Það voru sannarlega stór tíðindi og gleðileg þegar TF4M hafði sambandi við HK1NA á 160m., 24. nóvember. Með því er TF4M komin með 200 lönd í logginn á 160m.

Við þau tímamót færir ÍRA, Þorvaldi Stefánssyni, TF4M innilegar heillaóskir með frábært afrek.

 

73

Guðmundur, TF3SG

Einn af félögum okkar, Steingrímur Sígfússon, TF3SZ er látin.  Steingrímur lést 3. desember og mun útför hans fara fram föstudaginn 13. desember frá Fossvogskappellu.  Fyrir hönd félaga okkar í ÍRA votta ég fjölskyldu Steingríms innilegar samúðarkveðjur og minnumst við hans og þeirra stunda sem hann var einn af félögum okkar.

 

Guðmundur, TF3SG

Nú eru fyrstu tölur komnar sem gefa til kynna árangur og niðurstöður í CQ WW CW 2013. Vitað er um 10 íslenskar stöðvar sem skiluðu inn radíódagbók til keppnisstjórnar.

 

Samkvæmt fyrstu tölum er TF3CW með hæsta skor í Evrópu og nr. 8 yfir heiminn í flokknum Single band 15m, Single op. high, not assisted með 922.266 stig.

 

TF3W með (TF3SA sem op) er nr. 11 í Evrópu og nr. 34 yfir heiminn í flokknum Single band 10m, Single op, high, not assisted með 333.004 stig.  Þessar tvær íslensku stöðvar bera af að þessu sinni hvað varðar árangur, en mjög ánægjulegt hefur verið að fylgjast með þáttöku annarra íslenskra stöðva í keppninni að þessu sinni.

 

Fyrir hönd ÍRA eru TF3CW og TF3SA færðar innlegar hamingjuóskir með frábæran árangur.

 

73

Guðmundur, TF3SG

Kortastofa ÍRA vill koma á framfæri við félagsmenn að síðasti skiladagur QSL korta fyrir áramótahreinsun er 2. janúar 2014.  Öll kort sem berast á árinu 2013  fram til 2. janúar 2014 verða send  utan strax eftir áramót.

73,

Matthíasar Hagvaag, TF3MHN

Sigurvin Jónsson hefur fengið úthlutað kallmerkinu TF3JV.

Stjórn ÍRA færir Sigurvin innilegar heillaóskir með nýtt kallmerki.

 

73

Guðmundur, TF3SG

Í  kvöld kl. 20.00 verður boðið upp á heitt kakó og piparkökur í tilefni þess að ekki er langt til jóla.  Ég hvet alla til þess að koma og eiga skemmtilega stund saman og ræða um málefni radíóamatöra.

Myndin tekin í gær fimmtudagskvöld 29. nóvember, Sigurbjörn, TF3SB skoðar gamla muni.

 

73

Guðmundur, TF3SG

Stefán Arndal, TF3SA settist fyrir framan tækin í CQ WW 2013 og sendi út á morsi kallmerki ÍRA, TF3W.  Stefán hafði 1.659 sambönd í flokknum Single-Op Non-Assisted Band 10m

Claimed Score er 330.382

Nokkrar TF stöðva tóku þátt í CQ WW CW 2013. Upplýsingar um árangur verða færðar inn jafn óðum og þær berast. Athyglisverð er frammistaða TF3EO sem sendi inn logg í flokknum Single Operator ROOKIE, radíóamatör sem nýlega hefur fengið leyfi.

 

Kallmerki
160m
80m
40m
20m
15m
10m
samt.
áætluð stig
TF3AM 69 101 102 84 85 85 526 229.632
TF3CW 2.853 922.266
TF3GB 5 318 787 138 46 1.292 588.752
TF3EO 31 66 172 1 271 59.655
TF3W 1.659 358.820
TF4M CHECKLOG
TF3VS
TF3SG 73 241 481 99 1 1 909 365.240
TF3DC
TF3JB CHECKLOG

 

 

73

Guðmundur de TF3SG

Á stjórnarfundi í dag var sú breyting samþykkt að formaður ÍRA Guðmundur Sveinsson, TF3SG verður jafnframt gjaldkeri félagsins.

73

Guðmundur de TF3SG

35. HF-útileikarnir hafa verið gerðir upp.

Samkvæmt innsendum dagbókum hafa minnst 10 kallmerki verið í loftinu um verslunarmannahelgina frá 5 kallsvæðum.

Þetta er 8 kallmerkjum og 2 kallsvæðum færra en í fyrra. Af þessum 10 skiluðu 7 inn dagbók. Af þeim voru 4 með blandaða starfrækslu á morsi og tali en 3 á tali eingöngu. Engin á morsi eingöngu. Sigurvegari leikanna er Guðmundur Sveinsson, TF3SG. Hlýtur hann að launum áletraðan skjöld með upplýsingum um afrekið. Hann tók þátt flokki ER-stöðva.

Í öðru sæti er Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, með blandaða starfrækslu á ER og RA. Þar sem starfrækslan var að mestu í ER flokki, 17 sambönd af 22, telst hanní ER flokki. Í þriðja sæti í flokki ER stöðva er Kristinn Andersen, TF3KX,  Í fjórða sæti í flokki ER stöðva er Ársæll Óskarsson, TF3AO, sem starfrækti TF2AO. Í fimmta sæti í flokki ER stöðva er Sæmundur Þorsteinsson, TF3UA. Í fyrsta sæti í flokki RA stöðva  er Bjarni Sverrisson, TF3GB og í öðru sæti í flokki RA stöðva er TF2LL/MM með starfrækslu á Grænlandshafi.

Nýjar dagbækur frá í fyrra eru frá TF3SG, TF3GB, TF2AO og TF2LL/MM

 

Samantekt vegna útileika 2013

Þáttakandi
Fj.ísl.kallm.
Kallsv.við
Kallsv.úr
Punktar
ER/RA margf.
Heildarstig
QSO
TF3SG 8 5 0 500 ER8 160.000 25
TF3DX 7 4 0 420 ER8/ER5 87.360 22
TF3GB 7 5 0 260 RA5 45.500 14
TF3KX 4 3 1 80 ER8 10.240 5
TF2AO 3 3 1 100 ER8 9.600 5
TF3UA 3 1 0 200 ER8 4.800 10
TF2LL/MM 2 2 0 40 RA5 800 2

 

Von mín er síðan sú að þátttakan verði ekki bara betri á næsta ári, heldur verði

menn duglegri að skila inn dagbókum. Það þarf ekki að reikna út stigin, áður en

dagbókinni er skilað og þetta má vera pár á blöðum. Við reynum að kreista út

upplýsingarnar eins og safa úr appelsínu.

Bjarni Sverrisson, TF3GB, sá um útreikningana og gerð viðurkenningarskjaldarins en

Brynjólfur Jónsson, TF5B sá um gerð viðurkenningarskjala fyrir þátttöku í leikunum.

 

F.h. dómnefndar,

Bjarni Sverrisson, TF3GB

Í kvöld fór fram uppgjör TF útileika 2013.  Þeir þátttakendur sem á staðnum voru fengu við það tækifæri afhent skjöl því til staðfestingar.  Efsti maður TF útileika 2013, Guðmundur Sveinsson TF3SG fékk við það tækifæri veglegan platta.  Nánar verður sagt frá uppgjöri TF útileika síðar.   Strax á eftir voru nýjum heiðursfélögum ÍRA, þeim Kristjáni Benediktssyni, TF3KB og Vilhjálmi Þ. Kjartanssyni, TF3DX afhent skjöl því til staðfestingar ásamt gullmerki félagsins.

TF3DX TF3GD og TF3KB

TF3DX og TF3KB