Entries by TF3JB

,

STÓRU SÝNINGARNAR 2023

Vegna fjölda fyrirspurna fylgja hér á eftir upplýsingar um stóru sýningarnar þrjár sem haldnar eru á árinu 2023 fyrir radíóamatöra. Hamvention 2023 verður haldin helgina 19.-21. maí n.k. Sýningin er haldin á sýningarsvæði Greene County Fair and Expo Center í borginni Xenia í Ohio í Bandaríkjunum. Hægt er að kaupa aðgöngumiða fyrirfram yfir netið. Vefslóð: […]

,

NEYÐARFJARSKIPTI Í EVRÓPU

ÁRÍÐANDI! ÍRA hafa borist upplýsingar um sjö tíðnir á HF sem hefur verið teknar til notkunar fyrir neyðarfjarskipti radíóamatöra, eftir að jarðskjálfti 7,8 að stærð reið yfir suðurhluta Tyrklands s.l. nótt. Staðfest eru yfir 5000 andlát en óttast er að enn fleiri hafi látist, bæði í Tyrklandi og nágrannaríkinu Sýrlandi. 160 metrar: 1.855 MHz 80 […]

,

CQ WPX RTTY KEPPNIN 2023

CQ WPX RTTY keppnin verður haldin helgina 11.-12. febrúar n.k. Þetta er tveggja sólarhringa keppni og er markmiðið að ná samböndum við eins margar aðrar stöðvar radíóamatöra um heiminn með eins mörgum mismunandi forskeytum og frekast er unnt. Tíðnisviðin eru 3,5, 7, 14, 21 og 28 MHz. QSO punktar: Sambönd við sömu stöð einu sinni […]

,

OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 9. FEBRÚAR

Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 9. febrúar frá kl. 20 til 22 fyrir félagsmenn og gesti. Fundarsalur, fjarskiptaherbergi TF3IRA og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Sending af QSL kortum er væntanleg og mun QSL stjóri vitja kortanna í pósthólf félagsins á miðvikudag og flokka í hólf félagsmanna fyrir fimmtudagskvöld. Nýjustu tímaritin […]

,

BÚRI “TÍMABUNDIÐ Í REYKJAVÍK”

Endurvarpinn TF1RPE á fjallinu Búrfelli (Búri) sem ekki hefur verið auðvelt að opna allsstaðar frá á höfuðborgarsvæðinu, var tengdur um hlekk frá félagsstöðinni TF3IRA í Skeljanesi í dag, sunnudaginn5. febrúar. Tengingin er gerð í tilraunaskyni og til bráðabirgða og verður virk a.m.k. til næsta fimmtudagskvölds, 9. febrúar. Félagið fékk að láni HYS stöð af gerðinni […]

,

OPIÐ VAR Í SKELJANESI 2. FEBRÚAR

Félagsaðstaðan í Skeljanesi var opin fimmtudaginn 2. febrúar. Skemmtilegt kvöld og góðar umræður á báðum hæðum. Sérstakir gestir okkar voru Erik Finskas, OH2LAK (TF3EY) frá Mankkaa í Espoo í Finnlandi og Albert (Bert) Flower III, N1MXO frá Nantucket í Massachusetts í Bandaríkjunum. Mikið var rætt um tækin, loftnet og annan búnað. Ennfremur um góð skilyrði […]

,

TF3JB FÆR WPX AWARD OF EXCELLENCE

Jónas Bjarnason, TF3JB hefur fengið í hendur WPX AWARD OF EXCELLENCE viðurkenningu frá CQ tímaritinu. Viðurkenningin er dagsett 30. september 2022 en barst hingað til lands 1. febrúar 2023. WPX Award of Exellence er æðsta viðurkenningin sem er í boði í WPX viðurkenningapakka CQ tímaritsins. Kröfurnar eru eftirfarandi: 1000 forskeyti MIXED og 600 forskeyti SSB […]

,

EUDX KEPPNIN 2023

EUDXCC (Eoropean Contest Club) boðar til 3. alþjóðlegu European Union DX keppninnar 2023. Keppnin er opin radíóamatörum um allan heim og fer fram á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum á tali (SSB) og morsi (CW) helgina 4.-5. febrúar. Hún hefst kl. 12 á hádegi á laugardag og lýkur kl. 12 á hádegi […]

,

OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 2. FEBRÚAR

Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 2. febrúar kl. 20-22 fyrir félagsmenn og gesti. Fundarsalur, fjarskiptaherbergi TF3IRA og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Sérstakir gestir okkar verða radíóamatörar frá Finnlandi og Bandaríkjunum. Nýjustu tímaritin liggja frammi. Kaffiveitingar. Verið velkomin í Skeljanes! Stjórn ÍRA. Vefslóð: https://www.vf.is/sjonvarp/beint-samband-til-nordur-koreu-fra-gardskagavita

,

AÐALFUNDUR ÍRA 2023; FUNDARBOÐ

Ágæti félagsmaður! Með tilvísan til 17. gr. félagslaga, er hér með boðað til aðalfundar ÍRA sunnudaginn 19. febrúar 2023. Fundurinn verður haldinn í safnaðarheimili Neskirkju við Hagatorg í Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 14:00. Dagskrá er samkvæmt 19. gr. félagslaga. Reykjavík 27. janúar 2023,fyrir hönd stjórnar ÍRA, Jónas Bjarnason, TF3JB,formaður