Nú líður að vinnslu næsta heftis CQ TF. Óskað er eftir efni í blaðið frá félagsmönnum – frásögnum, myndum eða ábendingum sem ritstjóri eða ritnefnd geta svo unnið frekar úr. Stefnt er að því að allt efni verið komið fyrir lok nk. sunnudags, 31. mars, sem er páskadagur.

Efnið má senda, eins og venjulega, á netfangið cqtf@ira.is.

Skeljanesi 24. mars. TF3TNT og TF3EE rannsaka laskað Butternut HF6V stangarloftnet TF3IRA í návígi.

Benedikt Guðnason, TF3TNT, stöðvarstjóri TF3IRA, mætti ásamt fleirum árdegis, sunnudaginn 24. mars í Skeljanes. Verkefni dagsins var að taka niður, gera við og setja upp á ný, Butternut HF6V stangarloftnet TF3IRA. Vettvangskönnun leiddi hins vegar í ljós að loftnetið er nokkuð laskað og var því ákveðið að taka það niður til viðgerðar.

Í millitíðinni verður New-Tronics Hustler 6-BTV loftnet félagsins sett upp á ný (þó án 80 metra spólu og topps). Við það tækifæri verður fæðilínan endurnýjuð. Hugmynd stöðvarstjóra er, að síðan verði settur upp svokallaður „beygður tvípóll” (e. „folded dipole“) fyrir 80 metrana, sbr. mynd LA8OKA neðst á síðunni.

Stjórn Í.R.A. þakkar þeim Benedikt Guðnasyni, TF3TNT; Erling Guðnasyni, TF3EE; Benedikt Sveinssyni, TF3CY og Jónasi Bjarnasyni, TF3JB fyrir vinnuframlag þennan sólríka sunnudag í Skeljanesi.

TF3EE og TF3TNT losa upp stagfestur við Butternut HF6V stangarnetið eftir ákvörðun um að fella netið.

Loftnetið fellt eftir losun stagfestinga norðanmegin á skemmuþakinu.

Butternut HF6V stangarloftnetið á leið niður á jafnslettu. TF3TNT og TF3EE hjálpast að.

Sunnudagurinn var einnig nýttur til að slá nagla í vegg og hengja upp nýja WAZ viðurkenningarskjalið.

Worked All Zones (WAZ) viðurkenningarskjali TF3IRA verður valinn staður í fjarskiptherbergi stöðvarinnar.

Worked All Zones Award (WAZ) viðurkenningarskjalið fyrir TF3IRA frá CQ tímaritinu var sótt í innrömmun í dag, þann 22. mars. Um er að ræða fyrsta WAZ viðurkenningarskjal félagsstöðvarinnar og er það veitt fyrir allar tegundir útgeislunar (e. Mixed Mode).

Undirbúningur er langt kominn með umsóknir fyrir tvö önnur WAZ viðurkenningarskjöl. Annars vegar fyrir sambönd einvörðungu á morsi og hins vegar einvörðungu á tali. Næsta skref er að velja nýja skjalinu stað í fjarskiptaherbergi félagsins í Skeljanesi og verður það gert í samráði við stöðvarstjóra.

Stjórn Í.R.A. þakkar þeim Mathíasi Hagvaag, TF3-Ø35 og Jónasi Bjarnasyni, TF3JB, fyrir aðkomu þeirra að verkefninu, en Mathías tók saman kortin og undirbjó umsóknina og Jónas, sem er trúnaðarmaður CQ tímaritsins hér á landi, annaðist yfirferð korta og gekk frá umsókn. Þess má geta, að verkefnið er án kostnaðar fyrir félagssjóð, þar sem CQ tímaritið felldi niður umsóknargjöld og innrömmunin er færð félaginu að gjöf.

Úr fundarsal Í.R.A. í félagsaðstöðunni í Skeljanesi.

Af óviðráðanlegum ástæðum þarf að fresta fyrirhuguðu fimmtudagserindi á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar sem auglýst var n.k. fimmtudag, þann 21. mars. Ný dagsetning verður auglýst strax og hún liggur fyrir.

Opið hús verður þess í stað í félagsaðstöðunni í Skeljanesi á fimmtudagskvöld á milli kl. 20 og 22.

F.h. stjórnar Í.R.A.,

Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.

Mynd frá 10. kennslukvöldi á námskeiði Í.R.A. til amatörprófs í H.R. þann 15. mars.

Athygli þátttakenda á námskeiði Í.R.A. til amatörprófs er vakin á því að svör við dæmum á 8. kennslukvöldi sem lögð voru fyrir þann 8. mars s.l., hafa verið sett inn á vefsvæði prófnefndar á heimasíðu félagsins. Kennari: Ágúst Úlfar Sigurðsson, TF3AU.

Um er að ræða pdf skjal sem má nálgast á þessari vefslóð: http://www.ira.is/namsefni/
Skjalið er vistað neðst í neðri kaflanum á síðunni, undir fyrirsögninni: Skjöl til hliðsjónar.

