Keppnisgögn voru send fyrir þrjú íslensk kallmerki í morshluta CQ WW DX 160 metra keppninnar 2021 sem fram fór 29.-31. janúar s.l. Íslensku stöðvarnar skiptust á þrjá keppnisflokka:
TF1AM – einmenningsflokkur , aðstoð, háafl.
TF3SG – einmenningsflokkur, háafl.
TF3Y – einmenningsflokkur, lágafl.
Lokaniðurstöður verða birtar í ágústhefti CQ tímaritsins 2021.
Eftirfarandi upplýsingar komu fram í fjölmiðlum í dag, 4. febrúar:
„Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna að hann myndi senda minnisblað á heilbrigðisráðuneytið öðrum hvorum megin við helgi um vægar tilslakanir á sóttvarnalögum. Að öðru leyti vildi Þórólfur ekki tjá sig um með hvaða hætti þær tilslakanir yrðu“ Heimild: https://www.mbl.is/frettir/
Þessar upplýsingar vekja aukna bjartsýni um að hægt verði að opna félagsaðstöðuna í Skeljanesi á ný fimmtudaginn 18. febrúar n.k. Upplýsingarnar eru m.a. jákvæðar í ljósi umræðna sem fram fóru á stjórnarfundi í ÍRA 5. janúar s.l., þess efnis að athugað verði sérstaklega með opnun í Skeljanesi sem fyrst, jafnvel með einhverjum takmörkunum.
Stjórn ÍRA.
.
.
.
Úr fundarsal ÍRA (suðurhluta) í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Ljósmynd: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2021-02-04 13:05:162021-02-04 21:12:22AUKIN BJARTSÝNI UM OPNUN 18 FEBRÚAR
Nýlega voru teknar saman upplýsingar um TF kallmerki sem fengu skráningu á þyrpingu (e. cluster) vikuna 3.-9. janúar 2021. Til fróðleiks var gerð ný samantekt (VIRKNI-II) fyrir vikuna 25-31. janúar.
Alls voru 13 TF kallmerki skráð á þyrpingu nú samanborið við 14 kallmerki áður. Flestar stöðvar voru virkar á stafrænum mótunum (FT8, FT4), en einnig á morsi (CW) og tali (SSB). Stöðvarnar voru QRV á 12, 15, 17, 20, 40 og 80 metrum.
Kallmerki fá skráningu á þyrpingu, þegar erlendur leyfishafi haft samband og eða heyrir í viðkomandi TF kallmerki, auk þess sem hlustarar setja stundum inn skráningar. Þessa viku voru skilyrði ekkert sérstök á HF (frekar en fyrri vikuna). Upplýsingarnar eru fengnar áhttp://www.dxsummit.fi/#/Fleiri sambærilegar síður eru í boði á netinu og sem skoða má til samanburðar.
Fyrst er skráð kallmerki, þá tegund(ir) útgeislunar og band/bönd sem kallmerki fær skráningu á:
Kallmerki sem voru í fyrri samantekt en eru ekki með að þessu sinni: TF1A, TF1AM, TF1EIN, TF3AO, TF3IG og TF3VG.
Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.
Stjórn ÍRA.
Mathías Hagvaag TF3MH var QRV á HF vikuna 25.-31. janúar s.l. samkvæmt skráningu á þyrpingu. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar hann tók þátt í VHF/UHF leikum ÍRA 2020 (ásamt fleirum) frá félagsstöðinni TF3IRA i Skeljanesi. Ljósmynd: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2021-02-02 15:32:462021-02-02 15:38:38VÍSBENDING UM VIRKNI-II
Heimasíða félagsins er til uppfærslu um þessar mundir. Byrjað er að uppfæra undirsíður sem halda utan um fundargerðir stjórnarfunda og aðalfunda á tímabilinu 2018-2020. Þar til vinnunni er lokið má finna gögnin samkvæmt neðangreindum upplýsingum. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Myndin var tekin á aðalfundi ÍRA 2020 þann 15. febrúar á Radisson BLU Hótel Sögu í Reykjavík. Alls mættu 42 félagsmenn á fundinn. Ljósmynd: Jón Svavarsson TF3JON.
Georg Kulp, TF3GZ gerði góða ferð í Bláfjöll í dag, 29. janúar.
Verkefnið var að hækka og snúa loftneti VHF endurvarpans TF3RPB, til að reyna að losna við truflanir sem hafa komið inn á stöðina að undanförnu, en mikið RF svið er á fjallinu og þegar ísing er mikil ber meira á truflunum.
Loftnetið var hækkað u.þ.b. um ¼ λ og gerð breyting á bestri stefnu, ca. úr norðaustri í austur.
Georg var ánægður með ferðina og sagði að nú þurfi félagarnir að vera duglegir að prófa endurvarpann til að staðfesta að truflanir hafi minnkað/horfið og verkefnið hafi tekist.
Bestu þakkir til Georgs fyrir ferð á fjallið um hávetur.
Stjórn ÍRA.
.
.
.
.
.
