 þegar TF3JB varð QRV á FT8 samskiptahætti á 50 MHz. Glöggir lesendur taka eftir skrúfstykkinu lengst til hægri á myndinni, en aðstaðan fyrir 6 metra stöðina var á þessum tíma staðsett á vinnuborði í bílskúrnum. Ljósmynd: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-04-10 15:34:282020-04-10 15:39:39SKILYRÐIN UPP Á VIÐ Á HF OG 50 MHZ
Byrjum að hlaða byssurnar!
Nú fer að styttast í stóru stundina.
Allir með!
Leikjasíðan fyrir Páskaleika 2020 er komin í loftið. Fyrir þá sem ekki hafa séð síðuna áður, þá er þetta frekar þægilegt. Fara í nýskrá, gefa upp kallmerki, nafn eða gælunafn, tölvupóst og lykilorð (tvisvar). Þú færð tölvupóst með PIN númeri sem þú notar í fyrsta skipti þegar þú skráir þig inn (notar lykilorðið og PIN númerið). Mátt gleyma PIN númerinu eftir það, skráir þig framvegis inn, bara með kallmerki og lykilorði.
Skráningarblað fyrir Páskaleika. Hér má hlaða niður skráningarblaði fyrir Páskaleika, hlekkurinn virðist ekki virka í kerfinu: QsoSkraning.pdfPDF
Fyrir leikinn þá kynnir þú þér reitanúmerið. Það er hægt að gera með „appi“ í snjallsíma, t.d. “QTH Locator”. Á Íslandi byrja allir reitir á HP eða IP, t.d. HP83TX. Ef „appið“ gefur upp 8-stafa reitanúmer þá notar þú fyrstu 6 stafina. Eftir fyrsta samband man kerfið reitanúmerið og þarft ekki að slá það inn nema þú færir þig á annan stað. Við hvert samband gefur þú upp reitanúmer og QSO númer. Tekur við því sama frá hinum og skráir það ásamt bandinu sem var notað, t.d. 70cm.
Ef eitthvað er óljóst, ekki hika við að hafa samband. Ég og fleiri erum meira en til í að aðstoða; “hrafnk hjá gmail.com”
Það eru þegar komin „feik“ QSO í kerfið, endilega prófið að
logga sambönd. Bæði til að átta ykkur á
þessu og til að „spotta“ mögulegar villur í kerfinu. Þetta er ekki fullkomið og það væri vel þegið
að fá að vita af villum sem finnast. QSO
„loggurinn“ verður hreinsaður eftir kl. 19 á föstudag og allt gert klárt fyrir
leikinn.
Sjáumst í loftinu, góða skemmtun !
73 de TF8KY.
TF3IRA verður QRV í páskaleikunum 2020. Til gamans er birt mynd úr Skeljanesi þegar félagsstöðin tók þátt í fystu páskaleikunum 31. mars til 1. apríl 2018. Ljósmynd: TF3JB.
Erindi frá Elínu Sigurðardóttur, TF2EQ, Ungmennafulltrúa ÍRA:
Kæru félagsmenn:
Um páskahelgina, 10.-13. apríl, verður NOTA (Nordics On The Air) viðburðurinn í loftinu. Kallmerki landsfélagana á Norðurlöndum (með YOTA viðskeyti) verða virkjuð hvern páskadag. Það verður auglýst á samfélagsmiðlum (sjá vefslóðir neðar) hvenær hver stöð fer í loftið. Endilega reynið að ná sambandi við okkur eða láta heyra í ykkur í loftinu, ég stóla á ykkur!
Vala Dröfn, TF3VD og Oddný ætla að virkja TF3YOTA heiman að
frá sér í Garðabæ, a.m.k. á annan í páskum (13. apríl). Frekari upplýsingar um
þeirra virkni verður einnig auglýst á samfélagsmiðlum. Undirrituð, PA/TF2EQ
verður QRV frá Hollandi á mánudag.
Ágæt skilyrði hafa verið á 80 metrum um helgina á innanlandstíðninni 3637 kHz. Þar eru menn aðallega virkir á tali (SSB) um helgar, á bilinu frá klukkan 9 árdegis fram að hádegi. Þessar stöðvar voru virkar í morgun, sunnudaginn 5. apríl:
TF4AH (Patreksfirði); TF7DHP (Akureyri); TF2LL (Borgarfirði); TF8PB (Vogum); TF1EIN (Hveragerði); TF3OM (Geysi í Haukadal); TF1JI (undir Eyjafjöllum); TF3VE (Hafnarfirði) og TF1A og TF3Y (Reykjavík).
Í gær, laugardag 4. apríl, voru að auki þessi kallmerki QRV
á 3637 kHz: TF3GS (Úlfljótsvatni) og TF8SM (Garði).
Tilkynning til félagsmanna frá Hrafnkeli Sigurðssyni, TF8KY, umsjónarmanni páskaleikana:
Þá er stóra stundin að renna upp. Páskaleikar 2020 renna upp
um næstu helgi. Vika til stefnu!!!
Leikurinn byrjar á laugardag 11. apríl kl. 00:00 (eftir miðnætti
föstudagskvöld) og endar sunndag (Páskadag) 12. apríl kl. 23:59.
