http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-03-12 13:42:452023-03-12 13:44:18RITSTJÓRI CQ TF KALLAR EFTIR EFNI
Í samræmi við starfsáætlun stjórnar ÍRA og að höfðu samráði við Prófnefnd og Umsjónarmann námskeiða, hefur verið ákveðið að kanna áhuga á þátttöku í námskeiði til amatörprófs.
Fyrirhugað er að námskeiðið hefjist 27. mars n.k. og ljúki með prófi Fjarskiptastofu 27. maí. Kennt verður þrjá daga í viku í staðnámi og fjarnámi, kl. 18:30-21:30. Námskeiðið er öllum opið og eru ekki gerðar kröfur um sérstaka menntun eða undirbúning.
Áhugasamir eru beðnir um að skrá nafn sitt og tölvupóstfang hjá “ira hjá ira.is”. Ath. að skráningu fylgir engin skuldbinding – en veitir félaginu mikilvægar upplýsingar um fyrirhugaðan fjölda nemenda.
Fyrirspurnum má beina á sama tölvupóstfang.
Skráning er opin til 24. mars n.k.Félagið setur þann fyrirvara um námskeiðshald, að lágmarksþátttaka fáist.
Næsti viðburður verður í boði 12. mars kl. 11:00; svokallaður „sófasunnudagur á messutíma“. Þeir Mathías Hagvaag, TF3MH og Jónas Bjarnason, TF3JB verða með umræðuþemað: „Allt um QSL kort“.
Húsið opnar kl. 10:30 en viðburðurinn hefst kl. 11 stundvíslega og miðað er við að umræðum ljúki um kl. 12 á hádegi.
Að venju verða vínarbrauð í boði með kaffinu frá Björnsbakaríi og rúnstykki með skinku og osti. En ekki verður einvörðungu lagað „Lavazza“ kaffi heldur verður einnig te í boði – en nýr hraðsuðuketill félagsins sem var „vígður“ á fimmtudagskvöld hefur hefur þegar öðlast vinsældir.
Sunnudagsopnanir (stundum nefndar „sófasunnudagar“) hafa verið skýrðar á þann veg að um sé að ræða fyrirkomulag menntandi umræðu á messutíma sem er hugsuð sem afslöppuð, þ.e. þar sem menn sitja með kaffibolla í stóra leðursófasettinu og ræða amatör radíó og tiltekinn leyfishafi sem hefur staðgóða þekkingu á viðkomandi umræðuefni leiðir umfjöllun og svarar spurningum.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
Um er að ræða PowerPoint erindi og verða glærur til afhendingar útprentaðar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-03-10 12:52:222023-03-10 12:54:52SKELJANES Á SUNNUDAG 12. MARS
Mathías Hagvaag, TF3MH QSL stjóri ÍRA QSL Bureau, tilkynnti á aðalfundi félagsins 19. febrúar s.l. um væntanlega hækkun á gjaldskrá stofunnar vegna hækkunar verðskrár Póstsins þann 1.1.2023.
Forsendur hafa nú verið skoðaðar og hefur QSL stjóri ákveðið að kostnaður fyrir hvert QSL kort hækki frá og með 1. apríl 2023 úr 12 krónum í 14 krónur.
Gjaldskrá QSL stofunnar hefur verið óbreytt frá 1. desember 2021.
Stjórn ÍRA.
Mathías Hagvaag QSL stjóri TF-ÍRA QSL Bureau í herbergi QSL stofunnar í Skeljanesi. Ljósmynd: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-03-08 17:17:312023-03-08 17:54:21VERÐSKRÁ ÍRA QSL BUREAU HÆKKAR 1. APRÍL
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-03-07 17:15:562023-03-07 17:17:43VIÐTÆKIN FJÖGUR YFIR NETIÐ ERU QRV
YB DX RTTY Worldwide keppnin fer fram 11. mars; hefst kl. 00:00 á laugardag og lýkur kl. 23:59 sama dag. Hún fer fram á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum á RTTY. https://rtty.ybdxcontest.com/
SARL Field Day Worldwide keppninfer fram 11.-12 mars; hefst kl. 08:00 á laugardag og lýkur kl. 10:00 á sunnudag. Hún fer fram á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum á morsi, tali og á stafrænum mótunum. http://www.sarl.org.za/public/contests/contestrules.asp
EA PSK63 Worldwide keppnin fer fram 11.-12. mars; hefst á laugardag kl. 12.00 og lýkur á sunnudag kl. 12:00. Hún fer fram á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum á PSK63. http://concursos.ure.es/en/eapsk63/bases/
South America 10 Meter Worldwide keppnin fer fram 11.-12. mars; hefst á laugardag kl. 12:00 og lýkur á sunnudag kl. 12:00. Hún fer fram á 10 metrum á morsi og tali. http://sa10m.com.ar/wp/rules/
AGCW QRP Worldwide keppnin fer fram 11. mars; hefst kl. 14:00 á laugardag og lýkur kl. 20:00 sama dag. Hún fer fram á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum á morsi. https://www.agcw.de/contest/qrp/
Stew Perry Topband Challenge Worldwide keppnin fer fram 11.-12. mars; hefst kl. 15:00 á laugardag og lýkur kl. 15.00 á sunnudag. Hún fer fram á 160 metrum á 160 metrum. http://www.kkn.net/stew/
FIRAC HF Worldwide keppnin fer fram 12. mars; hefst kl. 07:00 á sunnudag og lýkur kl. 19:00 sama dag. Hún fer fram á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum á morsi.http://www.firac.de/FIRAC_HF_CONTEST_E.pdf
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi var opin fimmtudaginn 2. mars.
