sælir félagar, opið í Skeljanesi í kvöld frá 20 – 22.
Kaffi á könnunni og kaldar kleinur .. rabbað um heima og geima, af nógu er að taka, aðalfundur yfirvofandi og um helgina er HFAPRS.
Sjá: HFAPRS frétt og HFAPRS kynning

sælir félagar, opið í Skeljanesi í kvöld frá 20 – 22.
Kaffi á könnunni og kaldar kleinur .. rabbað um heima og geima, af nógu er að taka, aðalfundur yfirvofandi og um helgina er HFAPRS.
Sjá: HFAPRS frétt og HFAPRS kynning

kaffi á könnunni og meðlæti.

úr myndasafni ÍRA, myndina tók TF3DC þegar rápstangir voru kynntar og prófaðar. Fleiri myndir sem Óskar, TF3DC, tók við sama tækifæri eru á http://www.ira.is/portfolio-item/rapstangir/. Myndin sýnir TF3KX brosandi nýbúinn að reisa 18 metra stöng og nokkrra amatöra koma aðvífandi til aðstoðar.
Innskráðir félagar í ÍRA geta lesið nýjustu amatörblöð Norðurlandanna hér á heimasíðunni. Komin eru tvö dönsk, tvo sænsk og eitt finnskt blað á þessu ári. Blöðin eru undir Félagið-Fréttablöð-Norðurlandablöð NRAU.

úr febrúarblaði OZ
Leyndardómur síunnar var leystur snarlega í gærkvöldi.
Ara, TF1A, sagðist svo frá: Þegar tíðnistilla á fjöltunnu síu sem stundum gengur undir nafninu duplexer eða stoppgegnhleypisía á íslensku er best að byrja á að stilla hverja tunnu fyrir sig. Eftir að búið er að tengja tunnurnar er sían fínstillt og síðan aftur eftir flutning.

TF1A, TF3MH
Leyndarmálið var hvaða hlutverki rörbútur með plaststöng ofarlega á hlið síunnar mundi hafa og í ljós kom að með því að draga plaststautinn inn og út breyttist tíðnibilið milli gegnhaupstíðnar og stopptíðnar. Þetta tíðnibil er venjulega 600 kHz á VHF amatörtíðnum.
Í fjögurratunnusíu eru tvær tunnur stilltar á gegnhlaup á móttökutíðni en stopp á senditíðni og öfugt á hinum tveimur. Gegnumdeyfinging reyndist vera um hálft desibel í hverri tunnu sem þýðir um desibel í hvorum armi, viðtöku og sendingu sem er mjög gott fyrir síur af þessari gerð. Samanlögð stoppdeyfing í hvorum armi reyndist vera um 66 dB sem er líka mjög gott.

Niðurstaðan var að þetta væri hágæðasía en sían kom frá endurvarpa sem Almannvarnir áttu fyrir mörgum, mörgum árum síðan á einhverju fjalli á Suðurlandi. Þá ráku Almannavarnir viðamikið viðvörunar VHF-kerfi í tíðnisviðinu 146 – 148 MHz á hættusvæðum Kötluhlaupa. Stefán Sæmundsson, TF3SE og Siggi Harðar, TF3WS sáu að mestu um uppsetningu og viðhald kerfisins og í fjarskiptamiðstöð Almannavarna voru nokkrir radíóamatörar kallaðir til ef hætta var á ferðum og á æfingar. Fjarskiptamiðstöðin var í kjallara lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu og gengu þær sögur að kjallararýmið væri kjarnorkusprengjuhelt. Haraldur Þórðarson, TF8Hp fyrrum formaður ÍRA var í forsvari fyrir miðstöðvarhóp amatöranna. Tengiliður í fjarskiptamiðstöð var Hafþór fyrrverandi yfirmaður hjá Landhelgisgæslu ríkisins. Þegar hætta var á ferðum var rýmimu lokað og innsiglað en þar var bæði nægur matarforði til vetrarsetu, svefnaðstaða og ekki skemmdi það fyrir að í starfslíði fjarskiftarýmisins voru nokkrar símastúlkur. Alla vega var það eftirsótt að vera kallaður til starfa í fjarskiftarýminu og ekki kvörtuðu menn yfir því að lokast þar inni í vetraróveðrum.

TF3HS, TF3EL, TF3JA og Þórhallur, þessi með heyrnartólin, starfsmaður Flugmálastjórnar fóru og settu upp fyrsta endurvarpa Almannavarna í Bláfjöll á miðjum áttunda áratug síðusta aldar.
Myndirnar hér á eftir voru teknar í Skeljanesi í gærkvöldi, 15. febrúar 2018.

