Nýr radíóviti, S55ZMS, er virkur á 40.570 MHz á 8 metra bandi.  Hann sendir út á morsi og PI4 stafrænni mótun.

Vitinn varð virkur 9. febrúar 2021. Sendiafl er 7W og loftnet er láréttur tvípóll. Loftnet vitans er staðsett á einum af loftnetsturnum keppnisstöðvarinnar S53M í norðausturhluta Slóveníu.

Þetta er fjórði radíóvitinn á 8 metrum, sbr. grein Guðmundar Sigurðssonar, TF3GZ um 40 MHz bandið sem birtist í 1. tbl. CQ TF 2021, bls. 41. http://www.ira.is/wp-content/uploads/2021/01/cqtf_35arg_2021_01tbl.pdf

Myndin er af loftnetsaðstöðu keppnisstöðvarinnar S53M í Slóveníu þar sem S55ZMS hefur aðstöðu. Ljósmynd: RTV Club S53M.

CQ WPX World Wide RTTY keppnin verður haldin helgina 13.-14. febrúar.

Þetta er tveggja sólarhringa keppni og markmiðið er að ná samböndum við eins margar aðrar stöðvar radíóamatöra um heiminn með eins mörgum mismunandi forskeytum og frekast er unnt á 3.5, 7, 14, 21 og 28 MHz.

Keppnin hefst á 00:00 á laugardag og lýkur kl. 23:59 á sunnudag.

Keppnisreglur: https://cqwpxrtty.com/rules.htm

Með tilvísan til nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tók gildi 8. febrúar og gildir til 3. mars n.k. og í ljósi þess að sóttvarnalæknir telur í lagi að ráðast í varfærnar tilslakanir, hefur stjórn ÍRA ákveðið, að félagsaðstaðan í Skeljanesi verði opnuð á ný fimmtudaginn 11. febrúar.

Grímuskylda verður í húsnæðinu ásamt þeirri kvöð að leitast verði við að halda 2 metra nálægðarmörkum. Aðgangur að herbergi QSL stofu á 2. hæð verður takmarkaður við 1 félaga í einu, en fjarskiptaherbergi verður lokað. Ekki verður boðið upp á veitingar. Félagsaðstaðan verður opin á venjulegum opnunartíma, kl. 20-22.

Rúmir 5 mánuðir eru síðan félagaðstaðan var síðast opin, þann 17. september (2020).

Verið verkomin í Skeljanes.

Stjórn ÍRA.

Keppnisgögn voru send fyrir þrjú íslensk kallmerki í morshluta CQ WW DX 160 metra keppninnar 2021 sem fram fór 29.-31. janúar s.l. Íslensku stöðvarnar skiptust á þrjá keppnisflokka:

TF1AM –  einmenningsflokkur , aðstoð, háafl.

TF3SG – einmenningsflokkur, háafl.         

TF3Y – einmenningsflokkur, lágafl.

Lokaniðurstöður verða birtar í ágústhefti CQ tímaritsins 2021.   

https://www.cq160.com/logs_received_cw.htm

Eftirfarandi upplýsingar komu fram í fjölmiðlum í dag, 4. febrúar:

„Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna að hann myndi senda minnisblað á heilbrigðisráðuneytið öðrum hvorum megin við helgi um vægar tilslakanir á sóttvarnalögum. Að öðru leyti vildi Þórólfur ekki tjá sig um með hvaða hætti þær tilslakanir yrðu“ Heimild: https://www.mbl.is/frettir/

Þessar upplýsingar vekja aukna bjartsýni um að hægt verði að opna félagsaðstöðuna í Skeljanesi á ný fimmtudaginn 18. febrúar n.k. Upplýsingarnar eru m.a. jákvæðar í ljósi umræðna sem fram fóru á stjórnarfundi í ÍRA 5. janúar s.l., þess efnis að athugað verði sérstaklega með opnun í Skeljanesi sem fyrst, jafnvel með einhverjum takmörkunum.

Stjórn ÍRA.

.

.

.

Úr fundarsal ÍRA (suðurhluta) í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Ljósmynd: TF3JB.

