Félagið Íslenskir radíóamatörar, ÍRA var stofnað í Reykjavík 14. ágúst 1946. 75 ár voru liðin frá stofnun þess í fyrra (2021). Vegna Covid-19 faraldursins var veisluhöldum frestað þar til sunnudaginn 28. ágúst.
Þann dag var opið hús í Skeljanesi og var félagsmönnum og fjölskyldum þeirra boðið að líta við og þiggja heitt súkkulaði, kaffi og gosdrykki, íslenskar pönnukökur og vöfflur með þeyttum rjóma og marsípan-rjómatertu, auk fleira góðgætis.
Alls mættu 57 félagsmenn og gestir þennan ágæta sunnudag í hæglætisveðri í vesturbænum í Reykjavík. Að auki barst mikill fjöldi af kveðjum frá félagsmönnum sem annaðhvort voru staddir erlendis eða í sumarfríi innanlands, auk samstarfsaðila.
Þakkir til allra, og sérstaklega til stjórnarmanna ÍRA sem önnuðust allan undirbúning og framreiðslu þjóðlegra veitinga, þeir Jón Björnsson TF3PW, Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA, Georg Magnússon TF2LL og Jón Svavarsson, TF3JON sem lagaði heitt súkkulaði, einstakt að gæðum. Síðast en ekki síst, þakkir til þeirra TF3JON, TF3KB, TF3KX og TF3PW fyrir ljósmyndir.
Nánar verður fjallað um viðburðinn í næsta hefti félagsblaðsins CQ TF, sem kemur út 2. október.
Stjórn ÍRA.
Jónas Bjarnason TF3JB formaður ÍRA bauð gestum að gjöra svo vel þegar hann skar fyrstu sneiðina af tertunni. Ljósmynd: TF3JON.Mathías Hagvaag TF3MH, Óðinn Þór Hallgrímsson TF2MSN, Sigurður Elíasson TF3-044 og Eiður Kristinn Magnússon TF1EM. Ljósmynd: TF3KX.Ralf Doerendahl HB9GKR, Peter Ens HB9RYV, Wilhelm Sigurðsson TF3AWS og Sigurður Smári Hreinsson TF8SM. Ljósmynd: TF3KX.Stefán Arndal TF3SA og Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB. Ljósmynd: TF3KX.Yngvi Harðarson TF3Y og Kristján Benediktsson TF3KB. Ljósmynd: TF3JON.Elín Sigurðardóttir TF2EQ og Erla Halldórsdóttir (XYL TF3KX). Ljósmynd: TF3KX. Haukur Konráðsson TF3HK og Arnlaugur Guðmundsson TF3RD. Ljósmynd: TF3JON.Georg Magnússon TF2LL, Svana Björnsdóttir (XYL TF3UA) og Sigurður Smári Hreinsson TF8SM. Ljósmynd: TF3JON.Kristinn Andersen TF3KX, Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA, Georg Magnússon TF2LL, Jón Svavarsson TF3JON og Jón G. Guðmundsson TF3LM. Ljósmynd TF3PW.Óþekktur og Georg Kulp TF3GZ. Ljósmynd: TF3JON.Jón Björnsson TF3PW, Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA og óþekktur. Ljósmynd: TF3KX.Tekið á móti góðum gjöfum í fjarskiptaherbergi TF3IRA frá systurfélagi ÍRA í Sviss, USKAí tilefni 75 ára afmælisins. Frá vinstri: Peter Ens HB9RYV, Jónas Bjarnason TF3JB formaður ÍRA og Ralf Doerendahl HB9GKR. Ljósmynd: TF3JON.
Anna Henriksdóttir, TF3VB var í útvarpsviðtali í Mannlega þættinum á rás-1 í Ríkisútvarpinu í morgun, 31. ágúst.
Anna er listakona og var stofnað til viðtalsins vegna listsýningar Hlutverkaseturs sem verður opnuð í Sjóminjasafninu í Reykjavík á morgun, 1. september.
Þegar í ljós kom í viðtalinu að hún er einnig radíóamatör, var rætt heilmikið um það. Skemmtilegt viðtal.
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fyrir félagsmenn og gesti kl. 20-22 fimmtudaginn 1. september. Kaffiveitingar.
Fundarsalur, fjarskiptaherbergi TF3IRA og QSL stofa á 2. hæð verða opin. QSL stjóri verður búinn að tæma pósthólfið og flokka innkomin kort. Ennfremur móttaka fyrir kort til útsendingar.
Nýjustu tímaritin fyrir radíóamatöra liggja frammi.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
Mynd úr fundarsal í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi. Ljósmynd: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-08-29 21:07:402022-08-29 21:08:01OPIÐ HÚS 1. SEPTEMBER Í SKELJANESI
Minnum á boð fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra í tilefni 75 ára afmælis félagsins sunnudaginn 28. ágúst kl. 14 til 17.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði, kaffi og gosdrykki, íslenskar pönnukökur og vöfflur með þeyttum rjóma eða vanilluís og marsipan-rjómatertu.
Það er von stjórnar félagsins að sem flestir félagsmenn sjái sér fært að koma við í Skeljanesi, þiggja góðar veitingar og fagna saman afmæli félagsins.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-08-24 20:35:012022-08-25 12:38:02AFMÆLISKAFFI ÍRA ER Á SUNNDAGINN 28. ÁGÚST
Kenwood TR-7625 144-146 MHz 5/25W FM sendistöð. Kenwood RM-76 utanáliggjandi eining fyrir 6 minnisrásir og leitara (e. scanner). Gefandi: Daggeir H. Pálsson, TF7DHP.
