Magnús Ragnarsson, TF1MT, hefur sett upp APRS stöðina TF1MT-1, sem iGátt og W1 stafavarpa frá nýju QTH í Landeyjum. Hann á von á að stafvarpinn lesi merki frá Bláfjöllum, Búrfelli, Þorbirni og Reynisfjalli, þegar sú stöð fer í loftið.
Uppsetning
APRS iGáttar á Akureyri er í undirbúningi og sjá þeir Þór Þórisson, TF1GW og
Guðmundur Sigurðsson, TF3GS, um þá vinnu. Búnaðurinn verður í umsjá Daggeirs Pálssonar,
TF7DHP, sem er búsettur í bænum.
Það verður áhugavert að fá stafavarpa QRV frá Akureyri í APRS-IS kerfið. Bestu þakkir til þeirra TF1MT, TF1GW, TF3GS og TF7DHP fyrir gott framtak.
.
.
Til vinstri: Diamond VHF loftnet TF1MT-1. Ljósmynd: Magnús Ragnarsson TF1MT.
APRS búnaður TF1MT-1 frá nýju QTH í Landeyjum. Motorola GM-300 VHF stöð, Microsat WX3in1 Mini APRS Digipeater/I-gate og Kenwood PS-8 aflgjafi. Ljósmynd: Magnús Ragnarsson TF1MT.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-06-14 08:49:522020-06-14 09:22:05LANDEYJAR OG AKUREYRI Á APRS
Félagsaðstaðan í Skeljanesi var opnuð á ný fimmtudaginn 11. júní. Þá hafði síðast verið opið fimmtudaginn 12. mars, réttum þremur mánuðum áður.
Vandað var með kaffinu að venju og nýjustu tímaritin lágu frammi. Eins og gefur að skilja höfðu menn um mikið að tala og var umræðuefnið dæmigert fyrir árstímann, þ.e. um skilyrðin, loftnet og áform manna um að setja upp loftnet í sumar.
Alls mættu 17 félagar í Skeljanes þetta ágæta sumarkvöld.
Frá vinstri: Jón Björnsson TF3PW, Mathías Hagvaag TF3MH og Baldvin Þórarinsson TF3-Ø33.
Frá opnunarkvöldi í Skeljanesi 11. júní: Þórður Adolfsson TF3DT, Guðmundur Sigurðsson TF3GS, Sigurður Smári Hreinsson TF8SM, Heimir Konráðsson TF1EIN og Sigmundur Karlsson TF3VE. Flaskan með handsprittinu og eldhúsrúllan er á sínum stað á borðinu. Ljósmyndir: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-06-13 20:06:432020-06-13 20:15:14OPNAÐ Í SKELJANESI Á NÝ 11. JÚNÍ
Tilkynnt hefur verið um nýja uppfærslu WSJT-X forritsins.
Það er útgáfa v2.2.0 sem kemur í
stað núverandi útgáfu, v2.1.2.
Margar TF stöðvar nota forrit Joseph H. Taylor, Jr., K1JT, m.a. í fjarskiptum á FT4 og FT8 samskiptaháttum. Ýmsar nýjungar eru kynntar í uppfærslunni, m.a. er 10% bætt geta forritsins í að lesa merki undir erfiðum kringumstæðum (QRN, QRM o.þ.h.).
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin á ný frá og með
fimmtudeginum 11. júní.
Tólf vikna tímabilið frá 12. mars til 11. júní 2020 er
líklega einstætt í nær 73 ára sögu ÍRA, en þessa þrjá mánuði var starfsemi
félagsins haldið í lágmarki vegna COVID-19 faraldursins sem er af völdum
svokallaðrar kórónaveiru, sem smitast milli manna og getur valdið alvarlegum
veikindum.
Ákvörðunin um opnun félagsaðstöðunnar 11. júní, byggir á minnisblaði sóttvarnalæknis varðandi afléttingu takmarkana á samkomum vegna COVID-19 dags. 25. maí 2020. Ný skilgreining á tveggja metra reglu skiptir sköpum fyrir okkur, sem er að tveggja metra reglan geti verið val fólks. Þannig má fólk sitja eða standa þétt – en bjóða þarf þeim sem það vilja, að halda tveggja metra fjarlægð.