Loftnetaskógurinn í Bláfjöllum er í 690 metra hæð yfir sjávarmáli. Loftnetið fyrir VHF endurvarpann TF3RPB er lengst til hægri á myndinni. Það er frá Kathrein; tveir lóðréttir „folded“ tvípólar sem eru fasaðir saman. Georg þurfti að berja ísinguna af netinu, en sjá má hvernig það var aðkomu á minni ljósmyndinni. Ljósmyndir: Georg Kulp TF3GZ.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2021-01-29 18:50:212021-01-29 19:07:46FERÐ Í BLÁFJÖLL 29. JANÚAR
CQ WW DX morskeppnin 2021 fer fram um helgina. Keppnin hefst á föstudag 29. janúar kl. 22:00 og lýkur á sunnudag 31. janúar kl. 22:00. Markmiðið er að ná eins mörgum samböndum og unnt er við aðrar stöðvar radíóamatöra um allan heim á keppnistímanum.
QSO punktar. QSO við TF stöðvar 2 punktar; innan Evrópu 5 punktar; utan Evrópu 10 punktar og við /MM stöðvar 5 punktar.
Margfaldarar:
Einingar á DXCC lista.
Lönd á WAE lista: GM (Hjaltlandseyjar), IG9/IH9 (Lampedusa og Pantelleria eyjar), IT, JW (Bjarnareyja), TA1 (Evrópuhluti Tyrklands) og 4U1VIC.
48 ríki Bandaríkjanna (e. contiguous states) og „District of Columbia (DC)“.
Leyfilegt tíðnisvið í keppninni á IARU Svæði 1 (okkar svæði) er 1810-2000 kHz. Ath. að G-leyfishafar sem ætla að vinna á 1850-1900 kHz á fullu afli þurfa að hafa sótt um tíðni- og aflheimildir til PFS (sbr. fyrri tilkynningu dags. 23. janúar s.l.). Keppnisreglur: https://www.cqww.com/
ÍRA bárust jákvæð svör frá Póst- og fjarskiptastofnun (PSF) í desember s.l. við ósk félagsins um endurnýjun heimilda á 160 metrum og 4 metrum.
Um er að ræða tíðnisviðið 1850-1900 kHz í tilgreindum alþjóðlegum keppnum. Gildistími er til eins árs; 1.1. til 31.12.2021. Og hins vegar tíðnisviðið 70.000-70.250 MHz. Gildistími er til tveggja ára, 1.1.2021 til 31.12.2022.
Leyfishafar þurfa að sækja um og endurnýja sérheimildir til PFS, þar sem eldri heilmildir féllu úr gildi 31. desember s.l. Senda má tölvupóst til hrh [hjá] pfs.is eða pfs [hjá] pfs.is áður en sendingar eru hafnar. Tilgreina skal, að sótt sé um heimild(ir) fyrir nýtt tímabil (sbr. ofangreint).
Myndin er af Icom IC-7600 HF/50MHz stöð sem m.a. hefur 100W sendi á 160 metrum.Myndin er af Icom IC-7100 HF/VHF/UHF stöð sem m.a. hefur 50W sendi á 4 metrum.
ÍRA stóð fyrir þremur fjarskiptaviðburðum á árinu 2020. Um er að ræða: (1) Páskaleikana sem haldnir voru 11.-12. apríl; (2) VHF/UHF leikana sem haldnir voru 10.-12. júlí ; og (3) TF útileikana sem haldnir voru 1.-3. ágúst.
Líkt og flestum er kunnugt tókst ekki að afhenda verðlaun og viðurkenningar á árinu 2020 vegna Covid-19 faraldursins. Vonir eru bundnar við að nú rofi til með tilslakanir á næstunni, svo hægt verði að opna félagsaðstöðuna í Skeljanesi, þar sem skýrt verður formlega frá úrslitum og umsjónarmenn viðburðanna munu afhenda viðurkenningar.
Glæsilegir verðlaunagripir verða til afhendingar fyrir 1.-3. sætin í Páskaleikunum og fyrir 1.-3. sætin í VHF/UHF leikunum, auk þess sem sérstök viðurkenningarskjöl verða nú afhent í fyrsta skipti í VHF/UHF leikunum. Þá verður sérstakur ágrafinn verðlaunaplatti afhentur fyrir 1. sætið í TF útileikunum, auk þess sem viðurkenningarskjöl verða veitt fyrir fyrstu 5 sætin.
Þessu til viðbótar voru framleidd glæsileg verðlaun fyrir nýtt Íslandsmet í lengd fjarskiptasambands á 1.2 GHz tíðnisviði í VHF/UHF leikunum (nú annað árið í röð). Þau verða til afhendingar á aðalfundi 2021.
Marko-Merki ehf., og Brynjólfur Jónsson, TF5B fá þakkir fyrir framleiðslu verðlaunagripa og skrautritun viðurkenningarskjala.
Stjórn ÍRA.
Verðlaun og viðurkenningar sem bíða afhendingar. Viðurkenningarskjöl fyrir 1.-5. sætið í TF útileikunum (rauðbrúnir rammar). Viðurkenningarskjöl fyrir bestu ljósmyndina sem tekin var í VHF/UHF leikunum og fyrir skemmtilegustu færsluna á Fésbókinni í VHF/UHF leikunum (svartir rammar). Verðlaunagripir fyrir 1.-3. sæti í VHF/UHF leikunum (aftast). Þar fyrir framan eru verðlauna-gripir fyrir 1.-3. sætin í Páskaleikunum. Fremst má síðan sjá verðlaun fyrir nýtt Íslandsmet í vegalengd fjarskiptasambands á 1.2 GHz í VHF/UHF leikunum. Á milli þeirra er ágrafinn veggplatti á viðargrunni sem veittur er fyrir 1. sætið í TF útileikunum. Ljósmynd: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2021-01-17 14:55:472021-01-17 15:01:59VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGARSKJÖL