Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi,
fimmtudaginn 21. nóvember.
Góður félagsskapur, nýjustu tímaritin, kaffi, te og meðlæti.
Mathías Hagvaag, TF3MH, QSL stjóri félagsins, tæmir
pósthólfið hvern miðvikudag og verður búinn að flokka nýjar QSL sendingar fyrir
opnun á fimmtudagskvöld.
CQ World Wide DX morskeppnin 2019 verður haldin 23.-24. nóvember. Keppnin er 48 klst. og hefst kl. 00:00 á laugardag og lýkur kl. 23:59 á sunnudag.
Keppnin fer fram á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Í boði eru fjölmargir keppnisriðlar (sjá reglur).
Þátttaka var ágæt frá okkur í fyrra (2018); þá sendu fimm TF kallmerki inn keppnisdagbækur: TF3DC, TF3SG, TF3W, TF3Y og TF8KY. TF3VS og TF4M sendu inn viðmiðunardagbækur (e. check-log).
Fyrsta sunnudagsopnun á vetrardagskrá ÍRA var sunnudaginn
17. nóvember. Jónas Bjarnason, TF3JB, mætti í Skeljanes og fjallaði um
viðurkenningar radíóamatöra.
Fram kom m.a. að viðurkenningar hafa verið í boði til radíóamatöra í a.m.k. 96 ár og að þær eru vinsæll þáttur hjá mörgum sem hluti af áhugamálinu. Fram kom einnig, að margar eru erfiðar eða jafnvel mjög erfiðar að ná og að það getur tekið mörg ár eða jafnvel áratugi að uppfylla kröfurnar.
Þær þekktustu eru DXCC, WAZ, WAC, WAS, IOTA, WAE og EUROPA DIPLOM. Þær eiga það allar sammerkt að það liggur töluverð vinna á bak við þær. Sá leyfishafi sem á flestar viðurkenningar hér á landi nálgast 2000 og er enn jafn áhugasamur og hann var daginn sem hann byrjaði.
Á staðnum voru til sýnis 30 innrammaðar viðurkenningar sem
TF3JB hefur safnað í gegnum árin, m.a. DXCC, 5BDXCC, DXCC CHALLENGE, WAZ, WPX, WAS,
WAJA, VUCC og fleiri.
Alls mættu 11 félagar og 1 gestur í Skeljanes þennan ágæta sunnudagsmorgun.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-11-17 16:55:262019-11-17 19:46:49VIÐURKENNINGAR Í SKELJANESI Á SUNNUDEGI
Fundargerðir stjórnar ÍRA á heimasíðu enda í nóvember 2018. Fundargerðir sem á vantar til dagsins í dag – hafa verið birtar jafn óðum í CQ TF og hengdar upp á tilkynningatöflu í Skeljanesi. Auk þess, má lesa fundargerðir fyrra starfsárs í Ársskýrslu 2018/19. Hvorutveggja skýrsla og CQ TF eru til niðurhals á PDF formi hér á heimasíðunni.
Á meðan unnið er að uppfærslu fundargerða á heimasíðu sem og á fleiri undirsíðum er beðist velvirðingar á því óhagræði sem það kann að valda. Stefnt er að því að ljúka verkefninu fljótlega.
Félaginu barst að gjöf jeppafylli af radíódóti frá Sigurði Harðarsyni, TF3WS, fimmtudagskvöldið 14. nóvember. Þá lauk Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, við uppfærslu þriðju tölvunnar í fjarskiptaherbergi TF3IRA (Lenovo ThinkCentre). Síðast, en ekki síst, áttu félagsmenn góðar umræður um áhugamálið yfir kaffibolla.
Að venju var mikið rætt um tækin, loftnet, „Sark 110“
loftnetsgreininn (sem einn var nýbúinn að panta), skilyrðin á 80 metrum nú um
stundir, verkefni sem menn eru með á vinnuborðinu o.m.fl. Einn félagsmanna kom
færandi hendi með stóra dós af jólakonfekti frá Quality Street (Christmas 2019
Edition), og smakkaðist innihaldið vel með kaffinu.
Radíódótið frá TF3WS verður til afhendingar til félagsmanna frá og með 17. nóvember, en á sunnudag verður svokallaður „sófasunnudagur“ í Skeljanesi.
Alls mættu 19 félagar og 1 gestur í Skeljanes í heiðskírri froststillunni
þetta ágæta vetrarkvöld.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-11-15 13:09:002019-11-15 13:12:23GÓÐ MÆTING Í SKELJANES OG GÓÐAR GJAFIR
Sunnudaginn 17. nóvember kl. 11 árdegis verða svokallaðar „sófaumræður“ í Skeljanesi; þær fyrstu á yfirstandandi vetrardagskrá. Til umfjöllunar verða viðurkenningar radíóamatöra. Jónas Bjarnason, TF3JB, leiðir umræður.
Viðurkenningar hafa fylgt áhugamálinu í tæp 100 ár. Leitast verður við að svara nokkrum grundvallarspurningum, þ.á.m.:
Hvað eru viðurkenningar radíóamatöra?
Fyrir hvað standa þær til boða?
Hvað þurfa menn að gera til að fá þær?
Hverjir gefa þær út?
Hvað gerir maður síðan við viðurkenningarnar?
Sófaumræður eru það fyrirkomulag, þegar boðið er upp á umræður á messutíma sem eru hugsaðar sem afslappaðar, þ.e. þar sem menn sitja með kaffibolla í stóra sófasettinu og ræða amatör radíó. Tiltekinn leyfishafi sem hefur staðgóða þekkingu á viðkomandi umræðuefni, leiðir síðan umræðuna og svarar spurningum.
Húsið opnar kl. 10:30. Vandaðar kaffiveitingar frá Björnsbakaríi.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-11-13 22:09:002019-11-13 22:10:24SÓFAUMRÆÐUR Í SKELJANESI Á SUNNUDAG
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi,
fimmtudaginn 14. nóvember.
Nýjustu tímaritin, góður félagsskapur, kaffi og meðlæti.
Ný sending af QSL kortum verður komin í hús.
Ath.: Áður auglýst erindi Valgeirs Péturssonar TF3VP þennan
dag „Að smíða RF magnara fyrir HF böndin og fleira“ frestast af óviðráðanlegum
ástæðum og verður auglýst síðar.
Yngvi
Harðarson, TF3Y, mætti í Skeljanes á vetrardagskrá ÍRA þann 7. nóvember með
erindið „Að minnka truflanir í móttöku í HF fjarskiptum“.
Hann fjallaði um truflanir á HF; mismunandi tegundir, hvernig þær berast í viðtækið og kynnti aðferðir til að minnka þær. Hann upplýsti um helstu uppsprettur og dreifileiðir og sýndi m.a. áhugaverð sýnishorn af truflanavöldum á 40 metrunum frá NK7Z.
Yngvi kynnti
og fór yfir sjö leiðir til að fást við vandann: (1) Fjarlæga uppsprettuna
(alltaf best); (2) Færa viðtæki frá truflun; (3) Nota stefnuvirkt loftnet (s.s.
magnetíska lúppu); (4) Nota fösun merkja; (5) SDR tækni, þ.e. 2 x RX með einum
sveifluvaka; (6) DSP tækni; og (7) Aðferðir 3-6 saman.
Síðari
hluti erindisins var verklegur. Eftirfarandi búnaður var notaður: NCC-1 (Receive Antenna Variable Phasing Controller
fyrir 0.3-30 MHz) frá DxEngineering, RSPDuo SDR viðtæki frá SDRPlay (fyrir 1 kHz til 2 GHz) og Elecraft KX2
sendi-/viðtæki (fyrir 3.5-29.7 MHz),
auk MFJ-1025 (Noise cancel/signal
enhancer).
Kóaxkaplar höfðu verið lagðir frá fjarskiptaherbergi félagsins niður í fundarsal og var m.a. til afnota 4 staka YAGI loftnet TF3IRA fyrir 20 metrana og sambyggt stangarloftnet TF3IRA fyrir 10, 15, 20, 40 og 80 metra böndin.
Yngvi
tengdi þennan búnað og var afar áhrifaríkt að sjá hann virka. Hann svaraði
mörgum spurningum fundarmanna og sökum áhuga dróst til kl. 22:30 að taka
kaffihlé. Niðurstaða: Það er sumsé hægt að sigrast í truflunum!
Alls mættu 41 félagsmaður og 2 gestir í Skeljanes þetta kyrrláta snemmvetrarkvöld í Vesturbænum. Bestu þakkir til Yngva fyrir áhugavert, fróðlegt, skemmtilegt og vel flutt erindi.
Óskar Sverrisson, TF3DC, leiðbeindi á námskeiðinu: „Fyrstu
skrefin, farið í loftið með leiðbeinanda“ sem var haldið í Skeljanesi fimmtudaginn
7. nóvember.
Námskeiðið er hugsað til að aðstoða menn við að byrja í
loftinu, hvort heldur þeir eru með nýtt eða nýlegt leyfisbréf eða eldri
leyfishafar. Hugmyndin er að skapa andrúmsloft sem er afslappað þar sem menn
geta spurt spurninga og prófað sig áfram með reyndum leiðbeinanda til að öðlast
öryggi í að fara í loftið.
Að þessu sinni voru þátttakendur tveir (en tveir til viðbótar þurftu að hætta við vegna vinnu) en reiknað er með fjórum að hámarki. Þegar tíðindamann bar að garði laust fyrir kl. 18:30 var verkefnið í fullum gangi, sbr. meðfylgjandi ljósmynd. Fyrirkomulag var þannig, að farið er yfir grundvallaratriði, s.s. reglugerðina og viðauka hennar, uppsetningu stöðvar og loftnets, tæknileg öryggisatriði, mikilvægi þess að hlusta, skráningu í fjarskiptadagbók o.fl. Síðan er farið yfir stillingar stöðvar á morsi, tali RTTY og FT8.
Þegar tíðindamaður yfirgaf staðinn var líflegt í
fjarskiptaherbergi TF3IRA og menn afar ánægðir með námskeiðið. Þeir munu síðan
mæta aftur á sama stað að viku liðinni og treysta sig enn frekar í fjarskiptum
á böndunum.
Nemendur Óskars voru að þessu sinni þeir Sigurður Óskar Óskarsson, TF2WIN og Gunnar Bergþór Pálsson, TF-017, sem er einmitt nemandi á námskeiði félagsins til amatörprófs sem haldið er um þessar mundir.