Grunnnámskeið með Arduino örtölvur verður haldið í Skeljanesi laugardaginn 6. apríl. Um er að ræða sýnikennslu og verkefni fyrir byrjendur. Leiðbeinandi er Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS. Námskeiðið hefst kl. 10:00.
Miðað er við að þátttakendur komi með eigin Arduino örtölvur (er ekki skilyrði) og vinni hagnýt verkefni sem nýtast í amatör radíói. Menn þurfa helst að hafa eigin fartölvu þótt þeir komi ekki með Arduino.
Félagsmenn eru beðnir að senda póst til félagsins á póstfangið ira hjá ira.is þar sem eftirfarandi kemur fram:
Nafn þátttakanda
Kemur viðkomandi með sína eigin Arduino örtölvu með sér (ekki skilyrði)
Hefur viðkomandi einhverja reynslu af arduino örtölvum
Hefur viðkomandi einhverja reynslu af forritun yfirleitt
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn að nýta þetta spennandi tækifæri. Vandaðar kaffiveitingar.
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn 4. apríl kl. 20:30. Þá mætir Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, í Skeljanes með erindið „Radíótækni í árdaga.“
Vilhjálmur segir sjálfur: „Hvernig var hægt að smíða senda
og viðtæki áður lampar og nórar (transistorar) voru fundnir upp? Segja má að
upphaflegu radíótækin hafi verið vélræn (mekanísk) í grunninn, fremur en byggð
á rafeindatækni. Neistasendar voru alls ráðandi, sjá mynd. Neistasendir verður ræstur,
þó ekki út í loftnet! Notkun þeirra til fjarskipta var bönnuð fyrir löngu“.
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Veglegar
kaffiveitingar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-04-02 08:59:062019-04-02 09:00:11TF3DX Í SKELJANESI: RADÍÓTÆKNI Í ÁRDAGA
Mér er ánægja að tilkynna um útkomu 2. tölublaðs CQ TF 2019, sem nú kemur út á stafrænu formi hér á heimasíðunni. Margir hafa lagt hönd á plóg og mörgum ber að þakka, en sér í lagi TF3VS sem annaðist umbrotsvinnu. CQ TF er að þessu sinni 40 blaðsíður að stærð. 73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Ölvir Sveinssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngÖlvir Sveinsson2019-03-31 20:39:102019-03-31 22:32:12Nýtt CQ TF er komið út
Jónas Bjarnason TF3JB mætti í sófaumræður sunnudaginn 31. mars kl. 10:30 með erindið: „DX sambönd og hvernig best og fljótvirk-ast er staðið að öflun QSL korta“.
Fyrst var farið yfir nokkrar glærur í myndvarpanum, m.a. (1)
hvers vegna við notum QSL kort; (2) hvar menn „ná“ DX‘inum helst; (3) mikilvægi
þess að QSO sé örugglega í log; (4) hvaða aðferðum má beita til að fá QSL kort
fljótt; (5) umfjöllun um eigið QSL kort; og (6) umfjöllun um að erfiðara getur
verið að fá QSL kort frá sumum löndum en öðrum og fl.
Í sófasettinu var síðan rætt um hinar ýmsu aðferðir sem hægt er að beita til að ná „þeim feita“ og rætt um DX‘inn út frá QSO’um við einstaklinga, klúbbstöðvar og DX-leiðangra. Farið yfir fyrirbærin DIRECT kort, QSL MANAGER‘A, OQRS aðferð og kosti þess að gerast styrktaraðili DX-leiðangra.
Alls mættu 10 félagar og 1 gestur þennan veðurmilda sunnudagsmorgun í Skeljanes. Umræðum lauk formlega upp úr kl. 12:30 en umfjöllunarefnið var „heitt“ þannig að síðustu menn ræddu málin áfram fram undir kl. 14. TF3JB fékk að lokum gott klapp og lofaði að gera grein fyrir umfjöllunarefninu í CQ TF.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-03-31 19:45:232019-03-31 19:55:30SÓFAUMRÆÐUR Í SKELJANESI UM DX & QSL KORT
Jónas Bjarnason TF3JB mætir í sófaumræður sunnudaginn 31. mars kl. 10:30 og er yfirskriftin:
„DX sambönd og hvernig best og fljótvirkast er staðið að
öflun QSL korta“.
Húsið verður opnað kl. 10 árdegis. Miðað er við að dagskrá verði tæmd á hádegi. Kaffi og kaffibrauð frá Björnsbakaríi.
Um sunnudagsopnanir. Sunnudagsopnanir hafa verið skýrðar á þann veg að um sé að ræða fyrirkomulag menntandi umræðu á messutíma sem er hugsuð afslöppuð, þ.e. þar sem menn sitja með kaffibolla í leðursófasettinu og ræða amatör radíó. Tiltekinn leyfishafi sem hefur staðgóða þekkingu á viðkomandi umræðuefni leiðir umfjöllun og svarar spurningum.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætti í Skeljanes 28. mars og
flutti erindi um endurvarpa.
Ari hefur hefur góða þekkingu á umfjöllunarefninu og veitti okkur áhugaverða innsýn í þennan tækniheim sem gerir okkur kleift að nota VHF/UHF stöðvar til sambanda yfir langar vegalengdir innanlands.
Hann útskýrði vel hvernig samtenging endurvarpa á VHF og UHF gerir leyfishöfum kleift að hafa krossband sambönd sem eykur mjög notagildi og útbreiðslu, t.d. þegar notaðar eru handstöðvar (jafnvel) búnar mjög litlu afli. Ari kynnti þá 5 VHF endurvarpa og 2 UHF endurvarpa sem eru í rekstri. Þeir eru allir nema einn fyrir FM mótun, en einn er fyrir starræna tegund útgeislunar (D-STAR).
Eftir kaffihlé tók Erik Finskas, TF3EY (OH2LAK) við og flutti áhugavert erindi um DMR (e. Digital Mobile Radio), sem rutt hefur sér til rúms síðustu ár, en yfir 3000 DMR endurvarpar hafa þegar verið settir upp fyrir radíóamatöra í 50 þjóðlöndum.
Erindi Eriks má skoða í heild á þessari vefslóð: http://dy.fi/vof
Stjórn ÍRA þakkar þeim Ara og Erik fyrir áhugaverð erindi. Þrátt fyrir snjófjúk og vindasamt veður, mættu 27 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-03-29 14:52:332019-03-29 14:59:20TF1A og TF3EY kynntu endurvarpa 28. mars
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn
28. mars kl. 20:30. Þá mætir Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A í Skeljanes með
erindið: „Endurvarpar“.
Ari hefur mikla reynslu af uppsetningu, viðhaldi og notkun
endurvarpa. Hann hefur árum saman unnið við endurvarpa félagsins, fyrst í
félagi við Sigurð Harðarson, TF3WS og síðar einsamall og með Guðmundi
Sigurðssyni, TF3GS þegar Ólafur B. Ólafsson, TF3ML, keypti endurvarpa til
notkunar á 2 m og 70 cm. Þá kom hann að uppsetningu radíóvita Óla á Mýrum í
Borgarfirði, sem teknir voru í notkun í fyrra á 50 og 70 MHz.
Ari mun skýra hvernig endurvarpi vinnur. Hann mun t.d. svara
spurningunni hvers vegna tíðniafsetning í sendingu inn á endurvarpa á 2 m er
aðeins 600 Hz samanborið við 5 MHz á 70 cm.
Í dag eru 5 FM endurvarpar fyrir radíóamatöra í rekstri
hérlendis á 2 m, 2 á 70 cm; annar á FM og hinn á starrænni tegund útgeislunar
(D-STAR), auk 4 stafvarpa með internetgáttir og 2 radíóvita Á 50 MHz og 70 MHz.
Ari mun jafnframt upplýsa um fyrirhugaða uppsetningu DMR endurvarpa á 2 m.
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Veglegar
kaffiveitingar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-03-26 10:04:522019-03-28 22:50:08ERINDI TF1A UM ENDURVARPA VERÐUR 28. MARS
Ágúst H. Bjarnason, TF3OM, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 21. mars og flutti erindið „Radíóamatör í meira en 50 ár, reynslusögur úr áhugamálinu frá barnsaldri…“.