Að venju verður “online” loggur og rauntíma
stigaskráning sem uppfærist um leið og hvert samband er skráð og staðfest. Hlekkurinn á síðuna verður kynntur síðar.
Notum HF / VHF / UHF og hvetjum til notkunar hærri tíðna í
tilraunaskyni.
Leikurinn er alltaf í þróun og vegna fjölda áskoranna er verið að endurskoða stigareikninginn. Það er helst fólgið í að verðlauna langdræg sambönd betur en síðast en halda þó margfaldarakerfinu sem fyrir var.
Fyrirspurnir má senda á tölvupóstfangið “hrafnk hjá gmail.com”
73 de TF8KY.
Hrafnkell Sigurðsson TF8KY, umsjónarmaður Páskaleikana. Myndin var tekin á aðalfundi ÍRA 15. febrúar s.l. Ljósmynd: TF3JON.Mynd af viðurkenningum félagsins fyrir bestan árangur í Páskaleikunum í fyrra (2019). Ljósmynd: TF3JB.
Keppnisnefnd CQ hefur birt bráðabirgðaniðurstöður (e. raw scores) í SSB-hluta CQ World Wide
WPX keppninnar 2020, sem fram fór helgina 28.-29. mars s.l.
5 TF-stöðvar sendu inn gögn í 4 keppnisflokkum.
TF1AM – Öll bönd, einmenningsflokkur, háafl. TF8KY – Öll bönd, einmenningsflokkur, lágafl. TF3AO – 20 metrar, einmenningsflokkur, aðstoð, háafl. TF2LL – 80 metrar, einmenningsflokkur, háafl. Viðmiðunardagbók (e. check-log): TF3SG.
Japanskir radíóamatörar hafa í dag heimildir á tíðnisviðunum
1810-1825 kHz á morsi og 1907.5-1912.5 á morsi og stafrænum tegundum
útgeislunar. Þeir fá nú uppfærða tíðniúthlutun á 160 metrum, þ.e. á 1800-1810
kHz og 1825-1875 kHz, auk þess sem talheimild (SSB) bætist við.
Fram að þessu hafa sambönd við Japan á FT8 samskiptahætti á 160 metrum farið fram á skiptri tíðni (e. split frequency). Þessi breyting mun hafa verulega einföldum í för með sér á þessu erfiða bandi. Nýjar heimildir þeirra taka gildi á næstunni.
Frá 4. desember 2018 á QRG 1840 kHz. Á skjánum á tölvunni má m.a. sjá japönsk kallmerki á FT8 samskiptahætti. Ljósmynd: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-04-01 18:44:352020-04-01 18:50:55160 METRA BANDIÐ Í JAPAN
Niðurstöður í CQ WW DX SSB keppninni 26.-27. október 2019 hafa verið birtar í marshefti CQ tímaritsins.
Níu TF kallmerki skiluðu inn gögnum, þar af fimm
keppnisdagbókum og skiptust íslensku stöðvarnar á fjóra keppnisflokka. Árangur:
EU=yfir Evrópu, AF=yfir Afríku og H=yfir
heiminn.
“Nordics on the air, NOTA” ungmennabúðir radíóamatöra sem
halda átti í Noregi 10.-13. apríl n.k. hefur verið aflýst vegna útbreiðslu
kórónaveiru sem veldur CONVID-19 sjúkdómi.
Að sögn Elínar Sigurðardóttur, TF2EQ, ungmennafulltrúa ÍRA, er hugsanlegt að viðburðurinn verði haldinn í haust eða frestist jafnvel um eitt ár. Hún segir, að framkvæmdanefnd NOTA mun taka ákvörðun um framhaldið þegar faraldinum linnir.
Sambærilegum viðburðum í Serbíu, Ungverjalandi, Króatíu, Spáni og í Thailandi hefur ennfremur verið aflýst/frestað af sömu ástæðum.
Til stóð að tveir félagsmenn ÍRA myndu sækja viðburðinn, þær
Elín Sigurðardóttir, TF2EQ og Oddný Þóra Konráðsdóttir.
Í kvöld, 26. mars, kl. 20, var kallað CQ TF á 3637 kHz. Þessir mættu: TF3JB, TF3OM, TF3VS og TF8SM. Þótt ekki hafi mætt fleiri á tíðnina, þá voru t.d. KiwiSDR viðtækin virk og sagðist TF3GZ hafa heyrt vel í öllum í gegnum þau upp í Borgarfjörð. Einnig var kallað CQ TF á endurvarpanum á 145.650 MHz. Þessir mættu: TF3GZ, TF3JB og TF8YY.
Hugmyndin er að hittast á 80 metrum (og VHF/UHF) á
fimmtudagskvöldum kl. 20, a.m.k. þar til hægt verður að opna félagsaðstöðuna í
Skeljanesi á ný.
Í kvöld var í gangi RSGB keppni á SSB á 80 metrunum, auk
þess sem DX skilyrði voru góð, þannig að það var mikið QRM…en það hjálpaði að
færa fjarskiptin 1 kHz niður frá 3637 kHz. Hugmyndin er annars, að vera einnig QRV
á 80 metrum á laugardags- og sunnudagsmorgnum frá kl. 11.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-03-26 21:24:462020-03-26 21:25:50OPIÐ Á 3637 kHz OG 145.650 MHz Í KVÖLD