Vetrardagskrá ÍRA heldur áfram á fullu. Sunnudag 23. október kl. 11:00 verður Jónas Bjarnason, TF3JB með umræðuþema á sunnudagsopnun: „Hagnýtt gildi QRZ.COM, Eham.net og fleiri vefja fyrir radíóamatöra“.
Viðburðurinn hefst kl. 11 stundvíslega og miðað er við að umræðum ljúki um kl. 12 á hádegi, en húsið er opnað kl. 10:30. Rúnstykki með kaffinu og vínarbrauð frá Björnsbakaríi.
Stjórn ÍRA.
Mynd úr fundarsal í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi.
Sigurður Harðarson, TF3WS heimsótti okkur í Skeljanes 20. október með erindið: „Fjarskiptaævintýri á Grænlandi“.
Sigurður hefur ártaugareynslu af uppsetningu og viðhaldi fjarskiptakerfa, ekki bara á Íslandi heldur einnig í Noregi, Færeyjum og á Grænlandi. Að þessu sinni sagði hann okkur frá þegar hann var kallaður til Grænlands til að fá keðju endurvarpa á VHF og UHF til að virka, sem tókst að sjálfsögðu.
Siggi fór með okkur upp á Grænlandsjökul í máli og myndum og útskýrði afar vel erfiðar aðstæður á jöklinum og hvernig hann fór að því að leysa verkefnið. Sigurður, sem er afburða sögumaður segir skemmtilega frá og húmorinn er aldrei langt undan. Og til marks um áhuga viðstaddra var ekkert kaffihlé gert. Og eftir að erindinu lauk héldu umræður áfram fram undir kl. 23 þegar húsið var yfirgefið.
Sérstakar þakkir til Sigurðar fyrir frábært fimmtudagskvöld. Alls mættu 33 félagar og 3 gestir í Skeljanes þetta ágæta haustkvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
Sigurður Harðarson TF3WS í pontu.Sigurður sýndi okkur margar glærur og ljósmyndir frá verkefninu á Grænlandi.Slegið á létta strengi þegar tvær mínútur voru í að Sigurður byrjaði. Frá vinstri: Heimir Konráðsson TF1EIN, Guðlaugur Ingason TF3GN, Árni Þór Ómarsson TF3CE (standandi), Georg Kulp TF3GZ og Ágúst H. Bjarnason TF3OM.Tveir góðir. Sigurður Harðarson TF3WS og Andrés Þórarinsson TF1AM.Kristján Benediktsson TF3KB, Andrés Þórarinsson TF1AM, Guðjón Egilsson TF3WO og Benedikt Guðnason TF3TNT.Wilhelm Sigurðsson TF3AWS og Þorvaldur Bjarnason TF3TB.Einar Ríkharðsson (sonur Ríkharðs Sumarliðasonar TF3RS) og Jón G. Guðmundsson TF3LM.Að loknu erindi fengu menn sér kaffi og var rætt áfram fram undir kl. 23. Frá Vinstri: Árni Þór Ómarsson TF3CE, Jón G. Guðmundsson TF3LM, Sveinn Goði Sveinsson TF3ID, Mathías Hagvaag TF3MH (bak í myndavél), Sigurður Harðarson TF3WS og Georg Kulp TF3GZ. Ljósmyndir: TF3JB.
Nýja vetrardagskráin heldur áfram. Á fimmtudag, 20. október er tvennt í boði í Skeljanesi.
Kl. 17: Námskeiðið „Fyrstu skrefin“. Óskar Sverrisson, TF3DC leiðbeinir.Áhugasamir skrái sig tímanlega hjá Óskari í síma 862-3151.
Kl. 20:30: Erindið „Fjarskiptaævintýri á Grænlandi“. Sigurður Harðarson, TF3WS flytur.
