Síðasta erindið á vetrardagskrá ÍRA í febrúar-maí 2019 verður í boði fimmtudaginn 9. maí kl. 20:30. Þá mætir Njáll Hilmar Hilmarsson, TF3NH, í Skeljanes og flytur erindi um „Gervihnattasamskipti“.
Talað verður um gervihnattasamskipti sem radíóamatörar nota og sem notuð eru í iðnaði. Farið verður yfir þróun í þessum geirum og m.a. rætt um samskiptaleiðir með ýkt töp, m.a. vegna speglunar merkja af tunglum og reikistjörnum.
Í kaffihléi mun Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, kynna
niðurstöður í Páskaleikunum 2019 ásamt því að veitt verða verðlaun fyrir fyrstu
þrjú sætin.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-05-06 16:13:062019-05-06 16:21:58NJÁLL TF3NH KEMUR Í SKELJANES Á FIMMTUDAG
Kaffispjall á laugardegi var í boði í félagsaðstöðu ÍRA þann 4. maí, frá kl. 13:30.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætti á staðinn með nýju Icom IC-9700 stöðina, nýjan FeelElec FY-6800 „signal generator“ og loftnet og mælitæki til móttöku merkja frá nýja Oscar 100 gervitunglinu. Daggeir Pálsson, TF7DHP, mætti einnig á staðinn með nýja Kenwood TS-590SG HF stöð, afmælisútgáfu, þ.e. „Special Edition 70th Anniversary“.
Byrjað var að skoða FY-6800 “signal generator’inn” og bar öllum saman um að miðað við 96 dollara verð (flutningur með DHL innifalinn) þá væru mjög góð kaup í þessu tæki. Það er vandað, með litaskjá og hefur komið vel út í prófunum hjá TF1A.
Daggeir, TF7DHP, sýndi okkur síðan afmælisútgáfu Kenwood TS-590SG stöðvarinnar sem hann hefur átt í nokkurn tíma. Þessi stöð var framleidd í takmörkuðu magni og er búin aukinni tæknilegri getu samanborið við TS-590SG grunnútgáfuna; glæsileg stöð.
Mikil spenna ríkti þegar 40cm diskloftnetið var sett á þrífótinn í salnum (við gluggann) og því beint í austurátt. Og viti menn, ótrúlega gott merki náðist fljótlega eins og sjá má á skjá Promax DVB mælitækisins (sbr. ljósmynd).
Viðstaddir fluttu sig næst upp í fjarskiptaherbergi félagsins á efri hæð og þar var nýja IC-9700 stöðin tengd. Hafi einhver verið í vafa áður, þá var svo ekki eftir að búið var að kveikja á tækinu. Hér vinnur saman afar vel heppnuð hönnun á stjórnborði og glæsileg bandsjá sem er ótrúlega þægileg aflestrar. Höfð voru sambönd á FM og SSB á 2 metrum og 70 cm við þá TF3AK, TF2MSN og TF8YY. Viðtaka var skýr og greinileg og allir gáfu umsögn þess efnis að mótun væri skýr og góð frá stöðinni.
Loks var haldið utanhúss og hugað að heppilegri staðsetningu fyrir diskloftnet fyrir nýja Oscar 100 gervitunglið og fannst sá staður fljótlega á veggnum fyrir neðan fjarskiptaherbergið á 2. hæð. Hugmynd VHF stjóra er, að gengið verði frá nýju loftneti eftir að sýningin í Friedrichshafen er yfirstaðin (í júní) þar sem heppilegt gæti verið að afla ýmissa smáhluta til verksins þar.
Stjórn ÍRA þakkar Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF1A, fyrir að eiga frumkvæði að því að hittast í kaffispjalli á laugardegi í Skeljanesi. Jafnframt eru þakkir til Ólafs B. Ólafssonar, TF3ML, fyrir að lána nýju Icom IC-9700 stöðina og síðast en ekki síst, þakkir til Daggeirs Pálssonar, TF7DHP, fyrir innlitið. Alls mættu 12 félagar og 1 gestur í Skeljanes þennan ánægjulega sumardag.
Georg Magnússon TF2LL mætti í Skeljanes 2. maí og flutti erindið „Loftnetabúskapur TF2LL í Norðtungu í Borgarfirði“. Eins og flestum er kunnugt, er loftnetsaðstaða TF2LL er ein sú besta hér á landi á meðal radíóamatöra, auk þess sem fjarskiptatæki og annar búnaður stöðvarinnar er í fremstu röð.
Erindi Georgs var vel flutt, áhugavert, fróðlegt og
skemmtilegt. Hann opnaði okkur sýn inn í þann heim sem flestir leyfishafar geta
aðeins látið sig dreyma um – en fæstir hafa aðstöðu til að koma sér upp, þ.e. að
setja upp nær 30 metra háan turn og stór og stefnuvirk loftnet.
Hann lýsti loftnetasögu TF2LL vel, þ.á.m. leyfisferli hjá opinberum aðilum (byggingarfulltrúa o.fl.) sem var langt og kostnaðarsamt, en það var síðan í júní 2010 að verkefnið komst á framkvæmdastig og undirstöður loftnetsturnsins voru steyptar. Eftir veðurtjón árin 2015 og 2016 eru loftnet hans nú orðin nokkuð örugg gagnvart veðrinu (eins og hann segir sjálfur).
Loftnet TF2LL eru frá OptiBeam í Þýskalandi, þ.e. OB 17-4 (40,15,20 og 10m), OB 9-3 (30, 17 og 12m) og OB 5-6 (6m) auk heimasmíðaðra vírneta fyrir 80 og 160m böndin. Erindi Georgs verður til birtingar í heild sinni á heimasíðu ÍRA innan tíðar.
Erindi Georgs var bæði vandað og vel flutt og hann svaraði spurningum félagsmanna greiðlega í líflegum umræðum. Að lokum fékk hann verðskuldað klapp og þakkir viðstaddra. Menn ræddu síðan málin allt fram undir kl. 23:30. Alls mættu 27 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta frábæra fimmtudagskvöld.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-05-03 10:09:002019-05-03 10:15:30GEORG TF2LL FÓR Á KOSTUM Í SKELJANESI
Kaffispjall verður í boði í félagsaðstöðunni laugardaginn 4.
maí. Húsið opnar kl. 13:30.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætir á staðinn og tekur með sér nýjan kínverskan „generator“ sem nær upp í 60 MHz sem hann segir að sé „ótrúlega góður“ miðað við ótrúlega lágt verð. Sérstakur laugardagsgestur er Daggeir Pálsson, TF7DHP, frá Akureyri.
Margt spennandi er að gerast í áhugamálinu um þessar mundir, m.a.: – Nýja Es‘hail 2 / Oscar 100 amatörgervitunglið… – Nýja FT4 forritið, sem er 2,5 sinnum hraðara en FT8… – Nýja Icom IC-9700 stöðin verður á staðnum… Margt fleira verður til umræðu (enda af nógu að taka…)
Georg Magnússon TF2LL kemur í Skeljanes fimmtudaginn 2. maí og flytur erindi undir heitinu: „Loftnetabúskapur TF2LL í Norðtungu í Borgarfirði“.
Líkt og flestum er kunnugt, er loftnetsaðstaða TF2LL ein sú besta á meðal radíóamatöra hér á landi, auk þess sem fjarskiptabúnaður stöðvarinnar er í fremstu röð. Eftir veðurtjón árin 2015 og 2016 hefur hann endurnýjað flest loftnetin. Georg kemur í Skeljanes og segir okkur loftnetasögu sína í máli og myndum.
Ath. að erindi Georgs hefst stundvíslega kl. 20:00 (en ekki kl. 20:30 eins og venjulega). Stjórn ÍRA hvetur félaga til að mæta stundvíslega. Kaffi og veglegt meðlæti.
Áður auglýst verðlaunaafhending í Páskaleikunum 2019 frestast um viku, eða til fimmtudagsins 9. maí n.k.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-04-28 19:36:142019-04-28 19:57:42GEORG TF2LL VERÐUR Í SKELJANESI 2. MAÍ
Takk fyrir þátttökuna og frábæra skemmtun í páskaleikunum 2019. Það fréttist af allskonar tilraunum, svaðilförum og uppátækjum…allt til að koma sem mestu í logginn.
Nú verður kerfið opið til leiðréttinga fram að næstu helgi.
Lokað verður fyrir leiðréttingar á miðnætti aðfaranótt sunnudags 28. apríl.
Síðan verður verðlaunaafhending í félagsheimili ÍRA í Skeljanesi fimmtudagskvöldið 2. maí.
73, Keli TF8KY.
Ath. nýjar upplýsingar 28. apríl. Af tæknilegum ástæðum er verðlaunaafhendingu Páskaleikanna frestað um viku, eða til 9. maí n.k.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-04-23 23:21:382019-04-23 23:46:33LOKAÐ Í SKELJANESI Á SUMARDAGINN FYRSTA
Viðbótarfréttir 19. apríl kl. 18:00 Leikjasíðan uppfærð rétt í þessu. Listi yfir tíðnir sést í reglunum. Gæti þurft hard-refresh (Ctrl+F5) í sumum vöfrum. Það þarf að vera útskráður til að sjá þetta. 73 de TF8KY.
Mathías Hagvaag, TF3MH, QSL stjóri ÍRA QSL Bureau, tilkynnti á aðalfundi félagsins í febrúar s.l. um fyrirhugaða hækkun á gjaldskrá stofunnar.
Forsendur hafa nú verið skoðaðar og hefur QSL stjóri ákveðið að kostnaður fyrir hvert QSL kort hækki frá og með deginum í dag, 15. apríl 2019, úr 9,50 í 10,00 krónur.
Hækkunin nemur 5,3%, en gjaldskrá hefur ekki breyst í rúm 7 ár eða frá 4. febrúar 2012.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-04-15 16:35:412019-04-15 16:37:21VERÐSKRÁ ÍRA QSL BUREAU HÆKKAR 15. APRÍL