Umræður voru á báðum hæðum, menn hressir og TF3IRA var í loftinu á 40M CW og 20M SSB.
Mikið var rætt um loftnet og skilyrðin á böndunum. Rætt um DX-leiðangra, m.a. um 3B7M sem er QRV um þessar mundir frá Agalega og St. Brandon. En 3B7 er nr. 55 á lista ClubLog yfir eftirsóttustu DXCC einingarnar.
Alls mættu 27 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld í mildu rigningarveðri í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA og Wilhelm Sigurðsson TF3AWS. Fjær: Mathías Hagvaag TF3MH, Jón Björnsson TF3PW, Andrés Þórarinsson TF1AM og Hrafnkell Sigurðsson TF8KY.Jón Björnsson TF3PW, Andrés Þórarinsson TF1AM og Hrafnkell Sigurðsson TF8KY.Sigurður Smári Hreinsson TF8SM og Jón E. Guðmundsson TF8KW.Mathías Hagvaag TF3MH. Fjær: Björgvin Víglundsson TF3BOI.Sveinn Goði Sveinsson TF3ID.Njáll H. Hilmarsson TF3NH og Jón Svavarsson TF3JON skoða 2 metra heimaloftnet (tvípól).TF3JON og TF3NH mæla VHF tvípólinn með nýjum NanoVNAloftnetsgreini Njáls. Ljósmyndir: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-03-05 07:03:232023-03-05 07:10:16OPIÐ VAR Í SKELJANESI 2. MARS
Ný vetrardagskrá ÍRA fyrir tímabilið mars-maí 2023 er tilbúin.
Dagskráin hefst á myndakvöldi í Skeljanesi, fimmtudaginn 9. mars og lýkur með erindi fimmtudaginn 25. maí n.k.
Alls verða 20 viðburðir í boði í flutningi 16 félagsmanna. Um er að ræða 8 erindi, 5 laugardagsopnanir, sunnudagsopnun, 3 námskeið og myndakvöld, auk þess sem páskaleikarnir koma inn (7.-9. apríl) og flóamarkaður að vori (7. maí).
Ný stjórn félagsins, sem kjörin var á aðalfundi ÍRA 2023, kom saman á 1. fundi 2. mars og skipti með sér verkum. Skipan embætta starfsárið 2023/24 er eftirfarandi:
Jónas Bjarnason TF3JB, formaður. Andrés Þórarinsson, TF1AM varaformaður. Georg Kulp, TF3GZ ritari. Jón Björnsson TF3PW, gjaldkeri. Njáll H. Hilmarsson, TF3NH meðstjórnandi. Sæmundur Þorsteinsson TF3UA, varamaður. Heimir Konráðsson TF1EIN, varamaður.
Stjórn ÍRA.
.
Frá fyrsta fundi nýrrar stjórnar ÍRA starfsárið 2023/24 þann 2. mars 2023. Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA varastjórn, Njáll H. Hilmarsson TF3NH meðstjórnandi, Heimir Konráðsson TF1EIN varastjórn, Andrés Þórarinsson TF1AM varaformaður, Jónas Bjarnason TF3JB formaður, Jón Björnsson TF3PW gjaldkeri, Georg Kulp TF3GZ ritari og Guðmundur Sigurðsson TF3GS fráfarandi ritari. Ljósmynd: TF3JON.
SSB hluti ARRL International DX keppninnar 2023 verður haldinn 4.-5. mars n.k. Keppnin stendur í tvo sólarhringa; hefst á miðnætti á laugardag og lýkur á sunnudagskvöld kl. 23:59.
Markmiðið er að hafa eins mörg QSO og mögulegt er við aðrar stöðvar radíóamatöra í Bandaríkjunum og Kanada.
Hvert ríki í Bandaríkjunum og hvert fylki í Kanada telja. Öll ríki í Bandaríkjunum gilda þannig sem margfaldarar (nema KH6 og KL7) en “District of Columbia, DC” kemur inn sem margfaldari í keppninni.
Í Kanada gilda fylkin: NB (VE1, 9); NS (VE1); QC (VE2); ON (VE3); MB (VE4); SK (VE5); AB (VE6); BC (VE7); NWT (VE8); NF (VO1); LB (VO2); NU (VYØ); YT (VY1); og PEI (VY2).
Frestur til að skila inn keppnisdagbókum er 7 sólarhringar eftir að keppni lýkur.