Nýlega voru teknar saman upplýsingar um TF kallmerki sem fengu skráningu á þyrpingu (e. cluster) vikuna 3.-9. janúar 2021. Til fróðleiks var gerð ný samantekt (VIRKNI-II) fyrir vikuna 25-31. janúar.

Alls voru 13 TF kallmerki skráð á þyrpingu nú samanborið við 14 kallmerki áður. Flestar stöðvar voru virkar á stafrænum mótunum (FT8, FT4), en einnig á morsi (CW) og tali (SSB). Stöðvarnar voru QRV á 12, 15, 17, 20, 40 og 80 metrum.

Kallmerki fá skráningu á þyrpingu, þegar erlendur leyfishafi haft samband og eða heyrir í viðkomandi TF kallmerki, auk þess sem hlustarar setja stundum inn skráningar. Þessa viku voru skilyrði ekkert sérstök á HF (frekar en fyrri vikuna). Upplýsingarnar eru fengnar á http://www.dxsummit.fi/#/  Fleiri sambærilegar síður eru í boði á netinu og sem skoða má til samanburðar.

Fyrst er skráð kallmerki, þá tegund(ir) útgeislunar og band/bönd sem kallmerki fær skráningu á:

TF1OL – CW/FT8 – 15, 17 og 20 metrar.
TF2CT – FT8 – 12 metrar.
TF2MSN – SSB/FT8 – 17 og 30 metrar.
TF3JB – CW/FT8 – 17, 20 og 30 metrar.
TF3LB – FT4 – 20 metrar.
TF3MH – FT8 – 30 metrar.
TF3PL – SSB – 20 metrar.
TF3PPN – FT8 – 15 metrar.
TF3T – SSB – 80 metrar.
TF4M – CW – 20 metrar.
TF5B – FT8 – 15, 17 og 30 metrar.
TF6JZ – SSB – 20 metrar.
TF8KY – SSB – 40 metrar.

Kallmerki sem voru í fyrri samantekt en eru ekki með að þessu sinni:  TF1A, TF1AM, TF1EIN, TF3AO, TF3IG og TF3VG.

Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.

Stjórn ÍRA.

Mathías Hagvaag TF3MH var QRV á HF vikuna 25.-31. janúar s.l. samkvæmt skráningu á þyrpingu. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar hann tók þátt í VHF/UHF leikum ÍRA 2020 (ásamt fleirum) frá félagsstöðinni TF3IRA i Skeljanesi. Ljósmynd: TF3JB.

Heimasíða félagsins er til uppfærslu um þessar mundir. Byrjað er að uppfæra  undirsíður sem halda utan um fundargerðir stjórnarfunda og aðalfunda á tímabilinu 2018-2020. Þar til vinnunni er lokið má finna gögnin samkvæmt neðangreindum upplýsingum. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

Stjórn ÍRA.

FUNDARGERÐIR STJÓRNARFUNDA 2018-2020:
Frá: 20.3.2018 til 16.1.2019; bls. 91-122 í Ársskýrslu 2018/19:
http://www.ira.is/wp-content/uploads/2019/02/20190216-arsskrysla-tf3jb.pdf

Frá: 26.2.2019 til 3.2.2020; bls. 125-155 í Ársskýrslu 2019/20:
http://www.ira.is/wp-content/uploads/2020/02/15022020-%C3%81rssk%C3%BDrsla-2019-20-pdf.pdf

10.3.2020; bls. 48-50 í 3. tbl. CQ TF 2020:
http://www.ira.is/wp-content/uploads/2020/06/cqtf_34arg_2020_03tbl.pdf

Frá: 27.5.2020 til 28.7.2020; bls. 47-51 í 4. tbl. CQ TF 2020:
http://www.ira.is/wp-content/uploads/2020/09/cqtf_34arg_2020_04tbl.pdf

Frá: 8.9.2020 til 24.11.2020; bls. 44-48 í 1. tbl. CQ TF 2020:
http://www.ira.is/wp-content/uploads/2021/01/cqtf_35arg_2021_01tbl.pdf

FUNDARGERÐIR AÐALFUNDA 2018-2020:
Aðalfundur ÍRA 2018; bls. 30-32 í 1. tbl. CQ TF 2018:
http://www.ira.is/wp-content/uploads/2018/05/cqtf_32arg_2018_01tbl.pdf

