Félagsaðstaða ÍRA verður lokuð fimmtudaginn 18. maí sem er uppstigningardagur.
Næsti opnunardagur í Skeljanesi verður fimmtudag 25. maí n.k.
Stjórn ÍRA.
.

Félagsaðstaða ÍRA verður lokuð fimmtudaginn 18. maí sem er uppstigningardagur.
Næsti opnunardagur í Skeljanesi verður fimmtudag 25. maí n.k.
Stjórn ÍRA.
.
Bent er á, að leyfishafar sem hafa áhuga á að stunda fjarskipti á auknu afli á 50 MHz tíðnisviðinu (6 metrum) í sumar, þurfa að senda beiðni þess efnis til Fjarskiptastofu áður en sendingar eru hafnar. Hafi verið fengin heimild í fyrra (2022) gildir hún ekki í ár. Póstfang: hrh(hjá)fjarskiptastofa.is Tilgreina skal að sótt sé um aukið afl á 50 MHz.
Til upprifjunar: ÍRA barst jákvætt svar frá Fjarskiptastofu þann 27. mars s.l. við ósk félagsins um endurnýjun aukinna aflheimilda á 6 metra bandi í 50-50,5 MHz tíðnisviðinu frá og með 1. júní 2023. Gildistími er 4 mánuðir eða til 31. september. G-leyfishafar fá heimild til að nota allt að 1kW og N-leyfishafar allt að 100W.
Ánægjulegt er, að gildistími heimildarinnar er jafn langur og á síðasta ári (2022) eða út septembermánuð.
Stjórn ÍRA.
UN DX keppnin stendur yfir laugardaginn 20. maí frá kl. 06:00 til 21:00. Hún fer fram á SSB og CW á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
https://undxc.kz/rules-eng/
Skilaboð: Stöðvar í Kazakhstan senda RS(T)+svæðiskóða. Aðrir: RS(T)+raðnúmer.
NZART SANGSTER SHIELD keppnin fer fram helgina 20.-21. maí á CW á 80 metrum. Keppnin er tvískipt. Fyrri hluti á laugardag kl. 08:00 til 11:00 og síðari hluti á sunnudag kl. 08:00-11:00.
https://www.nzart.org.nz/activities/contests/sangster-shield/
Skilaboð: ZL stöðvar senda RST+raðnúmer+ZL sérnúmer. Aðrir: RST+raðnúmer.
HIS MAJESTY THE KING OF SPAIN CW keppnin hefst á laugardag 20. maí kl. 12:00 og lýkur á sunnudag 21. maí kl. 12:00. Keppnin fer fram á morsi á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
https://concursos.ure.es/en/s-m-el-rey-de-espana-cw/bases/
Skilaboð: EA stöðvar senda RST+2 bókstafi fyrir hérað. Aðrir: RST+raðnúmer.
EU PSK DX keppnin hefst á laugardag kl. 12:00 og lýkur sunnudag kl. 12:00. Keppnin fer fram á BPSK63 á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
https://eupsk.club/eupskdx/eupskdxrules.pdf
Skilaboð: Stöðvar í Evrópu gefa upp RST+DXCC einingu. Utan EU: RST+raðnúmer.
BALTIC keppnin hefst á laugardag kl. 21:00 og lýkur á sunnudag kl. 02:00. Keppnin fer fram á SSB og CW á 80 metrum.
http://www.lrsf.lt/en/
Skilaboð: RS(T)+raðnúmer.
FISTS SUNDAY SPRINT keppnin stendur yfir sunnudaginn 21. maí frá kl. 21:00 til 23:00. Hún fer fram á CW á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum á morsi.
https://fistsna.org/operating.php#sprints
Skilaboð: RST +(ríki í USA eða fylki í Kanada eða DXCC eining)+Nafn+(FISTS númer eða „none“ ef ekki FISTS félagi).
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
Vegna fyrirspurna fylgja hér á eftir upplýsingar um stærstu alþjóðlegu sýningarnar sem haldnar eru á árinu 2023 fyrir radíóamatöra.