Ágústi tókst mjög vel upp og sagði skemmtilega frá áhugamálinu
sem hófst þegar á unga aldri. Hann lýsir fyrstu kynnum sínum eftirfarandi: „Fyrstu
minningarnar frá því er ég sá rafmagn í fyrsta skipti eru þegar ég skreið að
veggtengli í borðstofunni sem tengdur var við brauðrist. Ég var með stóran gosflöskuupptakara
í hendi og setti hann milli pinnanna sem glitti í. Bang! Svakalegur bláhvítur
blossi, enda öryggið 16 amper eða kannski rúmlega það, því á þessum tíma voru
sprungin öryggi lagfærð heima. Flestir kunnu það. Sjálfsagt hef ég rekið upp
öskur, en þetta vakti áhuga minn á rafmagni sem lét mig ekki í friði næstu
áratugina. Síðan er skarð í upptakaranum þar sem hann komst í námunda við
rafmagnið!“.
Hann fékk leyfisbréfið 8. ágúst 1964 og fékk þar með
morsleyfi, talleyfi og smíðaleyfi frá Póst- og símamálastofnun, undirritað af
Jóni Skúlasyni Póst- og símamálastjóra. Upp frá því varð hann virkur í ÍRA, tók
m.a. þátt í refaveiðum, gerðist ritstjóri CQ TF og fleira.
Fyrsta QSO‘ið var við TF3KB á morsi á 40 metrum þann
11.8.1964 kl. 19:45, en Ágúst sýndi mynd úr upphaflegu fjarskiptadagbókinni frá
þeim tíma (sem hann á allar enn). Síðan fylgdu sambönd m.a. við TF5TP, TF3CJ,
TF3DX, TF3IC og fleiri íslenska leyfishafa og að sjálfsögðu DX-sambönd.
Ágúst keypti notaða Heathkit HW-32A stöð þegar hann flutti til Svíþjóðar til náms 1969-1971 og var þá frjáls með að tala til Íslands eftir því sem skilyrði leyfðu.
Margir taka sér hlé frá áhugamálinu og hann er einn þeirra. Ágúst sagði, að þegar vinnan væri á svipuðum nótum og áhugamálið … þá gengi það aldrei til lengdar. Hann tók aftur til til við amatör radíó fyrir 2 árum (2017) og segist afar ánægður með það í dag.
Mikil ánægja var með erindi Ágústs. Að sögn eins viðstaddra „…hefði mátt heyra saumnál detta …“ slíkur var áhugi og athygli fundarmanna. Um kl. 22:30 var Ágústi þakkað með veglegu lófaklappi fyrir vel undirbúið og vel flutt erindi. Líflegar umræður héldu þó áfram og fram yfir kl. 23. Mæting var góð í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld, alls 25 félagar og 1 gestur. Bestu þakkir til Ágústs H. Bjarnasonar, TF3OM.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-03-22 21:04:222019-03-28 22:51:14TF3OM: 55 ÁR LÍÐA FLJÓTT SEM RADÍÓAMATÖR
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn 21. mars kl. 20:30. Þá mætir Ágúst H. Bjarnason, TF3OM, í Skeljanes með erindið „Radíóamatör í meir en 50 ár, reynslusögur úr áhugamálinu frá barnsaldri…“.
Ágúst er handhafi leyfisbréfs nr. 45 og hefur verið radíóamatör í rúmlega hálfa öld. Hann hefur frá mörgu forvitnilegu að segja frá þessum ferli. Hann hefur m.a. gegnt trúnaðarstörfum fyrir ÍRA, tekið þátt í refaveiðum, verið ritstjóri CQ TF og skrifað í blaðið.
Hann var QRV frá Lundi í Svíþjóð á námsárunum (1969-1971) og svo aftur eftir að hann flutti heim. Þess má geta til fróðleiks, að Ágúst á tvo bræður sem einnig eru radíóamatörar, það eru þeir Kjartan (TF3BJ) og Þórarinn (TF3TZ) en allir þrír eru menntaðir rafmagnsverkfræðingar.
Eftir 55 ár í áhugamálinu er fjarskiptaherbergi hans í dag búið nýjustu tækni, s.s. SDR sendi-/viðtæki og tækni til fjarstýringar tækjum í sumarhúsi hans á Suðurlandi.
Stjórn ÍRA hvetur félaga til að mæta tímanlega. Veglegar
kaffiveitingar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-03-18 15:19:022019-03-28 22:52:32LEYFISHAFI Í 55 ÁR, ERINDI TF3OM ER 21. MARS
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-03-17 13:08:062019-03-28 22:55:04EFNI Í CQ TF, FJÓRIR DAGAR TIL STEFNU
Hraðnámskeiðið „Fyrstu skrefin, farið í loftið með
leiðbeinanda“ byrjaði í morgun, 16. mars kl. 10:15.