Stjórn ÍRA þakkar nytsamar gjafir og hlýjan hug til félagsins.
Gjöf frá Ara Þórólfi Jóhannessyni TF1A: 2 stk. Linksys Cisco SR2024 24-port 10/100/1000 Gigabit Switch.Gjöf frá Daggeiri H. Pálssyni TF7DHP: Kenwood TR-7625 144-146 MHz 5/25W FM sendistöð og RM-76 utanáliggjandi einingu fyrir 6 minnisrásir og leitara (e. scanner). Ljósmyndir: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-08-24 18:49:122022-08-24 23:45:54GJAFIR TIL FÉLAGSINS
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-08-23 14:59:522022-08-23 15:00:25OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 25. ÁGÚST
Þátttakendur á fundi Scandinavian Young Lady Radio Amateurs (SYLRA) 2022 sem fram fór í Turku í Finnlandi, hafa nú ferðast til eyjunnar Katanpää (IOTA EU-096) og virkja þaðan kallmerkið OH1SYL í dag, 23. ágúst. QSL via OH5KIZ.
Anna og Vala Dröfn voru með ágætt merki í Reykjavík í morgun kl. 10 á 14.244 MHz SSB.
Stjórn ÍRA.
Anna Henriksdóttir TF3VB og Vala Dröfn Hauksdóttir TF3VD. Myndin var tekin í fjarskiptaherbergi TF3IRA. Ljósmynd: Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-08-23 09:48:062022-08-24 13:35:38OH1SYL ER QRV FRÁ KATANPÄÄ
WSPRnet upplýsingakerfið er rekið af radíóamatörum sem nota „MEPT_ JT“ forrit K1JT fyrir stafrænar sendingar til að kortleggja skilyrði til fjarskipta um heiminn. Kerfið notar merki frá radíóvitum radíóamatöra sem senda út allan sólarhringinn, allt árið um kring á QRP/QRPp afli á tilgreindum tíðnisviðum á 80, 40, 20, 15 og 10 metra böndunum. Þótt WSPRnet sé tiltölulega nýlegt verkefni (stofnað 17. maí 2021) er fyrsti áfanginn í þróun þess langt kominn.
TF3D er fyrsta íslenska kallmerkið sem gerist þátttakandi í WSPRnet kerfinu og varð radíóvitinn virkur 16. ágúst 2022 á 80, 40, 20, 15 og 10 metrunum. QTH er við Stokkseyri, reitur HP93lu. Sendir er 200mW Zachtek 80-10 WSPR Desktop Transmitter. Loftnet er EFHW stangarloftnet. Benedikt Sveinsson, TF3T er ábyrgðarmaður. Fjarskiptastofa hefur veitt heimild sendingum vitans.
Þakkir til Benedikts fyrir uppsetningu búnaðarins. WSPRnet kerfið veitir íslenskum sem og erlendum leyfishöfum sem áhuga hafa á útbreiðslu radíóbylgna mikilvægar upplýsingar sem nýtast í fjarskiptum radíóamatöra um allan heim.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-08-22 14:58:072022-08-22 16:11:08TF3D TEKUR ÞÁTT Í WSPRNET VERKEFNINU
Unnið er að uppfærslu efnis á heimasíðu ÍRA. Áhersla er lögð á efni á undirsíðum sem þarfnast viðhalds og leiðréttinga, en jafnframt eru uppi áform um innsetningu á nýju efni sem varðar áhugamálið.
Opnunarsíða (fréttasíða) var uppfærð 21. ágúst. Þegar síðan opnast birtast efnisdálkar til hægri með þessum fyrirsögnum:
SDR VIÐTÆKI YFIR NETIÐ
ÁRSSKÝRSLUR ÍRA
FÉLAGSBLAÐ ÍRA, CQ TF
FUNDARGERÐIR STJÓRNAR
Liðurinn „Fundargerðir stjórnar“ er nýr á þessum stað á heimasíðunni. Um er að ræða gerðir frá starfsárunum 2018/19, 2019/20, 2020/21, 2021/22 og 2022/23. Nýjustu fundargerðirnar eru efst.
Fleiri breytingar og uppfærslur verða kynntar á næstunni.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-08-22 10:35:172022-08-22 10:41:33HEIMASÍÐA FÉLAGSINS UPPFÆRÐ
Eftirfarandi erindi hefur borist til ÍRA sem hér með er komið á framfæri við félagsmenn. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband og senda tölvupóst á ira@ira.is
“Okkur í Orgelkvartettinum Apparat langaði að athuga hvort það væri áhugi hjá ykkar félögum að taka þátt í smá orgel-radíóamatörabræðingi.
Þegar hljómsveitin var að stíga sín fyrstu skref fyrir rúmum tuttugu árum héldum við tónleika ásamt TF3IRA í Hafnarhúsinu. Þar spiluðum við á stór orgel og fjórir meðlimir ykkar komu með sínar græjur, settu heljarinnar loftnet upp á þak ef ég man rétt og reyndu að ná sambandi á meðan tónleikunum stóð.
Þetta heppnaðist einstaklega vel og eitt lagið sem þarna var flutt, Charlie Tango #2 endaði á plötunni Apparat Organ Quartet sem er nú verið að endurútgefa á vinyl.
Þann 26. október ætlum við að halda tvenna tónleika, kl.18 og 21 og spila plötuna í heild sinni. Okkur langaði að vita hvort það væri áhugi fyrir því að endurtaka leikinn frá árinu 2000 og fá ykkur til að koma inn í þessu lagi á tónleikunum”.