VHF/UHF leikar ÍRA byrjuðu í gær kl. 18. Aðaldagurinn er í dag laugardag, en viðburðurinn verður í gangi til kl. 18:00 á morgun, sunnudag.
19 kallmerki eru skráð til þátttöku þegar þetta er skrifað – en hægt er að skrá sig hvenær sem er! Vefslóðin er: http://leikar.ira.is/2022
TF3IRA var QRV frá Skeljanesi í dag (laugardag) frá kl. 09-18. Þeir sem virkjuðu stöðina: Jónas Bjarnason, TF3JB, Jón G. Guðmundsson, TF3LM og Mathías Hagvaag, TF3MH. Félagsaðstaðan var opin á sama tíma fyrir félagsmenn og gesti og mættu alls 11 félagar og 1 gestur á staðinn.
Tökum þátt í leikunum…jafnvel þótt 1-2 klst. séu til ráðstöfunar!
VHF/UHF leikar ÍRA verða haldnir helgina 1.-3. júlí.
Leikarnir hefjast í dag, föstudaginn 15. apríl kl. 18:00 og lýkur eftir tvo sólarhringa, sunnudaginn 17. apríl kl. 18:00. Leikjavefur TF8KY (on-line) er opinn fyrir skráningu og verður opinn alla helgina. Slóð: http://leikar.ira.is/2022/
Þrír vandaðir verðlaunagripir verða í boði. Nýjung er í ár er, að einnig verða veitt þrjú viðurkenningaskjöl fyrir 1. 2. og 3. sæti í QSO fjölda, óháð stigum.
Félagsstöðin TF3IRA verður QRV á laugardag frá kl. 10-16. Félagsaðstaðan í Skeljanesi verður opin á sama tíma fyrir félagsmenn og gesti. Það verður heitt á könnunni.
Endilega skráið ykkur til leiks og tökum þátt í leikunum…jafnvel þótt aðeins 1-2 klst. séu til ráðstöfunar!
Stjórn ÍRA.
.
.
.
.
.
.
.
Myndin til vinstri: TF3IRA notar Diamond X-700HN VHF/UHF húsloftnet í VHF/UHF leikunum 2022. Það er 7.20 metrar á hæð. Ávinningur er 9.3 dBi á VHF og 13 dBi á UHF. Myndin er af Georg Kulp TF3GZ þegar hann setti netið upp í Skeljanesi í hitteðfyrra (2020).
Opið hús var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 30. júní fyrir félagsmenn og gesti.
Skemmtilegt kvöld og góðar umræður á báðum hæðum. TF3IRA var sett í loftið á morsi í ágætum skilyrðum á 7 MHz. Mikið var rætt um skilyrðin. Menn voru einnig mjög áhugasamir um VHF/UHF leikana sem byrja í kvöld, föstudaginn 1. júlí kl. 18:00.
Einnig var rætt um Ham Radio sýninguna í Friedrichshafen um síðustu helgi. Eftir því sem næst verður komist var íslenski hópurinn a.m.k. 11 manns (þ.e. 8 leyfishafar og makar).
Töluvert hafði borist af ágætu radíódóti í Skeljanes fyrir opnun, sem gekk vel út.
Vel heppnað fimmtudagskvöld í mildu sumarveðri í vesturbænum í Reykjavík. Alls 26 félagar og 1 gestur í húsi.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-07-01 00:11:502022-07-01 00:11:51FRÁ OPNUN Í SKELJANESI 30. JÚNÍ
11. VHF/UHF leikarnir byrja á föstudag kl. 18 og þeir verða í gangi fram á sunnudag kl. 18:00.
10 kallmerki eru þegar skráð til þátttöku þegar þetta er skrifað (á miðvikudag kl. 12:15). Eins og venjulega verður “on-line” leikjavefur þar sem þátttakendur skrá sig til leiks. Hægt verður að skrá sig inn í leikinn allan tímann þangað til leikurinn endar. Slóð á leikjavefinn: http://leikar.ira.is/2022
Félagsstöðin, TF3IRA, verður a.m.k. QRV frá Skeljanesi laugardaginn 2. júlí frá því fyrir hádegi og fram eftir degi.
Fyrir þá sem vilja nota pappírsdagbók, er Hrafnkell, TF8KY umsjónarmaður leikanna með skráningarblað sem hægt er að prenta út á vefnum þar sem það er vistað með því að smella á “Sýna reglur“.
Endilega skráið ykkur til leiks og tökum þátt í leikunum…jafnvel þótt aðeins 1-2 klst. séu til ráðstöfunar!
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-06-29 12:20:122022-06-29 12:20:52VHF/UHF LEIKARNIR ERU UM HELGINA
VHF/UHF viðtæki Karls Georgs Karlssonar, TF3CZ í Perlunni varð virkt á ný í dag (28. júní).
Hlusta má á tækið yfir netið. Um er að ræða Airspy R2 SDR viðtæki fyrir 24-1800 MHz (á VHF og UHF). Loftnet er Diamond D-190 sem er fyrir þetta tíðnisvið. QTH er Perlan í Öskjuhlíð í Reykjavík.