Námskeiðið er hugsað til að aðstoða menn við að byrja í
loftinu – hvort heldur þeir eru með nýtt eða nýlegt leyfisbréf eða eldri
leyfishafar. Hugmyndin er að skapa andrúmsloft sem er afslappað þar sem menn
geta spurt spurninga og prófað sig áfram með reyndum leiðbeinanda til að öðlast
öryggi í að fara í loftið.
Létt var yfir mönnum þegar tíðindamann bar að garði í Skeljanesi í morgun, rétt fyrir kl. 10. Þá voru þátttakendur í kaffi við stóra borðið á meðan beðið var eftir einum til viðbótar. Að sögn Óskars Sverrissonar, TF3DC, leiðbeinanda, er námskeiðið fullbókað, en miðað er við mest fjóra þátttakendur hverju sinni til að það nýtist sem best.
Neðri ljósmyndin var tekin í fjarskiptaherberginu þegar tíðindamaður kom á ný í hús um kl. 13. Þá var farið í loftið á morsi og FT8.
Aðspurður sagði Óskar að námskeiðið yrði aftur í boði
fljótlega, enda mikill áhugi á meðal félagsmanna.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-03-16 11:17:302019-03-17 21:11:28FULLBÓKAÐ Á HRAÐNÁMSKEIÐ ÍRA Í SKELJANESI
Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 14. mars og flutti erindið “Logger32 dagbókarforritið; auknar vinsældir – nýir möguleikar”.
Hann kynnti forritið og fór yfir uppsetningu þess. Hann sýndi vel hve einfalt og öflugt það er, jafnframt því að vera aðgengilegt fyrir venjulegan leyfishafa að laga að eigin þörfum – án þess að þurfa að vera sérfræðingur í forritun eða tölvumálum.
Það var mál manna að Logger32 væri í raun meira en sérhæft dagbókarforrit þar sem m.a. er hægt að stýra fjarskiptum beint frá forritinu, auk þess sem það býður upp á fjölda möguleika í mismunandi útfærslum. Vilhjálmur sýndi m.a. með dæmum hvernig hann notar forritið sjálfur og tengdist heimastöð sinni yfir netið í því skyni, sem var mjög fróðlegt.
Hann fór yfir getu Logger32 hvað varðar stafrænar tegundir útgeislunar, en færsla í fjarskiptadagbók er viðstöðulaus og án vandræða sem gjarnan fylgja öðrum forritum. Fyrir marga er jafnframt kostur að Logger32 er á íslensku og er forritið boðið ókeypis á netinu til íslenskra radíóamatöra. Það var Vilhjálmur sem þýddi forritið.
Eftir kaffihlé tók Vilhjálmur við fyrirspurnum frá áhugasömum fundarmönnum og héldu menn áfram að spjalla framundir kl. 22:30 þegar honum var þakkað fyrir fróðlegt og skemmtilega flutt erindi með veglegu lófaklappi. Alls mættu 22 félagsmenn og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld.
TF3VS: NÁMSKEIÐ UM ARDUINO ÖRTÖLVUR
Grunnnámskeið með Arduino örtölvur verður haldið í Skeljanesi laugardaginn 6. apríl. Um er að ræða sýnikennslu og verkefni fyrir byrjendur. Leiðbeinandi er Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS. Námskeiðið hefst kl. 10:00.
Miðað er við að þátttakendur komi með eigin Arduino örtölvur (er ekki skilyrði) og vinni hagnýt verkefni sem nýtast í amatör radíói. Menn þurfa helst að hafa eigin fartölvu þótt þeir komi ekki með Arduino.
Félagsmenn eru beðnir að senda póst til félagsins á póstfangið ira hjá ira.is þar sem eftirfarandi kemur fram:
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn að nýta þetta spennandi tækifæri. Vandaðar kaffiveitingar.
TF3DX Í SKELJANESI: RADÍÓTÆKNI Í ÁRDAGA
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn 4. apríl kl. 20:30. Þá mætir Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, í Skeljanes með erindið „Radíótækni í árdaga.“
Vilhjálmur segir sjálfur: „Hvernig var hægt að smíða senda og viðtæki áður lampar og nórar (transistorar) voru fundnir upp? Segja má að upphaflegu radíótækin hafi verið vélræn (mekanísk) í grunninn, fremur en byggð á rafeindatækni. Neistasendar voru alls ráðandi, sjá mynd. Neistasendir verður ræstur, þó ekki út í loftnet! Notkun þeirra til fjarskipta var bönnuð fyrir löngu“.
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Veglegar kaffiveitingar.
Nýtt CQ TF er komið út
Ágætu félagsmenn!
Mér er ánægja að tilkynna um útkomu 2. tölublaðs CQ TF 2019, sem nú kemur út á stafrænu formi hér á heimasíðunni.
Margir hafa lagt hönd á plóg og mörgum ber að þakka, en sér í lagi TF3VS sem annaðist umbrotsvinnu.
CQ TF er að þessu sinni 40 blaðsíður að stærð.
73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF.
Hér fyrir neðan má finna hlekk á blaðið.
http://www.ira.is/wp-content/uploads/2019/03/cqtf_33arg_2019_02tbl.pdf
SÓFAUMRÆÐUR Í SKELJANESI UM DX & QSL KORT
Jónas Bjarnason TF3JB mætti í sófaumræður sunnudaginn 31. mars kl. 10:30 með erindið: „DX sambönd og hvernig best og fljótvirk-ast er staðið að öflun QSL korta“.
Fyrst var farið yfir nokkrar glærur í myndvarpanum, m.a. (1) hvers vegna við notum QSL kort; (2) hvar menn „ná“ DX‘inum helst; (3) mikilvægi þess að QSO sé örugglega í log; (4) hvaða aðferðum má beita til að fá QSL kort fljótt; (5) umfjöllun um eigið QSL kort; og (6) umfjöllun um að erfiðara getur verið að fá QSL kort frá sumum löndum en öðrum og fl.
Í sófasettinu var síðan rætt um hinar ýmsu aðferðir sem hægt er að beita til að ná „þeim feita“ og rætt um DX‘inn út frá QSO’um við einstaklinga, klúbbstöðvar og DX-leiðangra. Farið yfir fyrirbærin DIRECT kort, QSL MANAGER‘A, OQRS aðferð og kosti þess að gerast styrktaraðili DX-leiðangra.
Alls mættu 10 félagar og 1 gestur þennan veðurmilda sunnudagsmorgun í Skeljanes. Umræðum lauk formlega upp úr kl. 12:30 en umfjöllunarefnið var „heitt“ þannig að síðustu menn ræddu málin áfram fram undir kl. 14. TF3JB fékk að lokum gott klapp og lofaði að gera grein fyrir umfjöllunarefninu í CQ TF.
Sunnudagur: Sófaumræður í Skeljanesi
Jónas Bjarnason TF3JB mætir í sófaumræður sunnudaginn 31. mars kl. 10:30 og er yfirskriftin:
„DX sambönd og hvernig best og fljótvirkast er staðið að öflun QSL korta“.
Húsið verður opnað kl. 10 árdegis. Miðað er við að dagskrá verði tæmd á hádegi. Kaffi og kaffibrauð frá Björnsbakaríi.
Um sunnudagsopnanir.
Sunnudagsopnanir hafa verið skýrðar á þann veg að um sé að ræða fyrirkomulag menntandi umræðu á messutíma sem er hugsuð afslöppuð, þ.e. þar sem menn sitja með kaffibolla í leðursófasettinu og ræða amatör radíó. Tiltekinn leyfishafi sem hefur staðgóða þekkingu á viðkomandi umræðuefni leiðir umfjöllun og svarar spurningum.
TF1A og TF3EY kynntu endurvarpa 28. mars
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætti í Skeljanes 28. mars og flutti erindi um endurvarpa.
Ari hefur hefur góða þekkingu á umfjöllunarefninu og veitti okkur áhugaverða innsýn í þennan tækniheim sem gerir okkur kleift að nota VHF/UHF stöðvar til sambanda yfir langar vegalengdir innanlands.
Hann útskýrði vel hvernig samtenging endurvarpa á VHF og UHF gerir leyfishöfum kleift að hafa krossband sambönd sem eykur mjög notagildi og útbreiðslu, t.d. þegar notaðar eru handstöðvar (jafnvel) búnar mjög litlu afli. Ari kynnti þá 5 VHF endurvarpa og 2 UHF endurvarpa sem eru í rekstri. Þeir eru allir nema einn fyrir FM mótun, en einn er fyrir starræna tegund útgeislunar (D-STAR).
Eftir kaffihlé tók Erik Finskas, TF3EY (OH2LAK) við og flutti áhugavert erindi um DMR (e. Digital Mobile Radio), sem rutt hefur sér til rúms síðustu ár, en yfir 3000 DMR endurvarpar hafa þegar verið settir upp fyrir radíóamatöra í 50 þjóðlöndum.
Erindi Eriks má skoða í heild á þessari vefslóð: http://dy.fi/vof
Stjórn ÍRA þakkar þeim Ara og Erik fyrir áhugaverð erindi. Þrátt fyrir snjófjúk og vindasamt veður, mættu 27 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld.
ERINDI TF1A UM ENDURVARPA VERÐUR 28. MARS
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn 28. mars kl. 20:30. Þá mætir Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A í Skeljanes með erindið: „Endurvarpar“.
Ari hefur mikla reynslu af uppsetningu, viðhaldi og notkun endurvarpa. Hann hefur árum saman unnið við endurvarpa félagsins, fyrst í félagi við Sigurð Harðarson, TF3WS og síðar einsamall og með Guðmundi Sigurðssyni, TF3GS þegar Ólafur B. Ólafsson, TF3ML, keypti endurvarpa til notkunar á 2 m og 70 cm. Þá kom hann að uppsetningu radíóvita Óla á Mýrum í Borgarfirði, sem teknir voru í notkun í fyrra á 50 og 70 MHz.
Ari mun skýra hvernig endurvarpi vinnur. Hann mun t.d. svara spurningunni hvers vegna tíðniafsetning í sendingu inn á endurvarpa á 2 m er aðeins 600 Hz samanborið við 5 MHz á 70 cm.
Í dag eru 5 FM endurvarpar fyrir radíóamatöra í rekstri hérlendis á 2 m, 2 á 70 cm; annar á FM og hinn á starrænni tegund útgeislunar (D-STAR), auk 4 stafvarpa með internetgáttir og 2 radíóvita Á 50 MHz og 70 MHz. Ari mun jafnframt upplýsa um fyrirhugaða uppsetningu DMR endurvarpa á 2 m.
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Veglegar kaffiveitingar.
TF3OM: 55 ÁR LÍÐA FLJÓTT SEM RADÍÓAMATÖR
Ágúst H. Bjarnason, TF3OM, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 21. mars og flutti erindið „Radíóamatör í meira en 50 ár, reynslusögur úr áhugamálinu frá barnsaldri…“.
Ágústi tókst mjög vel upp og sagði skemmtilega frá áhugamálinu sem hófst þegar á unga aldri. Hann lýsir fyrstu kynnum sínum eftirfarandi: „Fyrstu minningarnar frá því er ég sá rafmagn í fyrsta skipti eru þegar ég skreið að veggtengli í borðstofunni sem tengdur var við brauðrist. Ég var með stóran gosflöskuupptakara í hendi og setti hann milli pinnanna sem glitti í. Bang! Svakalegur bláhvítur blossi, enda öryggið 16 amper eða kannski rúmlega það, því á þessum tíma voru sprungin öryggi lagfærð heima. Flestir kunnu það. Sjálfsagt hef ég rekið upp öskur, en þetta vakti áhuga minn á rafmagni sem lét mig ekki í friði næstu áratugina. Síðan er skarð í upptakaranum þar sem hann komst í námunda við rafmagnið!“.
Hann fékk leyfisbréfið 8. ágúst 1964 og fékk þar með morsleyfi, talleyfi og smíðaleyfi frá Póst- og símamálastofnun, undirritað af Jóni Skúlasyni Póst- og símamálastjóra. Upp frá því varð hann virkur í ÍRA, tók m.a. þátt í refaveiðum, gerðist ritstjóri CQ TF og fleira.
Fyrsta QSO‘ið var við TF3KB á morsi á 40 metrum þann 11.8.1964 kl. 19:45, en Ágúst sýndi mynd úr upphaflegu fjarskiptadagbókinni frá þeim tíma (sem hann á allar enn). Síðan fylgdu sambönd m.a. við TF5TP, TF3CJ, TF3DX, TF3IC og fleiri íslenska leyfishafa og að sjálfsögðu DX-sambönd.
Ágúst keypti notaða Heathkit HW-32A stöð þegar hann flutti til Svíþjóðar til náms 1969-1971 og var þá frjáls með að tala til Íslands eftir því sem skilyrði leyfðu.