Þakkir til Ágústs Úlfars Sigurðssonar, TF3AU.

TF3TNT, VHF stjóri Í.R.A., flutti inngangserindi á framhaldsfundi um VHF/UHF mál 16. mars.

Sérstakur fimmtudagsfundur var haldinn í félagsaðstöðunni við Skeljanes þann 14. mars. Benedikt Guðnason, TF3TNT, VHF stjóri Í.R.A., hélt inngangserindi og Kjartan H. Bjarnason, TF3BJ,gjaldkeri félagsins annaðist fundarstjórn. Kjartan gat þess í upphafi, að fundurinn skoðaðist sem sjálfstætt framhald af VHF/UHF fundinum sem haldinn var þann 24. janúar s.l.

Ágætar umræður urðu um málaflokkinn og m.a. samþykkt, að ekki væri ástæða til að setja endurvarpann TF3RPC upp á ný á sama stað, en hann var tekinn niður vegna byggingarframkvæmda í húsinu við Hagatorg, þann 6. febrúar s.l. Hugmyndin að finna honum betri staðsetningu verði til skoðunar. Þá var það almennt haft á orði, að ekki sé þörf á að setja aftur upp endurvarpann TF8RPH við Garðskagavita (en búnaður hans var fluttur í Bláfjöll í september s.l.
eftir að elding skemmdi Zodiac stöð TF1RPB).

Ástæða þess að menn telja ekki lengur þörf fyrir endurvarpa á þessum tveimur stöðum, er fyrst og fremst vegna þess hve vel endurvarpinn í Bláfjöllum kemur út. Stjórn félagsins mun taka formlega ákvörðun um málið á á sjórnarfundi þann 26. mars n.k.

Fram kom á fundinum, að von sé á fjölgun endurvarpa í einkaeigu (en búnaður við TF3RPI er t.d. í eigu TF3ML, en er rekinn af TF3ARI). Í þessu sambandi höfðu menn nokkrar áhyggjur af tíðnimálum, taki endurvörpum að fjölga – miðað við 25 kHz tíðniniðurskiptan innan bandplansins. Hugmyndin er, að VHF stjóri geri uppkast að vinnureglum vegna endurvarpa. Að lokum var rætt um hinar ýmsu útfærslur sem koma til greina á VHF og UHF og ætlar VHF stjóri félagsins að forma þær hugmyndir og kynna síðar. Alls mættu tæpl. 30 félagsmenn í Skeljanes þetta fimmtudagskvöld.


Yfirlit yfir notkun tíðna fyrir VHF endurvarpa innan bandplans IARU Svæðis 1 m.v. 25 kHz tíðnininðurskiptingu þann 19. mars 2013. Ath. í töflunni er gengið út frá því að endurvarparnir TF3RPC og TF8RPH verði aflagðir.

Kallmerki

QRG, inn

QRG, út

Afl sendis

Nafn, QTH o.fl.

144.975 MHz 145.575 MHz
TF3RPA 145.000 MHz 145.600 MHz
Unknown macro: {center}18W

„Pétur” Skálafell (760 m. yfir sjávarmáli)
TF5RPD 145.025 MHz 145.625 MHz
Unknown macro: {center}25W

„Tóti” Vaðlaheiði (550 m. yfir sjávarmáli)
145.050 MHz 145.650 MHz
TF3RPI 145.075 MHz 145.675 MHz
Unknown macro: {center}25W

„Ari” Reykjavík (Ljósheimar)
TF1RPE 145.100 MHz 145.700 MHz
Unknown macro: {center}30W

„Búri” Búrfell (670 m. yfir sjávarmáli)
145.125 MHz 145.725 MHz
TF1RPB 145.150 MHz 145.750 MHz
Unknown macro: {center}25W

„Páll” Bláfjöll (690 m. yfir sjávarmáli)
145.175 MHz 145.775 MHz

Þeir félagar voru heppnir með veður eins og sjá má á myndinni, en frostþokan var þó ekki langt undan. Ísing er mikil á fjallinu eins og gefur að skilja enda eru mannvirkin í 690 metra hæð yfir sjávarmáli. Ljósmynd: TF3ARI.

Jónas Bjarnason TF3JB í félagsaðstöðunni í Skeljanesi þann 7. mars.

PowerPoint glærur frá fimmtudagserindi Jónasar Bjarnasonar, TF3JB, sem flutt var í félagsaðstöðunni í Skeljanesi þann 7. mars síðastliðinn hafa verið settar inn á vefsvæði fræðslukvölda heimasíðunnar.

Erindið fjallar um “nýju” böndin svokölluðu, þ.e. 4 metra, 60 metra, 160 metra (1850-1900 kHz) og 630 metra. Meðal annars var útskýrður munur á „réttarstöðu” sérheimilda samanborið við úthlutuð bönd (t.d. nýju 630 metrana), farið yfir nánar yfir heimildirnar og einnig hvað er efst á óskalista við næstu uppfærslu (eða fyrr), s.s. hvað varðar afl- og tíðniheimildir.

Glærurnar má nálgast á þessari vefslóð: http://www.ira.is/itarefni/
Athugið að þær eru vistaðar neðst á síðunni, undir fyrirsögninni Erindi 2013.

Þakkir til Jónasar Bjarnasonar, TF3JB.

Skeljanesi 17. mars. Nýr búnaður APRS stafavarpans TF3APG í félagsaðstöðu Í.R.A.

Búnaður APRS stafavarpans TF3APG í Skeljanesi var nýlega endurnýjaður. Hann keyrir nú á Linux stýrikerfi, á Telenor IntelliOp Vehicle PC VPC010 tölvu sem notar notar nýjan APRXhugbúnað frá Matti Aarnio, OH2MQK (útgáfu 0.32). Þá hefur afl varpans verið aukið og notar hann nú Yaesu FTL-2007 stöð sem hefur 25W sendiafl á QRG 144.800 MHz. Það skal tekið fram, að þessar breytingar eru án kostnaðar fyrir félagssjóð.

Samúel Þór Guðjónsson, TF2SUT, annaðist hönnun og uppsetningu kerfisins ásamt Jóni Þóroddi Jónssyni, TF3JA. Að sögn Samúels, kemur nýi búnaðurinn vel út og eru menn mjög ánægðir með breytinguna. Sem dæmi, þá sparar nýi hugbúnaðurinn t.d. óþarfa gagnasendingar þar sem hann bíður í 2-4 sekúndur með útsendingu á „pökkum” til að tvítaka ekki sömu sendingar annars staðar frá.

Stjórn Í.R.A. þakkar þeim Samúel Þór Guðjónssyni, TF3SUT og Jóni Þóroddi Jónssyni, TF3JA, fyrir aðkomu að verkefninu, sem eykur skilvirkni og öryggi í APRS gagnasendingum íslenskra leyfishafa.

TF3AU kennir á námskeiði Í.R.A. til amatörprófs í Háskólanum í Reykjavík þann 8. mars

Athygli þátttakenda á námskeiði Í.R.A. til amatörprófs er vakin á því að PowerPoint glærur frá 8. kennslukvöldi sem fram fór 8. mars s.l., hafa verið settar inn á vefsvæði prófnefndar á heimasíðu félagsins. Kennari: Ágúst Úlfar Sigurðsson, TF3AU.

Um er að ræða tvenn PowerPoint skjöl, þ.e. Námskeið Í.R.A., transistorar og Námskeið Í.R.A., díóður. Glærurnar má nálgast á þessari vefslóð: http://www.ira.is/namsefni/

Þakkir til Ágústs Úlfars Sigurðssonar, TF3AU.

Myndin er af fjarskiptaborði-B í fjarskiptaherbergi TF3IRA í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Ljósmynd: TF3JB.

Russian DX Contest er sólarhringskeppni og hefst kl. 12 á hádegi laugardaginn 16. mars og lýkur á sama tíma sunnudaginn 17. mars. Í boði er að keppa annaðhvort eða bæði (e. mixed), á CW eða SSB. Skilaboð eru RS(T) og raðnúmer (sem hefst á 001), en rússneskar stöðvar gefa upp RS(T) og tveggja bókstafa „oblast” kóða. Keppnin fer fram á 160-10 metra böndunum. Þessir keppnisriðlar eru eru í boði:

• SOAB-MIX – Einmenningsflokkur, öll bönd, bæði CW og SSB.
• SOAB-MIX-LP – Einmenningsflokkur, öll bönd, bæði CW og SSB, lágafl (mest 100W).
• SOAB-MIX-QRP – Einmenningsflokkur, öll bönd, bæði CW og SSB, QRP (mest 5W).
• SOAB-CW – Einmenningsflokkur, öll bönd, CW.
• SOAB-CW-LP – Einmenningsflokkur, öll bönd, CW, lágafl (mest 100W).
• SOAB-SSB – Einmenningsflokkur, öll bönd, SSB.
• SOAB-SSB-LP – Einmenningsflokkur, öll bönd, SSB, láafl (mest 100W).
• SOSB – Einmenningsflokkur, eitt band, bæði CW og SSB, bæði CW og SSB, val um 160, 80, 40, 20, 15, 10 metra.
• MOST – Fleirmenningsflokkur, öll bönd, einn sendir, bæði CW og SSB.
• MO2T – Fleirmenningsflokkur, öll bönd, tveir sendar, bæði CW og SSB.

Frestur til að skila keppnisdagbókum til keppnisnefndar RDXC er til 31. mars n.k. Nánari upplýsingar um keppnisreglur má sjá á vefslóðinni: http://www.rdxc.org/asp/pages/rulesg.asp

Systurfélag Í.R.A., Soyuz Radioljubitelej Rossii (SSR), landsfélag radíóamatöra í Rússneska sambandsríkinu stendur fyrir keppninni.