Stjórn ÍRA þakkar félagsmönnum frábæran stuðning og góðar tillögur á þessum tíma faraldurs – sem vonandi er brátt að baki. Áfram gilda þau tilmæli, að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes á fimmtudagskvöldum, fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-06-07 10:00:142020-06-07 11:16:20SKELJANES OPNAR Á NÝ 11. JÚNÍ
Morshluti CQ World Wide WPX keppninnar fór fram helgina 30.-31. maí s.l. Fjórar TF stöðvar skiluðu gögnum til keppnisnefndar tímaritsins samkvæmt eftirfarandi:
TF3W, einmenningsflokkur, öll bönd, aðstoð, háafl (op. TF3DC). TF3VS, einmenningsflokkur, öll bönd, lágafl. TF3JB, einmenningsflokkur, 20 metrar, lágafl. TF3SG, viðmiðunardagbók (e. check-log).
Þátttakendur voru sammála um að skilyrði hafi almennt verið ágæt.
Ólafur
B. Ólafsson, TF3ML, varð QRV á ný á 50 MHz og 70 MHz laugardaginn 30. maí. Hann
setti upp, fyrir utan bílskúrinn á planinu hjá sér í Grímsnesi, sérútbúinn 4
tonna vagn (sem hann keypti á sínum tíma frá Frakklandi) með áfestum turni, sem
hækka má í allt að 28 metra hæð yfir jörðu. Öflugur rótor fylgir með turninum.
Að þessu sinni setti hann upp ný Yagi loftnet fyrir 6 metra og 4 metra böndin frá InnovAntennas. Það er annarsvegar, 8 el LFA Yagi á 50 MHz. Bómulengd: 12.5m og ávinningur: 14.05 dBi. Og hinsvegar, 9 el LFA Yagi á 70 MHz. Bómulengd: 10.4m og ávinningur: 14.72 dBi. Óli sagðist vera ánægður með árangurinn það sem af er þegar haft var samband við hann.
Myndin af Ólafi var tekin í Skeljanesi. Ljósmynd: TF3JB.
Turninn er glæsilegur og verkleg smíð. Hann er gerður fyrir færanleg fjarskiptavirki. Ljósmynd: Ólafur B. Ólafsson TF3ML.Nýju loftnetin eru ekki síður glæsileg. Loftnetið fyrir 6M bandið er neðar og fyrir 4M ofar. Ljósmynd: Ólafur B. Ólafsson TF3ML.
Góð DX-skilyrði hafa verið undanfarna daga bæði á HF og VHF.
Efri böndin hafa verið vel opin á 17, 15, 12 og 10 metrum. Á
„cluster“ má sjá að mörg TF kallmerki hafa haft áhugaverð DX-sambönd, m.a. TF1OL,
TF2MSN, TF3GB, TF3VS, TF5B, TF6JZ og fleiri.
6 metra bandið verið líka verið spennandi; og eins og einn
leyfishafi lýsti skilyrðunum þar, „…að 6 metrarnir hafi nánast verið opnir
allan sólarhringinn að undanförnu“. TF1A, TF2MSN og TF8KY eru allir með ný
loftnet á bandinu, þar af eru Óðinn og Hrafnkell báðir með stór 6el LFA Yagi
loftnet frá InnovAntennas.
Spennandi opnanir hafa ennfremur verið á 4 metrum (70 MHz).
Smári, TF8SM, birti t.d. mynd á FB síðum af skráningum á „cluster“ sem sýna
sambönd 28. og 29. maí, m.a. við 9A, 9H1/9H4, DL, EA8, G (mörg kallsvæði), OX,
PA og S5. Þess má geta að Smári er með nýtt Yagi loftnet á bandinu.
Radíóvitar TF3ML á Mýrum í Borgarfirði hafa sannað gildi sitt að undanförnu (eins og svo oft áður) og margar skráningar hafa borist inn á “cluster”. Þeir er á 6M (50.457 MHz) og 4M (70.057 MHz). Báðir nota sama kallmerki, TF1VHF.
Myndin er af glæsilegu 6 el LFA Yagi loftneti TF2MSN fyrir 50 MHz bandið sem hann setti saman ásamt Hannesi syni sínum 23. maí s.l. Þess má geta, að Hrafnkell TF8KY, setti samskonar loftnet upp skömmu áður. Ljósmynd: Óðinn Þór Hallgrímsson TF2MSN.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-05-29 12:15:042020-05-29 12:18:05SKEMMTILEG SKILYRÐI – ALLT UPP Í 70 MHZ
Stjórn ÍRA samþykkti á fundi sínum í gær, 27. maí, að félagsaðstaðan í Skeljanesi verði opin frá og með fimmtudeginum 11. júní n.k. Þá verða liðnir réttir 3 mánuðir frá því síðast var opið, þann 12. mars s.l.