Nýjustu amatörtímaritin liggja frammi og QSL stjóri verður búinn að tæma pósthólfið og raða kortum. Veglegar kaffiveitingar.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA. – Námskeiðið “Fyrstu skrefin” eru hugsað fyrir nýja leyfishafa sem hafa áhuga á að sækja sér leiðbeiningar um hvernig best er að standa að því að fara í loftið. Um er að ræða einkatíma með reyndum leyfishafa. Leiðbeinandi kynnir í stuttu máli grundvallaratriði og ríkjandi hefðir innan áhugamálsins. Markmiðið er að nýr leyfishafi öðlist öryggi í fjarskiptum. Nýr leyfishafi og leiðbeinandi ræða saman þar sem spurningum er svarað og að því búnu er farið í loftið í fjarskiptaherbergi félagsins. Tímasetning námskeiðs og yfirferð getur að vissu marki verið sveigjanleg með samráði nýs leyfishafa og leiðbeinanda. Áríðandi er að áhugasamir skrái sig tímanlega hjá Óskari Sverrissyni, TF3DC í síma 862-3151 eða með tölvupósti; oskarsv hjá internet.is með góðum fyrirvara.
Óskar Sverrisson TF3DC og Gunnar Bergþór Pálsson TF2BE. Myndin var tekin á námskeiði Óskars um „Fyrstu skrefin“ í Skeljanesi.Sigurður Harðarson TF3WS. Myndin var tekin fyrr á árinu þegar Siggi færði félaginu radíódót í Skeljanes. Ljósmyndir: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-10-17 11:39:462022-10-17 20:31:29SKELJANES Á FIMMTUDAG
Yngvi Harðarson, TF3Y mætti á „sófasunnudag“ í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi 16. október. Umræðuþema var: „Keppnir og keppnisþátttaka“.
Afar áhugaverðar, fróðlegur og skemmtilegar umræður. Yngvi velti fyrir sér í upphafi og spurði menn: „Hvað eru keppnir, hvers vegna tökum við þátt í keppnum og hvernig náum við árangri?“. Og upp frá því rúllaði boltinn.
Fjallað var um undirbúning, gerð tékklista og úrvinnslu að keppni lokinni. Rætt um keppnisforrit, skilyrði og skilyrðaspár, samskiptatækni, punkta og margfaldara (sem eru mismunandi eftir keppnum) og grundvallarspurninguna, hvort er skynsamlegra að fjárfesta góðum tækjum eða góðum loftnetum? Allir voru sammála um að loftnet eru númer 1, 2 og 3.
Rætt var um um 24 klst. keppnir samanborið við 48 klst. keppnir og hvernig skynsamlegast er að nýta þátttökutímann, þ.e. gæta þess m.a. að taka hvíldir inn á milli. Rætt um mismuninn á SSB, CW og RTTY keppnum. Einnig rætt um keppnir eftir böndum, m.a. um 160 metra bandið sem hefur sérstöðu vegna þess hve það er þröngt. Einnig rætt um 40 metrana og ósamstæðar sendi-/viðtökutíðnir, m.a. gagnvart samböndum við NA á SSB.