Þakkir til Karls Georgs, TF3CZ fyrir verðmætt framlag. Viðtækið er mikilvægt fyrir radíóamatöra sem gera tilraunir í þessum tíðnisviðum, auk hlustara og allra sem hafa áhuga á útbreiðslu radíóbylgna.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-06-28 15:04:472022-06-28 15:05:24VIÐTÆKIÐ Í PERLUNNI QRV Á NÝ
Opið verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 30. júní kl. 20-22. Félagsmenn og gestir eru velkomnir. Fundarsalur, fjarskiptaherbergi TF3IRA og QSL stofa á 2. hæð verða opin.
Nýjustu tímaritin fyrir radíóamatöra liggja frammi. Mathías, TF3MH QSL stjóri verður búinn að fara í pósthólfið og flokka kortasendingar. Kaffiveitingar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-06-28 13:10:432022-06-28 13:12:31OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 30. JÚNÍ
Ólafur Örn Ólafsson, TF1OL er á ferðalagi um landið. Í hádeginu í dag (27. júní) var hann staddur í ágætu veðri við vitann í Dyrhólaey sem er í um 120m hæð yfir sjávarmáli.
Óli ferðast með „sjakkinn“ með sér, þ.e. er með vel útbúna fjarskiptabifreið sem m.a. er með innbyggðan tjakk sem hækka má upp í allt að 12,6m hæð. Þar getur getur hann sett upp stefnuvirk loftnet á 6 og 4m og verið í DX þegar skilyrðin leyfa. Þegar tíðindamaður ræddi við hann um kaffileytið var hann í „pile-up“ við Japan frá Dyrhólaey á 15m og var mjög ánægður með skilyrðin.
Hann notar Icom IC-7100 stöð í bílnum og 8m hátt stangarloftnet (skipanet) á HF, sem hann fæðir á móti bílnum (sjá mynd). Hann sagði að það væri gott samband við félagana í bænum og nágrenni gegnum 2m endurvarpann í Bláfjöllum.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-06-27 15:27:442022-06-27 16:02:22TF1OL Á FERÐ UM LANDIÐ
Ham Radio sýningin í Friedrichshafen opnar kl. 9 í fyrramálið, föstudaginn 24. júní. Búist er við allt að 20 þúsund gestum, en sýningin féll niður tvö undanfarin ár faraldursins. Nokkur fjöldi íslenskra leyfishafa verður á staðnum, en íslenski hópurinn ári 2019 var 18 manns (að meðtöldum mökum).
Þess má geta, að Dayton Hamvention sýningin var haldin 20-22. maí s.l. Alls sóttu 31.367 gestir viðburðinn. A.m.k. einn íslenskur leyfishafi, Heimir Þór Sverrisson, TF3ANT/W1ANT sótti sýninguna. Síðasta stóra sýning ársins er Tokyo Hamfair sem verður haldin í samnefndri borg í Japan 20.-21. ágúst n.k.
Fyrir áhugasama, má benda á tvær tvær ferðasögur í félagsblaðiðnu CQ TF um sýninguna í Friedrichshafen sem voru farnar árin 2008 og 2019. Þá birtist mjög fróðleg yfirlitsgrein um sýningarnar í blaðinu árið 2018.
Landsfélag radíóamatöra á Spáni, La Unión de Radioaficionados Españoles URE býður til alþjóðlegrar keppni í nafni hans hátignar, Filipe IV. Spánarkonungs, helgina 25-26. júní.
Þetta er 24 klst. keppni á SSB sem hefst kl. 12:00 á hádegi laugardaginn 25. júní og lýkur á sama tíma á hádegi sunnudag 26. júní. Keppnin er opin radíóamatörum um allan heim og fer fram á SSB á 1.8, 3.5, 7, 14, 21 og 28 MHz.
Markmiðið er að ná samböndum við radíóamatöra á Spáni í eins mörgum stjórnsýslueiningum (sýslum) og frekast er unnt. Spænskir leyfishafar senda RS+tvo bókstafi sem eru skammstöfun á því stjórnsýsluumdæmi (sýslu) þar sem þeir eru búsettir. Aðrir senda RS+raðnúmer. Sjá nánar í keppnisreglum.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-06-22 20:39:482022-06-22 20:39:49ALÞJÓÐLEG KEPPNI Í NAFNI HANS HÁTIGNAR
Opið verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 23. júní kl. 20-22. Félagsmenn og gestir eru velkomnir. Fundarsalur, fjarskiptaherbergi og QSL stofa á 2. hæð verða opin.
Við eigum m.a. von á erlendum leyfishöfum í Skeljanes á fimmtudag.
Nýjustu tímaritin fyrir radíóamatöra liggja frammi. QSL stjóri verður búinn að fara í pósthólfið og flokka kortasendingar. Vandaðar kaffiveitingar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-06-21 10:08:582022-06-21 10:08:59OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 23. JÚNÍ