Vetrardagskrá ÍRA heldur áfram. Á laugardag 5. nóvember kl. 11:00 munu Stefán Arndal, TF3SA og Sigurbjörn Þór Bjarnason, TF3SB standa fyrir viðburðinn: „Félagar koma með morslykla sína í Skeljanes“.
Viðburðurinn hefst kl. 11 stundvíslega og miðað er við að umræðum ljúki upp úr hádegi, en húsið verður opnað kl. 10:30. Rúnstykki með kaffinu og vínarbrauðslengja frá Björnsbakaríi.
Hugmyndin er að menn komi með sem flestar gerðir lykla á staðinn og segi frá tegund og gerð yfir kaffibolla – og ef einhver saga fylgir. Hægt verður að tengja lyklana við hljóðgjafa (súmmer) sem verður á staðnum.
Þegar talað er um lykla er átt við allar gerðir morslykla, þ.e. handlykla, pöllur (spaðalykla), bögga (Vibroplex) og allar gerðir sem hægt er að nota til að senda með mors.
Kristinn Andersen, TF3KX formaður prófnefndar ÍRA mætti í hús í Skeljanes 3. nóvember með erindið: „Amatörpróf og undirbúningur fyrir þau“.
Kristinn fór yfir amatörnámskeið ÍRA og ræddi almennt um undirbúning fyrir próf Fjarskiptastofu til amatörleyfis. Hann ræddi m.a. um reglugerðina og um námsefnið og tók dæmi um efni á íslensku á heimasíðu ÍRA.
Hann ræddi um jákvæða reynslu af námskeiði ÍRA sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík í vor, bæði í stað- og fjarnámi. Fjarnámið leiddi af sér, að prófið var í fyrsta skipti haldið samtímis á þremur stöðum á landinu, sem er til þess fallið að jafna aðstöðu nemenda burtséð frá búsetu.
Kristinn fór vel yfir, ræddi og skýrði prófkröfur HAREC (Harmonised Amateur Radio Examination Certificate) sem eru notaðar hér á landi (eins og annarsstaðar í heiminum) og fram kom m.a., að amatör radíó er eina áhugamálið sem hefur réttarstöðu samkvæmt alþjóðasamningum.
Í lokin velti hann fyrir sér og ræddi hvort bæta megi amatörprófin að einhverju leyti, hvernig megi gera námsefni fyrir amatörpróf aðgengilegra og um aðrar leiðir en hefðbundin námskeið til undirbúnings fyrir amatörpróf.
Kristinn opnaði okkur sýn inn í veruleika þess sem hefur hug á að taka próf til amatörleyfis og hvernig best má undirbúa sig. Hann fór einnig yfir skyldur félagsins og stjórnvalda og fjallaði um eigin hugmyndir um þróun þessa mikilvæga verkefnis, sem próf og undirbúningur fyrir þau er.
Sérstakar þakkir til Kristins Andersen, TF3KX fyrir fróðlegt og vel undirbúið erindi um þennan mikilvæga málaflokk.
Alls mættu 26 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld á nýbyrjuðum vetri.
Ný vetrardagskrá félagsins heldur áfram á fimmtudag, 3. nóvember kl. 20:30. Þá mætir Kristinn Andersen, TF3KX, formaður prófnefndar ÍRA með erindið: „Amatörpróf og undirbúningur fyrir þau“.
Kristinn mun m.a. fjalla um reynsluna af námskeiði félagsins sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík í vor – bæði var í stað- og fjarnámi þegar 11 þátttakendur stóðust próf til amatörleyfis og prófað var á þremur stöðum á landinu.
Félagsmenn eru hvattir til að missa ekki af erindi Kristins. Kaffiveitingar í fundarhléi.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-11-02 20:07:362022-11-02 20:08:52FIMMTUDAGUR Í SKELJANESI
Ný vetrardagskrá félagsins heldur áfram á fimmtudag, 3. nóvember kl. 20:30. Þá mætir Kristinn Andersen, TF3KX, formaður prófnefndar ÍRA með erindið: „Amatörpróf og undirbúningur fyrir þau“.
Kristinn mun m.a. fjalla um reynsluna af námskeiði félagsins sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík í vor – bæði var í stað- og fjarnámi þegar 11 þátttakendur stóðust próf til amatörleyfis og prófað var á þremur stöðum á landinu.
Félagsmenn eru hvattir til að missa ekki af erindi Kristins. Kaffiveitingar í fundarhléi.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-10-31 14:21:002022-10-31 14:32:07SKELJANES Á FIMMTUDAG
CQ World Wide DX SSB keppnin fer fram helgina 29.-30. október.