HAMVENTION 2023 verður haldin helgina 19.-21. maí n.k. Sýningin er haldin á sýningarsvæði Greene County Fair and Expo Center í borginni Xenia (24 km austur af Dayton) í Ohio í Bandaríkjunum. Hægt er að kaupa aðgöngumiða fyrirfram yfir netið. Vefslóð: https://hamvention.org/
HAM RADIO 2023 verður haldin helgina 23.-25. júní n.k. á sýningarsvæði Neue Messe 1 í borginni Friedrichshafen í Þýskalandi. Hægt er að kaupa aðgöngumiða fyrirfram yfir netið. Vefslóð: https://www.hamradio-friedrichshafen.com/
TOKYO HAM FAIR 2023 verður haldin helgina 19.-20. ágúst n.k. á sýningarsvæði Tokyo Big Sight Convention Center í höfuðborginni Tokyo. Hægt er að kaupa aðgöngumiða fyrirfram yfir netið. Vefslóð: https://www.jarl.org/English/4_Library/A-4-6_ham-fair/Ham%20Fair%202023,%20Tokyo.htm
Til fróðleiks, má sjá upplýsingar um sýningarnar þrjár (CQ TF 4. tbl. 2018); bls. 33.
Vefslóð: http://www.ira.is/wp-content/uploads/2018/10/cqtf_32arg_2018_03tbl.pdf
Til fróðleiks, frásögn frá ferð á sýninguna í Friedrichshafen 2019 (CQ TF 4. tbl. 2019); bls. 25.
Vefslóð: http://www.ira.is/wp-content/uploads/2019/09/cqtf_33arg_2019_04tbl.pdf
Stjórn ÍRA.
Á morgun, fimmtudag 11. maí verður námskeiðið: Fyrstu skrefin í boði í Skeljanesi kl. 17:00-19:00. Óskar Sverrisson, TF3DC leiðbeinir.
“Fyrstu skrefin” eru hugsuð jafnt fyrir nýja sem eldri leyfishafa sem óska eftir tilsögn/leiðbeiningum um hvernig best er að standa að því að fara í loftið. Í boði eru einkatímar með reyndum leyfishafa sem kynnir grundvallaratriði og hefðir.
Markmiðið er að leyfishafi öðlist öryggi í fjarskiptum. Rætt er um áhugamálið og spurningum svarað og að því búnu farið í loftið í fjarskiptaherbergi félagsins. Námskeiðið er einnig hugsað fyrir þá sem t.d. vilja komast í loftið á FT8, RTTY o.fl. en vantar e.t.v. leiðbeiningar. Tímasetning og yfirferð er samkvæmt samráði – en ef þörf er á að menn hittist aftur, er það í boði.
Skráning hjá Óskari Sverrissyni, TF3DC í síma 862-3151 eða með tölvupósti; oskarsv hjá internet.is
Stjórn ÍRA.
Áður kynnt erindi Valgeirs Péturssonar, TF3VP: „Samsetning á HF transistormagnara“ sem halda átti fimmtudaginn 11. maí kl. 20:30 frestast af óviðráðanlegum ástæðum.
NÝ DAGSETNING: Fimmtudagur 1. júní kl. 20:30.
Beðist er velvirðingar á þessari breytingu.
Félagsaðstaðan verður opin á fimmtudag 11. maí frá kl. 20:00.
Nýjustu tímaritin liggja frammi. QSL stjóri verður búinn að flokka QSL kort í hólf félagsmanna. Vandaðar kaffiveitingar.
Stjórn ÍRA.
Vetrardagskrá félagsins heldur áfram á fimmtudag, 11 maí kl. 20:30.
Þá mætir Valgeir Pétursson, TF3VP í Skeljanes með erindið: Samsetning á HF transistormagnara.
Valgeir hefur verið að smíða RF magnara fyrir HF tíðnir með transistorútgangi og ætlar að segja okkur frá þessu ferli í máli og myndum. Hann kemur með smíðagripinn með sér á staðinn.
Félagsmenn eru hvattir til að missa ekki af erindi Valgeirs. Veglegar kaffiveitingar.
Stjórn ÍRA.
.
VOLTA WORLD WIDE RTTY keppnin hefst á laugardag 13. maí kl. 12:00 og lýkur á sunnudag 14. maí kl. 12:00. Hún fer fram á RTTY á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
http://www.contestvolta.com/rules.pdf
Skilaboð: RST+raðnúmer+CQ svæði.
CQ-M INTERNATIONAL INTERNATIONAL DX keppnin hefst á laugardag 13. maí kl. 12:00 og lýkur á sunnudag 14. maí kl. 12:00. Hún fer fram á CW og SSB á 160, 80, 40, 40, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RS(T)+raðnúmer.