Sérstakar þakkir til Yngva Harðarsonar, TF3Y fyrir að mæta í Skeljanes og veita okkur innsýn reynsluboltans í þennan áhugaverða þátt áhugamálsins. Þegar tíðindamaður þurfti að yfirgefa staðinn skömmu fyrir kl. 13 voru umræður enn í fullum gangi. Alls mættu 12 félagar og 1 gestur í Skeljanes þennan sólbjarta sunnudag í svölum norðangarra í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
Kristján Benediktsson TF3KB, Ársæll Óskarsson TF3AO, Óskar Sverrisson TF3DC, Wilhelm Sigurðsson TF3AWS, Yngvi Harðarson TF3Y, Sæmundur E. Þorsteinsson (snýr baki í myndavél), Benedikt Sveinsson TF3T og Mathías Hagvaag TF3MH.Yngvi sagði að það væri mismunandi hvers vegna menn taki þátt í keppnum. Margir leituðu eftir nýjum og/eða sjaldgæfum DX samböndum, aðrir kepptu bara til að hafa sambönd, en flestir kepptu til að ná árangri sem ýmist væri til að ná árangri í viðkomandi keppnisflokki eða jafnvel til að keppa við “sjálfan sig” og gera betur heldur en í keppninni árið áður. Það væri líka algengt að menn prófuðu ný loftnet og/eða annan búnað.Slegið á létta strengi í umræðunni. Benedikt TF3T sagði m.a. skemmtilega frá loftnetapælingum sem tengjast keppnisstöð hans og bróður hans (TF3SG), TF3D sem staðsett er fyrir utan Stokkseyri. Ljósmyndir: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-10-15 22:53:562022-10-15 23:01:26VEFSLÓÐ Á VETRARÁÆTLUN Á HEIMASÍÐU
Vetrardagskrá ÍRA heldur áfram á fullu. Sunnudag 16. október kl. 11:00 verður Yngvi Harðarson, TF3Y með umræðuþema á sunnudagsopnun: „Keppnir og keppnisþátttaka“.
Viðburðurinn hefst kl. 11 stundvíslega og miðað er við að umræðum ljúki um kl. 12 á hádegi, en húsið er opnaði kl. 10:30. Rúnstykki með kaffinu og vínarbrauðslengja frá Björnsbakaríi.
Sunnudagsopnanir (stundum nefndar „sófasunnudagar“) hafa verið skýrðar á þann veg að um sé að ræða fyrirkomulag menntandi umræðu á messutíma sem er hugsuð sem afslöppuð, þ.e. þar sem menn sitja með kaffibolla í stóra leðursófasettinu og ræða amatör radíó. Tiltekinn leyfishafi sem hefur staðgóða þekkingu á viðkomandi umræðuefni leiðir umfjöllun og svarar spurningum.
Félagsmenn eru hvattir til að láta þetta tækifæri ekki framhjá sér fara. Þemað er áhugavert og fáir íslenskir leyfishafar hafa jafngóða þekkingu og reynslu hvað varðar alþjóðlegar keppnir og TF3Y.
JOTA, Jamboree On The Air og JOTI, Jamboree On The Inernet viðburðirnir verða haldnir 14.-16. október. Þessa helgi standa radíóskátar um allan heim fyrir virkni á amatörböndunum og geta ungliðar í skátahreyfingunni fengið að tala í amatörstöðvar við aðra um heiminn, undir stjórn leyfishafa.
Kallmerkið TF1JAM verður sett í loftið frá skátamiðstöðinni að Úlfljótsvatni. Þau Andrés Þórarinsson, TF1AM og Vala Dröfn Hauksdóttir, TF3VB standa fyrir viðburðinum. Guðmundur Sigurðsson, TF3GS verður einnig á staðnum með Hafnarfjarðarskátana og annast þátttöku þeirra frá TF1JAM.
Kallmerkið TF3JAM verður sett í loftið frá Lækjarbotnaskála þar sem skátafélagið Landnemar verða með félagsútilegu. Arnlaugur Guðmundsson, TF3RD mun standa fyrir viðburðinum ásamt Hauki Konráðssyni, TF3HK.
JOTA fer [einkum] fram á þessum tíðnum á HF: SSB 3,650-3,700 MHz; 7,080-7,140 MHz; 14,100-14,125 MHz og 14,280-14,350; 21,350-21,450 MHz; og 28,225-28,400 MHz og CW: 3,560-3,800 MHz; 7,040-7,200 MHz; og 14,060-14,350. Þessar tíðnir eru valdar af radíóskátum með hliðsjón af alþjóðlegum keppnum sem fram fara um helgina, en þar er WAG keppnin stærst.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-10-14 14:02:182022-10-14 14:06:07JAMBOREE ON THE AIR 2022
Benedikt Sveinsson, TF3T mætti í Skeljanes fimmtudagskvöldið 13. október með erindið: „TF3D framhald; undirbúningur fyrir CQ World Wide DX SSB keppnina 2022“. Um var að ræða framhald af erindi um uppbyggingu stöðvarinnar þann 7. júlí s.l.