FT8

TF3DC, TF1GW, TF3EK/P

TF8H

TF3T

TF3MH, TF2WIN, TF3PW, TF1A

TF3T, TF3AWS, TF3GB, TF3DT

TF3PW

FT8
Ari, TF1A, verður á opnu kvöldi í Skeljanesi og stillir sjaldgæfa síu sem á að nota við endurvarpa sem settur verður upp í Skeljanesi.


TF3OM var með skemmtilega kynningu á sínum amatörstöðvum, heimastöð í Garðabæ og sumarbústaðastöð austur í sveitum á opnu kvöldi í Skeljanesi.
Ágúst byrjaði á að segja okkur frá sínum fyrstu skrefum í amarörradíói. Hann tók prófið 1964, Morsepróf hjá Stefáni Arndal, TF3SA, og tækni- og reglugerðarpróf hjá þeim Ríkharði Sumarliðasyni, TF3RS og Einari Vídalín en Jón Eiríksson Radíóeftirlitinu kom í heimsókn til Ágústar og tók út stöðina áður en hann fékk leyfið. Fyrstu árin voru samskiptin innan lands nánast eingöngu á 3505 kHz bæði mors og tal við þá TF3EA, TF5TP, TF6GI, TF3DX, TF3KB, TF3CJ og TF3IC. TF3IC, Garðar Gíslason tannlæknir, gerði við tennurnar í Ágústi í meira en hálfa öld eða allt þar til Garðar hætti sínu ævistarfi 75 ára gamall á síðasta ári. Garðar var mjög virkur radíóamatör á sjöunda áratug síðustu aldar bæði á HF og VHF. Hann hafði VHF sambönd beint til Reykjavíkur bæði úr Stykkishólmi og af Suðurlandinu. Hann fann meðal annars út að víða á veginum frá Selfossi niður að Eyrarbakka var/er gott samband á 2 metrum í bæinn.
Ágúst getur fjarstýrt báðum sínum stöðvum og á myndinni sést framhlið TS-480 sumarbústaðastöðvarinnar. Fyrir norðan var TF5AD, Arngrímur Jóhannsson, tilbúinn að hafa samband á 80 metrunum en sambandið var ekki gott. Arngrímur er með stöð á safninu á Akureyri sem hann opnaði ekki fyrir löngu síðan.

TF3OM að kenna nýamatörnum TF3AWS handtökin á hljóðnemanum.
Ágúst notar Remoterig búnað til að stýra stöðinni í sveitinni og þarf þá enga tölvu né annað stýriforrit. Remoterig búnaðurinn er tengdur beint við internetið á báðum endum og hann tekur framhlið stöðvarinnar með sér hvert í heim sem er eins og sést á myndinni hér fyrir ofan sem tekin var í Skeljanesi. Stöðin í Garðabænum er IC-7300 og til að fjarstýra er stöðin tengd við tölvu. Í fjarendann er tölva með stjórnhugbúnaði frá ICOM eins og sjá má betur í kynningunni. Aðspurður sagði Ágúst að morssendingar virki vel frá fjarendum enda sé hugbúnaðurinn með tímastýringu og pakkaröðun sem að vísu seinki sendingu og móttöku en ekki meira en svo að það kemur ekki að sök.
Hann Gústi, TF3OM, ætlar að koma til okkar í kvöld og spjalla við okkur um amatösstöðvarnar sínar og sitthvað fleira varðandi amatörradíó. Tilvalið að spyrja Gústa um hvaðeina varðandi radíó, skilyrðin og áhrif sólarinnar. Gústi setti upp á þak húss við Hrefnugötuna, 10 metra háa álstöng veturinn 1966 – 67 og ég man eftir stönginni þar í slæmum vetrarveðrunum í febrúar 1967 fyrir 51 ári síðan.

Kaffi á könnunni og eitthvert góðgæti á borðum frá 20 – 22.
73 de TF3JA
Opið í Skeljanesi annað kvöld frá 20-22.

QSL kort
TF3OM, Ágúst H. Bjarnason kemur og segir okkur frá sinni amatörstöð og hvernig hann fjarstýrir stöð í Garðabæ og í sumarbústað austur í Tungum.
Kaffi og kleinur.
Námskeið til amatörprófs verður haldið á vegum ÍRA, félags Íslenskra radíóamatöra í vetur.
Kynning á námskeiðinu verður í félagsheimili ÍRA í Skeljanesi fimmtudagskvöldið 1. mars.
Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í námskeiðinu sendi tölvupóst á ira@ira.is eða tilkynni þátttöku í GSM síma 8633399 sem fyrst. Almennt námskeiðsgjaldgjald er kr. 20.000,- en kr. 14.000,- fyrir félaga í ÍRA. Kennt verður á mánudags- og miðvikudagskvöldum, þrjá tíma á hvoru kvöldi, og á laugardögum fyrir hádegi. Upplýsingar um námskeiðið og námsgögn eru á heimasíðu félagsins ira.is.