,

SKELJANES Á FMMTUDAG: LOFTNETAKVÖLD

Fræðsludagskrá ÍRA heldur áfram.

Á fimmtudag 2. nóvember mætir Benedikt Sveinsson, TF3T í Skeljanes með erindið: “Loftnetakvöld fyrir stuttbylgju, áhersla á virkni mismunandi loftneta og umhverfið í kring“.

Benedikt hefur mikla reynslu af að hanna, smíða og setja upp loftnet, m.a. stór Yagi loftnet á HF tíðnum. Þátttakendum á námskeiði ÍRA til amatörprófs er bent á að þetta er efni sem hentar fyrir þá.

Félagsmenn eru hvattir til að láta þetta efni ekki framhjá sér fara. Veglegar kaffiveitingar.

Stjórn ÍRA.

Benedikt Sveinsson TF3T var virkur í CQ World Wide DX SSB keppninni 2023 sem fram fór 28.-29. október. Hann hafði alls 3.860 QSO og tæplega 3,4 millj. punkta. Benedikt setti þar með nýtt íslandsmet í flokki einmenningsstöðva á öllum böndum háafli. Myndin var tekin í glæsilegri fjarskiptaaðstöðu þeirra bræðra Benedikts TF3T og Guðmundar TF3SG við Stokkseyri (TF3D). Ljósmynd: TF3T.
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

2 × 3 =