Flestir þeirra sem höfðu mætt á fyrri hluta erindisins voru mættir á ný og urðu ekki fyrir vonbrigðum. Benedikt segir mjög skemmtilega frá og þegar við bætist leiftrandi sýn hugsjónamannsins er auðvelt að „ferðast“ í huganum með honum austur að Stokkseyri og „upplifa“ þá miklu vinnu sem hann hefur innt af hendi þar á staðnum með Guðmundi (TF3SG) bróður sínum. Og eins og hann sagði sjálfur: „Þetta hefur verið gott sumar og mikið komist í verk“. Hann lýsti vel einstökum loftnetum og prófunum sem þeir bræður hafa gert þar á staðnum. Allt saman mjög áhugavert.
Hann ræddi að lokum CQ WW DX SSB keppnina sem fram fer eftir tvær vikur (29.-30. október). Hann hefur miklar væntingar um að keppnin komi vel út. Til viðbótar eru skilyrðaspár hagstæðar.
Þakkir til Benedikts fyrir gæðaerindi og skemmtilega innsýn í heim stórra loftneta og búnaðar sem svo fáir okkar hafa aðstæður til að vinna með. Stórskemmtilegt, fróðlegt og eftirminnilegt erindi. Alls mættu 22 félagar og 2 gestir í Skeljanes þetta hægláta haustkvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
Erindi Benedikts Sveinssonar TF3T hófst stundvíslega kl. 20:30.Benedikt skýrði vel loftnetin sem eru til ráðstöfunar hjá TF3D við Stokkseyri. Ljósmyndir: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-10-14 09:04:102022-10-14 09:11:13FRÁ OPNUN Í SKELJANESI 13. OKTÓBER
Ný vetrardagskrá félagsins heldur áfram á fimmtudag, 13. október kl. 20:30. Þá mætir Benedikt Sveinsson, TF3T í Skeljanes með erindið: „TF3D framhald; undirbúningur fyrir CQ WW DX SSB keppnina 2022“.
Um er að ræða framhald erindis hans frá 7. júlí s.l. um uppbyggingu stöðvar þeirra Guðmundar Sveinssonar, TF3SG (bróður hans) TF3D, sem staðsett er við Stokkseyri.
Umsögn um erindið 7. júlí: “Benedikt Sveinsson, TF3T flutti frábært erindi um uppbyggingu stöðvarinnar TF3D. Hann hreif viðstadda með sér inn í heim loftnetahönnunar, loftnetasmíða og uppbyggingar nútíma keppnisstöðvar í alþjóðlegum keppnum. Stórskemmtilegt, fróðlegt og eftirminnilegt erindi”.
Félagsmenn eru hvattir til að missa ekki af framhaldserindi Benedikts. Veglegar kaffiveitingar.
Stjórn ÍRA.
Mynd frá glæsilegri uppbyggingu TF3D við Stokkseyri. Ljósmynd: Benedikt Sveinsson TF3T.
Fyrsta opnun félagsaðstöðu ÍRA – sérstaklega fyrir YL amatörana okkar – verður miðvikudaginn 12. október kl. 20-22.
Þær Anna Henriksdóttir, TF3VB og Vala Dröfn Hauksdóttir, TF3VD verða í forsvari. Hugmyndin er að ræða saman, fara loftið og njóta veitinga. Þær stöllur sóttu nýverið ársfund Scandinavian YL Radio Amateurs í Turku í Finnlandi og munu segja frá starfinu innan SYLRA.
Allar konur sem eru leyfishafar, eru með hlustmerki eða hafa áhuga á amatör radíói eru hjartanlega velkomnar.
Stjórn ÍRA.
Anna Henriksdóttir TF3VB og Vala Dröfn Hauksdóttir TF3VD. Myndin var tekin í fjarskiptaherbergi TF3IRA. Ljósmynd: Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB.