,

SKELJANES Á SUNNUDAG 5. NÓVEMBER

Ný vetrardagskrá ÍRA heldur áfram.

Næsti viðburður verður í boði 5. nóvember kl. 11:00; svokallaður „sófasunnudagur á messutíma“. Yngvi Harðarson, TF3Y verður með umræðuþemað: „Kynning á Reverse Beacon Network (RBN)“.

RBN á einmitt 15 ára afmæli um þessar mundir. https://reversebeacon.net/index.php

Húsið opnar kl. 10:30 en viðburðurinn hefst kl. 11 stundvíslega og miðað er við að umræðum ljúki um kl. 12 á hádegi. Að venju verða vínarbrauð í boði með kaffinu frá Björnsbakaríi og rúnstykki með skinku og osti.

Sunnudagsopnanir (stundum nefndar „sófasunnudagar“) hafa verið skýrðar á þann veg að um sé að ræða fyrirkomulag menntandi umræðu á messutíma sem er hugsuð sem afslöppuð, þ.e. þar sem menn sitja með kaffibolla í stóra leðursófasettinu og ræða amatör radíó og tiltekinn leyfishafi sem hefur staðgóða þekkingu á viðkomandi umræðuefni leiðir umfjöllun og svarar spurningum.

Verið velkomin í Skeljanes!

Stjórn ÍRA.

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

5 × 2 =