Ákvörðunin
byggir á minnisblaði sóttvarnalæknis varðandi afléttingu takmarkana á samkomum
vegna COVID-19 dags. 25. maí 2020. Ný skilgreining á tveggja metra reglu er, að
hún geti verið val fólks. Þannig má fólk sitja eða standa þétt en bjóða þarf
þeim sem það vilja að halda tveggja metra fjarlægð. Allir einstaklingar eru engu
að síður hvattir til að viðhalda tveggja metra fjarlægðarreglu í samskiptum við
aðra, eftir því sem aðstæður leyfa.
Um leið
og við fögnum því að veiran er á undanhaldi og að óhætt er talið að opna félagsaðstöðuna
á ný, eru það eru tilmæli stjórnar að félagar sem hafa hug á að mæta í
Skeljanes á fimmtudagskvöldum, fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju
tagi, af virðingu við aðra.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-05-28 20:26:522020-05-28 20:29:36SKELJANES OPNAR Á NÝ
Elín
Sigurðardóttir, TF2EQ, ungmennafulltrúi ÍRA vill koma því á framfæri, að vinnuhópur
um málefni ungmenna innan IARU Svæðis 1, kynnir nýtt verkefni undir heitinu „YOTA
online“. Á mánaðarlegum fundum á netinu, er markmiðið að kynna YOTA hugsunina
og þar með vekja athygli á því að ungt fólk er þátttakendur í amatör radíói.
Hópur ungra virkra radíóamatöra mun kynna mismunandi hliðar áhugamálsins, samtímis því að svara spurningum á netinu. Ennfremur mun verða boðið upp á umfjöllun þar sem leyfishafar sem staðið hafa í forsvari fyrir hina ýmsu YOTA viðburði munu skýra frá reynslu sinni, ásamt því að svara spurningum.
Ástæða þess að farið er af stað með þetta málefni nú er vegna áhrifa Covid-19 faraldursins, sem hefur m.a. haft þau áhrif að öllum YOTA viðburðum á IARU Svæðum 1, 2 og 3 hefur verið aflýst eða frestað, sem og YOTA verkefninu sem fyrirhugað var að halda á Ham Radio sýningunni í Friedrichshafen í sumar.
Fyrsti „YOTA online“ viðburðurinn fer fram í kvöld, fimmtudaginn 28. maí, kl. 18:00 GMT. Fyrirhugað er, að viðburðurinn (livestream) mun standa yfir í u.þ.b. klukkustund. Gerð verður upptaka sem síðan má kalla fram á netinu. Þátttaka er opin öllum, allsstaðar í heiminum. Vefslóðin á viðburðinn: https://www.facebook.com/hamyota/posts/2787529188035538
Landsfélag radíóamatöra á Spáni (URE), hefur ákveðið að bjóða radíóamatörum um allan heim opinn aðgang að júníhefti félagsblaðsins RadioAficionados 2020. Blaðið er á spænsku, en smella má á neðri vefslóðina til að fá enska þýðingu.
ÍRA þakkar URE fyrir boðið sem hér með er komið á framfæri
við félagsmenn.
Morshluti CQ World Wide WPX keppninnar fer fram 30.-31. maí n.k. Markmiðið er að hafa sambönd við kallmerki með eins mörg mismunandi forskeyti (e. prefixes) og mögulegt er, á 1.8, 3.5, 7, 14, 21 og 28 MHz.
Keppnin stendur yfir í 48 klst., en einmenningsstöðvar mega mest taka þátt í 36 klst. Á þátttökutímanum má taka eins mörg hlé og menn vilja, en hvert miðast að lágmarki við 60 mínútur.
Samband við hverja stöð gefur punkta einu sinni á bandi.
Sambönd við stöðvar í Evrópu (en utan Íslands) gefa 1 punkt á 14, 21 og 28 MHz; en 2 punkta á 1.8, 3.5 og 7 MHz.
Sambönd við stöðvar utan Evrópu gefa 3 punkta á 14, 21 og 28 MHz; en 6 punkta á 1.8, 3.5 og 7 MHz.
Margfaldari er summa fjölda mismunandi forskeyta sem haft er samband við og reiknast einu sinni, burtséð frá fjölda sambanda eða fjölda banda.