Markmiðið er að ná eins mörgum samböndum og hægt er við aðra radíóamatöra um allan heim – í eins mörgum löndum (DXCC einingum) og á eins mörgum CQ svæðum og frekast er unnt. Keppt er á 1.8, 3.5, 7, 14, 21 og 28 MHz.
Þetta er stærsta alþjóðlega SSB keppni ársins; 48 klst. og engin tímatakmörk og í boði eru 66 mismunandi keppnisflokkar.
Stjórn félagsins hvetur félagsmenn til þátttöku og að skila inn radíódagbókum að henni lokinni. Alls var skilað dagbókum fyrir 11 TF kallmerki til keppnisstjórnar í fyrra (2021).
Nýja vetrardagskráin heldur áfram. Á fimmtudag, 27. október er tvennt í boði í Skeljanesi.
Kl. 17: Námskeiðið „Fyrstu skrefin“. Óskar Sverrisson, TF3DC leiðbeinir. Áhugasamir skrái sig tímanlega hjá Óskari í síma 862-3151.
Kl. 20:30: Erindið „Fjarstýring á amatörstöð yfir netið“. Ágúst H. Bjarnason, TF3OM flytur.
QSL stjóri verður búinn að tæma pósthólfið og raða kortum. Veglegar kaffiveitingar.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
– Námskeiðið “Fyrstu skrefin” eru hugsað fyrir nýja leyfishafa sem hafa áhuga á að sækja sér leiðbeiningar um hvernig best er að standa að því að fara í loftið. Um er að ræða einkatíma með reyndum leyfishafa. Leiðbeinandi kynnir í stuttu máli grundvallaratriði og ríkjandi hefðir innan áhugamálsins. Markmiðið er að nýr leyfishafi öðlist öryggi í fjarskiptum. Nýr leyfishafi og leiðbeinandi ræða saman þar sem spurningum er svarað og að því búnu er farið í loftið í fjarskiptaherbergi félagsins. Tímasetning námskeiðs og yfirferð getur að vissu marki verið sveigjanleg með samráði nýs leyfishafa og leiðbeinanda. Áríðandi er að áhugasamir skrái sig tímanlega hjá Óskari Sverrissyni, TF3DC í síma 862-3151 eða með tölvupósti; oskarsv hjá internet.is með fyrirvara.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-10-24 14:28:292022-10-24 14:34:23SKELJANES Á FIMMTUDAG
CQ World Wide DX SSB keppnin fer fram helgina 29.-30. október.
Markmiðið er að ná eins mörgum samböndum og hægt er við aðra radíóamatöra um allan heim – í eins mörgum löndum (DXCC einingum) og á eins mörgum CQ svæðum og frekast er unnt. Keppt er á 1.8, 3.5, 7, 14, 21 og 28 MHz.
Þetta er stærsta alþjóðlega SSB keppni ársins; 48 klst. og engin tímatakmörk og í boði eru 66 mismunandi keppnisflokkar.
Stjórn félagsins hvetur félagsmenn til þátttöku og að skila inn radíódagbókum að henni lokinni. Alls var skilað dagbókum fyrir 11 TF kallmerki til keppnisstjórnar í fyrra (2021).
Jónas Bjarnason, TF3JB mætti á „sófasunnudag“ í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi 23. október. Umræðuþema var: „Hagnýtt gildi QRZ.COM, Eham.net og fleiri vefja fyrir radíóamatöra“.
Farið var yfir efni fyrir radíóamatöra á völdum heimasíðum á netinu: QRZ / EHAM / DXSUMMIT / CONTESTCALENDAR / ON4KST / CLUBLOG / DXNEWS / DX.PROPAGATION / DAILYDX / SHERWENG og RIGPIX, auk heimsíðu ÍRA.
Skemmtilegar og áhugaverðar umræður. Fram kom m.a., að réttar vefsíður geta sparað mikinn tíma þegar leitað er svara við spurningum í því mikla framboði af efni sem er fyrir radíóamatöra á netinu.
Alls mættu 12 félagar og 1 gestur í Skeljanes þennan sólríka sunnudag á nýbyrjuðum vetri.
Vetrardagskrá ÍRA heldur áfram á fullu. Sunnudag 23. október kl. 11:00 verður Jónas Bjarnason, TF3JB með umræðuþema á sunnudagsopnun: „Hagnýtt gildi QRZ.COM, Eham.net og fleiri vefja fyrir radíóamatöra“.
Viðburðurinn hefst kl. 11 stundvíslega og miðað er við að umræðum ljúki um kl. 12 á hádegi, en húsið er opnað kl. 10:30. Rúnstykki með kaffinu og vínarbrauð frá Björnsbakaríi.