SKCC WEEKEND SPRINTATHON keppnin hefst á laugardag 13. maí kl. 12:00 og lýkur á sunnudag 14. maí kl. 23:59. Hún fer fram á CW á 160, 80, 40, 20, 15, 10 og 6 metrum. http://www.skccgroup.com/operating_activities/weekend_sprintathon/
Skilaboð: RST+(Ríki í USA eða fylki í Kanada eða DXCC eining)+Nafn+(SKCC númer eða „none“ ef ekki SKCC félagi).
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
Flóamarkaður ÍRA að vori 2023 fór fram 7. maí í Skeljanesi og var haldinn samtímis í félagsaðstöðunni og yfir netið. Notað var forritið „Google Meet“ og voru félagsmenn veftengdir á Suðurlandi, Vesturlandi, Norðurlandi og á Höfuðborgarsvæðinu.
Markaðurinn var tvískiptur. Annars vegar var tækjum og búnaði stillt upp til sölu (eða gefins) í félagsaðstöðunni og hins vegar fór fram uppboð samtímis á staðnum og yfir netið. Alls voru boðin upp 29 númer og seldust 25. Margir gerðu reyfarakaup og fóru viðskipti einnig fram fyrir og eftir uppboðið.
Seldar voru m.a. HF sendi-/móttökustöðvar frá Kenwood og Yaesu, auk Yaesu „All mode“ V/UHF heimastöðvar og Icom „All mode“ 50 MHz heimastöðvar. Ennfremur mælitæki og loftnet fyrir heimahús á VHF/UHF og HF, þ.m.t. magnetísk lúppa (fyrir 3-15MHz). Einnig Hamstick og Hustler bílloftnet fyrir 80M, 60M og sambyggð bílnet fyrir 80-4M frá Wilson. Og heyrnartól, netbeinar, öryggismyndavélar og samstæðir hátalarar.
Alls tóku 40 manns þátt í viðburðinum, 31 þátttakandi var á staðnum og 9 tengdir yfir netið.
Þakkir til félagsmanna fyrir þátttökuna og sérstakar þakkir til þeirra Vilhjálms Í. Sigurjónssonar uppboðshaldara og Jóns Björnssonar, TF3PW tæknistjóra sem stóðu sig með afbrigðum vel.
Stjórn ÍRA.
Flóamarkaður ÍRA að vori 2023 verður haldinn í Skeljanesi sunnudaginn 7. maí kl. 13-17.
Húsið opnar kl. 13:00 fyrir félaga sem óska að selja/gefa/kaupa stöðvar og/eða búnað, þannig að þeir hafi rúman tíma til að stilla dóti sínu upp. Uppboðið hefst síðan stundvíslega kl. 14:00. Félagsmenn geta fylgst með uppboðinu yfir netið (á sama hátt og félagar í sal). Vefslóð: https://meet.google.com/wzr-rwwe-uud Notað verður forritið „Google Meet“.
Eftirfarandi skilaboð hafa borist:
Ég hef áhuga á að selja á flóamarkaðnum fyrir hönd dánarbús leyfishafa:
Kenwood TS-120V, 10W HF stöð. Sendir út á böndum 80m, 40m, 20m og 10m (28, 28.5, 29 og 29.5).
Stöðin virkar fínt, seljandi TF8KY hafði sambönd við TF4WD (Sauðakrókur 80m, LSB), Rússland (RW1F) 20m USB, Finnland (OG66X) 20m USB, Frakkland (F4IVV) 20m USB, Búlgaríu (LZ2YO) 20m USB, Lettland (YL8M) 20m USB og Ítalíu (IZ6BXV/QRP) 20m USB í gærkvöldi 06.05.2023.
Stöðinni fylgir borðhljóðnemi, SHURE Brothers INC Model #450, Amerískur hljóðnemi. Einnig fylgir 15A switched mode PSU. Pakki tilbúinn í loftið, ( just add antenna ;-) ) Lágmarksboð 20þ í allan pakkann.
Einnig til sölu deyfiliðasett í viðaröskju. Ætlaðir til að setja inn í kóax fæðilínu. 5 stk. deyfiliðir N-tengi male -> female. Merkingar:
1. 20: væntanlega 20dB deyfing
2. 10: væntanlega 10dB deyfing
3. 3D: væntanlega 3dB deyfing
4. 3D: væntanlega 3dB deyfing
5. 3D: væntanlega 3dB deyfing
Hægt að nota þá staka eða tengja í seríu. Lágmarksboð 5þ. Seljast allir saman.(aflþol ekki vitað). Kveðja, Keli, TF8KY.
Upplýsingunum hér með komið á framfæri.
Stjórn ÍRA.