Margir taka sér hlé frá áhugamálinu og hann er einn þeirra. Ágúst sagði, að þegar vinnan væri á svipuðum nótum og áhugamálið … þá gengi það aldrei til lengdar. Hann tók aftur til til við amatör radíó fyrir 2 árum (2017) og segist afar ánægður með það í dag.
Mikil ánægja var með erindi Ágústs. Að sögn eins viðstaddra „…hefði mátt heyra saumnál detta …“ slíkur var áhugi og athygli fundarmanna. Um kl. 22:30 var Ágústi þakkað með veglegu lófaklappi fyrir vel undirbúið og vel flutt erindi. Líflegar umræður héldu þó áfram og fram yfir kl. 23. Mæting var góð í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld, alls 25 félagar og 1 gestur. Bestu þakkir til Ágústs H. Bjarnasonar, TF3OM.
LEYFISHAFI Í 55 ÁR, ERINDI TF3OM ER 21. MARS
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn 21. mars kl. 20:30. Þá mætir Ágúst H. Bjarnason, TF3OM, í Skeljanes með erindið „Radíóamatör í meir en 50 ár, reynslusögur úr áhugamálinu frá barnsaldri…“.
Ágúst er handhafi leyfisbréfs nr. 45 og hefur verið radíóamatör í rúmlega hálfa öld. Hann hefur frá mörgu forvitnilegu að segja frá þessum ferli. Hann hefur m.a. gegnt trúnaðarstörfum fyrir ÍRA, tekið þátt í refaveiðum, verið ritstjóri CQ TF og skrifað í blaðið.
Hann var QRV frá Lundi í Svíþjóð á námsárunum (1969-1971) og svo aftur eftir að hann flutti heim. Þess má geta til fróðleiks, að Ágúst á tvo bræður sem einnig eru radíóamatörar, það eru þeir Kjartan (TF3BJ) og Þórarinn (TF3TZ) en allir þrír eru menntaðir rafmagnsverkfræðingar.
Eftir 55 ár í áhugamálinu er fjarskiptaherbergi hans í dag búið nýjustu tækni, s.s. SDR sendi-/viðtæki og tækni til fjarstýringar tækjum í sumarhúsi hans á Suðurlandi.
Stjórn ÍRA hvetur félaga til að mæta tímanlega. Veglegar kaffiveitingar.
EFNI Í CQ TF, FJÓRIR DAGAR TIL STEFNU
Skilafrestur á efni í CQ TF rennur út á miðvikudag, 20. mars.
Allt efni um áhugamálið er vel þegið í blaðið – frásagnir, ljósmyndir, eða jafnvel aðeins punktar og ábendingar um efni sem vinna má úr.
Netfang ritstjóra: tf3sb@ox.is
73 – Sigurbjörn Þór Bjarnason, TF3SB, ritstjóri CQ TF.
FULLBÓKAÐ Á HRAÐNÁMSKEIÐ ÍRA Í SKELJANESI
Hraðnámskeiðið „Fyrstu skrefin, farið í loftið með leiðbeinanda“ byrjaði í morgun, 16. mars kl. 10:15.
Námskeiðið er hugsað til að aðstoða menn við að byrja í loftinu – hvort heldur þeir eru með nýtt eða nýlegt leyfisbréf eða eldri leyfishafar. Hugmyndin er að skapa andrúmsloft sem er afslappað þar sem menn geta spurt spurninga og prófað sig áfram með reyndum leiðbeinanda til að öðlast öryggi í að fara í loftið.
Létt var yfir mönnum þegar tíðindamann bar að garði í Skeljanesi í morgun, rétt fyrir kl. 10. Þá voru þátttakendur í kaffi við stóra borðið á meðan beðið var eftir einum til viðbótar. Að sögn Óskars Sverrissonar, TF3DC, leiðbeinanda, er námskeiðið fullbókað, en miðað er við mest fjóra þátttakendur hverju sinni til að það nýtist sem best.
Neðri ljósmyndin var tekin í fjarskiptaherberginu þegar tíðindamaður kom á ný í hús um kl. 13. Þá var farið í loftið á morsi og FT8.
Aðspurður sagði Óskar að námskeiðið yrði aftur í boði fljótlega, enda mikill áhugi á meðal félagsmanna.
TF3VS KYNNTI LOGGER32 DAGBÓKARFORRITIÐ