Í boði
eru 9 mismunandi þátttökuflokkar fyrir einmenningsstöðvar, auk 5 flokka
fleirmenningsstöðva.
Þess má geta til fróðleiks, að fimm TF stöðvar tóku þátt í keppninni í fyrra (2019): TF3AO, TF3DC, TF3GB, TF3VS og TF3Y.
LANDEYJAR OG AKUREYRI Á APRS
Magnús Ragnarsson, TF1MT, hefur sett upp APRS stöðina TF1MT-1, sem iGátt og W1 stafavarpa frá nýju QTH í Landeyjum. Hann á von á að stafvarpinn lesi merki frá Bláfjöllum, Búrfelli, Þorbirni og Reynisfjalli, þegar sú stöð fer í loftið.
Uppsetning APRS iGáttar á Akureyri er í undirbúningi og sjá þeir Þór Þórisson, TF1GW og Guðmundur Sigurðsson, TF3GS, um þá vinnu. Búnaðurinn verður í umsjá Daggeirs Pálssonar, TF7DHP, sem er búsettur í bænum.
Það verður áhugavert að fá stafavarpa QRV frá Akureyri í APRS-IS kerfið. Bestu þakkir til þeirra TF1MT, TF1GW, TF3GS og TF7DHP fyrir gott framtak.
.
.
Til vinstri: Diamond VHF loftnet TF1MT-1. Ljósmynd: Magnús Ragnarsson TF1MT.
OPNAÐ Í SKELJANESI Á NÝ 11. JÚNÍ
Félagsaðstaðan í Skeljanesi var opnuð á ný fimmtudaginn 11. júní. Þá hafði síðast verið opið fimmtudaginn 12. mars, réttum þremur mánuðum áður.
Vandað var með kaffinu að venju og nýjustu tímaritin lágu frammi. Eins og gefur að skilja höfðu menn um mikið að tala og var umræðuefnið dæmigert fyrir árstímann, þ.e. um skilyrðin, loftnet og áform manna um að setja upp loftnet í sumar.
Alls mættu 17 félagar í Skeljanes þetta ágæta sumarkvöld.
Frá vinstri: Jón Björnsson TF3PW, Mathías Hagvaag TF3MH og Baldvin Þórarinsson TF3-Ø33.
UPPFÆRSLA Á V2.1.2 WSJT-X FORRITINU
Tilkynnt hefur verið um nýja uppfærslu WSJT-X forritsins. Það er útgáfa v2.2.0 sem kemur í stað núverandi útgáfu, v2.1.2.
Margar TF stöðvar nota forrit Joseph H. Taylor, Jr., K1JT, m.a. í fjarskiptum á FT4 og FT8 samskiptaháttum. Ýmsar nýjungar eru kynntar í uppfærslunni, m.a. er 10% bætt geta forritsins í að lesa merki undir erfiðum kringumstæðum (QRN, QRM o.þ.h.).
Leiðbeiningar höfundar:
https://physics.princeton.edu/pulsar/K1JT/wsjtx-doc/wsjtx-main-2.2.0_en.html#NEW_FEATURES
SKELJANES OPNAR Á NÝ 11. JÚNÍ
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin á ný frá og með fimmtudeginum 11. júní.
Tólf vikna tímabilið frá 12. mars til 11. júní 2020 er líklega einstætt í nær 73 ára sögu ÍRA, en þessa þrjá mánuði var starfsemi félagsins haldið í lágmarki vegna COVID-19 faraldursins sem er af völdum svokallaðrar kórónaveiru, sem smitast milli manna og getur valdið alvarlegum veikindum.
Ákvörðunin um opnun félagsaðstöðunnar 11. júní, byggir á minnisblaði sóttvarnalæknis varðandi afléttingu takmarkana á samkomum vegna COVID-19 dags. 25. maí 2020. Ný skilgreining á tveggja metra reglu skiptir sköpum fyrir okkur, sem er að tveggja metra reglan geti verið val fólks. Þannig má fólk sitja eða standa þétt – en bjóða þarf þeim sem það vilja, að halda tveggja metra fjarlægð.
Stjórn ÍRA þakkar félagsmönnum frábæran stuðning og góðar tillögur á þessum tíma faraldurs – sem vonandi er brátt að baki. Áfram gilda þau tilmæli, að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes á fimmtudagskvöldum, fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.
Velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
CQ WW WPX KEPPNIN 2020, CW HLUTI.
Morshluti CQ World Wide WPX keppninnar fór fram helgina 30.-31. maí s.l. Fjórar TF stöðvar skiluðu gögnum til keppnisnefndar tímaritsins samkvæmt eftirfarandi:
TF3W, einmenningsflokkur, öll bönd, aðstoð, háafl (op. TF3DC).
TF3VS, einmenningsflokkur, öll bönd, lágafl.
TF3JB, einmenningsflokkur, 20 metrar, lágafl.
TF3SG, viðmiðunardagbók (e. check-log).
Þátttakendur voru sammála um að skilyrði hafi almennt verið ágæt.
https://www.cqwpx.com/logs_received_cw.htm
ALVÖRU LOFTNET TF3ML Á 50 MHZ OG 70 MHZ
Ólafur B. Ólafsson, TF3ML, varð QRV á ný á 50 MHz og 70 MHz laugardaginn 30. maí. Hann setti upp, fyrir utan bílskúrinn á planinu hjá sér í Grímsnesi, sérútbúinn 4 tonna vagn (sem hann keypti á sínum tíma frá Frakklandi) með áfestum turni, sem hækka má í allt að 28 metra hæð yfir jörðu. Öflugur rótor fylgir með turninum.
Að þessu sinni setti hann upp ný Yagi loftnet fyrir 6 metra og 4 metra böndin frá InnovAntennas. Það er annarsvegar, 8 el LFA Yagi á 50 MHz. Bómulengd: 12.5m og ávinningur: 14.05 dBi. Og hinsvegar, 9 el LFA Yagi á 70 MHz. Bómulengd: 10.4m og ávinningur: 14.72 dBi. Óli sagðist vera ánægður með árangurinn það sem af er þegar haft var samband við hann.
Myndin af Ólafi var tekin í Skeljanesi. Ljósmynd: TF3JB.
NÝTT CQ TF 28. JÚNÍ
Nú styttist í júníhefti CQ TF, 3. tbl. 2020, sem kemur út sunnudaginn 28. júní n.k.
Allt efni um áhugamálið er vel þegið í blaðið – frásagnir, ljósmyndir, eða jafnvel aðeins punktar og ábendingar um efni sem vinna má úr.
Skilafrestur efnis er til 16. júní n.k. Netfang ritstjóra: tf3sb@ox.is
73,
TF3SB, ritstjóri CQ TF.
SKEMMTILEG SKILYRÐI – ALLT UPP Í 70 MHZ
Góð DX-skilyrði hafa verið undanfarna daga bæði á HF og VHF.
Efri böndin hafa verið vel opin á 17, 15, 12 og 10 metrum. Á „cluster“ má sjá að mörg TF kallmerki hafa haft áhugaverð DX-sambönd, m.a. TF1OL, TF2MSN, TF3GB, TF3VS, TF5B, TF6JZ og fleiri.
6 metra bandið verið líka verið spennandi; og eins og einn leyfishafi lýsti skilyrðunum þar, „…að 6 metrarnir hafi nánast verið opnir allan sólarhringinn að undanförnu“. TF1A, TF2MSN og TF8KY eru allir með ný loftnet á bandinu, þar af eru Óðinn og Hrafnkell báðir með stór 6el LFA Yagi loftnet frá InnovAntennas.
Spennandi opnanir hafa ennfremur verið á 4 metrum (70 MHz). Smári, TF8SM, birti t.d. mynd á FB síðum af skráningum á „cluster“ sem sýna sambönd 28. og 29. maí, m.a. við 9A, 9H1/9H4, DL, EA8, G (mörg kallsvæði), OX, PA og S5. Þess má geta að Smári er með nýtt Yagi loftnet á bandinu.
Radíóvitar TF3ML á Mýrum í Borgarfirði hafa sannað gildi sitt að undanförnu (eins og svo oft áður) og margar skráningar hafa borist inn á “cluster”. Þeir er á 6M (50.457 MHz) og 4M (70.057 MHz). Báðir nota sama kallmerki, TF1VHF.
SKELJANES OPNAR Á NÝ
Stjórn ÍRA samþykkti á fundi sínum í gær, 27. maí, að félagsaðstaðan í Skeljanesi verði opin frá og með fimmtudeginum 11. júní n.k. Þá verða liðnir réttir 3 mánuðir frá því síðast var opið, þann 12. mars s.l.