Aðalfundur ÍRA 2019; bls. 18-20 í 2. tbl. CQ TF 2019:
http://www.ira.is/wp-content/uploads/2019/03/cqtf_33arg_2019_02tbl.pdf

Aðalfundur ÍRA 2020; bls. 17-18 í 2. tbl. CQ TF 2020:
http://www.ira.is/wp-content/uploads/2020/03/cqtf_34arg_2020_02tbl.pdf

Myndin var tekin á aðalfundi ÍRA 2020 þann 15. febrúar á Radisson BLU Hótel Sögu í Reykjavík. Alls mættu 42 félagsmenn á fundinn. Ljósmynd: Jón Svavarsson TF3JON.

.

.

Georg Kulp, TF3GZ gerði góða ferð í Bláfjöll í dag, 29. janúar.

Verkefnið var að hækka og snúa loftneti VHF endurvarpans TF3RPB, til að reyna að losna við truflanir sem hafa komið inn á stöðina að undanförnu, en mikið RF svið er á fjallinu og þegar ísing er mikil ber meira á truflunum.

Loftnetið var hækkað u.þ.b. um ¼ λ og gerð breyting á bestri stefnu, ca. úr norðaustri í austur.

Georg var ánægður með ferðina og sagði að nú þurfi félagarnir að vera duglegir að prófa endurvarpann til að staðfesta að truflanir hafi minnkað/horfið og verkefnið hafi tekist.

Bestu þakkir til Georgs fyrir ferð á fjallið um hávetur.

Stjórn ÍRA.

.

.

.

.

.

Loftnetaskógurinn í Bláfjöllum er í 690 metra hæð yfir sjávarmáli. Loftnetið fyrir VHF endurvarpann TF3RPB er lengst til hægri á myndinni. Það er frá Kathrein; tveir lóðréttir „folded“ tvípólar sem eru fasaðir saman. Georg þurfti að berja ísinguna af netinu, en sjá má hvernig það var aðkomu á minni ljósmyndinni. Ljósmyndir: Georg Kulp TF3GZ.

Ágætu félagsmenn!

Mér er ánægja að tilkynna um útkomu 1. tbl. CQ TF 2021 sem nú kemur út á stafrænu formi hér á heimasíðunni.

73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF.

Vefslóð á nýja blaðið: http://www.ira.is/wp-content/uploads/2021/01/cqtf_35arg_2021_01tbl.pdf

CQ WW DX morskeppnin 2021 fer fram um helgina. Keppnin hefst á föstudag 29. janúar kl. 22:00 og lýkur á sunnudag 31. janúar kl. 22:00. Markmiðið er að ná eins mörgum samböndum og unnt er við aðrar stöðvar radíóamatöra um allan heim á keppnistímanum.

QSO punktar. QSO við TF stöðvar 2 punktar; innan Evrópu 5 punktar; utan Evrópu 10 punktar og við /MM stöðvar 5 punktar.

Margfaldarar:

  • Einingar á DXCC lista.
  • Lönd á WAE lista: GM (Hjaltlandseyjar), IG9/IH9 (Lampedusa og Pantelleria eyjar), IT, JW (Bjarnareyja), TA1 (Evrópuhluti Tyrklands) og 4U1VIC.
  • 48 ríki Bandaríkjanna (e. contiguous states) og „District of Columbia (DC)“.
  • 14 fylki Kanada: VO1, VO2, NB, NS, PEI (VY2), VE2, VE3, VE4, VE5, VE6, VE7, VE8 (NWT), VY1 (YUK), VY0.

Leyfilegt tíðnisvið í keppninni á IARU Svæði 1 (okkar svæði) er 1810-2000 kHz. Ath. að G-leyfishafar sem ætla að vinna á 1850-1900 kHz á fullu afli þurfa að hafa sótt um tíðni- og aflheimildir til PFS (sbr. fyrri tilkynningu dags. 23. janúar s.l.). Keppnisreglur: https://www.cqww.com/

Með ósk um gott gengi!

Stjórn ÍRA.