Ákvörðunin byggir á minnisblaði sóttvarnalæknis varðandi afléttingu takmarkana á samkomum vegna COVID-19 dags. 25. maí 2020. Ný skilgreining á tveggja metra reglu er, að hún geti verið val fólks. Þannig má fólk sitja eða standa þétt en bjóða þarf þeim sem það vilja að halda tveggja metra fjarlægð. Allir einstaklingar eru engu að síður hvattir til að viðhalda tveggja metra fjarlægðarreglu í samskiptum við aðra, eftir því sem aðstæður leyfa.
Um leið og við fögnum því að veiran er á undanhaldi og að óhætt er talið að opna félagsaðstöðuna á ný, eru það eru tilmæli stjórnar að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes á fimmtudagskvöldum, fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.
Velkomin í Skeljanes.
Stjórn ÍRA.
YOTA ONLINE HEFST 28. MAÍ
Elín Sigurðardóttir, TF2EQ, ungmennafulltrúi ÍRA vill koma því á framfæri, að vinnuhópur um málefni ungmenna innan IARU Svæðis 1, kynnir nýtt verkefni undir heitinu „YOTA online“. Á mánaðarlegum fundum á netinu, er markmiðið að kynna YOTA hugsunina og þar með vekja athygli á því að ungt fólk er þátttakendur í amatör radíói.
Hópur ungra virkra radíóamatöra mun kynna mismunandi hliðar áhugamálsins, samtímis því að svara spurningum á netinu. Ennfremur mun verða boðið upp á umfjöllun þar sem leyfishafar sem staðið hafa í forsvari fyrir hina ýmsu YOTA viðburði munu skýra frá reynslu sinni, ásamt því að svara spurningum.
Ástæða þess að farið er af stað með þetta málefni nú er vegna áhrifa Covid-19 faraldursins, sem hefur m.a. haft þau áhrif að öllum YOTA viðburðum á IARU Svæðum 1, 2 og 3 hefur verið aflýst eða frestað, sem og YOTA verkefninu sem fyrirhugað var að halda á Ham Radio sýningunni í Friedrichshafen í sumar.
Fyrsti „YOTA online“ viðburðurinn fer fram í kvöld, fimmtudaginn 28. maí, kl. 18:00 GMT. Fyrirhugað er, að viðburðurinn (livestream) mun standa yfir í u.þ.b. klukkustund. Gerð verður upptaka sem síðan má kalla fram á netinu. Þátttaka er opin öllum, allsstaðar í heiminum. Vefslóðin á viðburðinn: https://www.facebook.com/hamyota/posts/2787529188035538
Nánar á vefslóðinni: https://www.ham-yota.com/
Fylgist með frá byrjun. Góða skemmtun!
73, Elín, TF2EQ.
JÚNÍHEFTI RADIOAFICIONADOS Í BOÐI URE
Landsfélag radíóamatöra á Spáni (URE), hefur ákveðið að bjóða radíóamatörum um allan heim opinn aðgang að júníhefti félagsblaðsins RadioAficionados 2020. Blaðið er á spænsku, en smella má á neðri vefslóðina til að fá enska þýðingu.
ÍRA þakkar URE fyrir boðið sem hér með er komið á framfæri við félagsmenn.
Stjórn ÍRA.
Smellið á “Descargas” (hægra megin) og síðan á “Junio 2020 – Revista”
https://www.ure.es/descargas/
Google þýðing á ensku:
https://tinyurl.com/SpainURE
CQ WW WPX CW KEPPNIN 2020
Morshluti CQ World Wide WPX keppninnar fer fram 30.-31. maí n.k. Markmiðið er að hafa sambönd við kallmerki með eins mörg mismunandi forskeyti (e. prefixes) og mögulegt er, á 1.8, 3.5, 7, 14, 21 og 28 MHz.
Keppnin stendur yfir í 48 klst., en einmenningsstöðvar mega mest taka þátt í 36 klst. Á þátttökutímanum má taka eins mörg hlé og menn vilja, en hvert miðast að lágmarki við 60 mínútur.
Í boði eru 9 mismunandi þátttökuflokkar fyrir einmenningsstöðvar, auk 5 flokka fleirmenningsstöðva.
Þess má geta til fróðleiks, að fimm TF stöðvar tóku þátt í keppninni í fyrra (2019): TF3AO, TF3DC, TF3GB, TF3VS og TF3Y.
Vefslóð á keppnisreglur: https://www.cqwpx.com/rules.htm