OPIÐ HÚS FIMMTUDAG 5. MARS
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 5. mars. Að venju verður húsið opnað kl. 20:00. Góður félagsskapur, kaffi, te og meðlæti og nýjustu tímaritin. Mathías Hagvaag TF3MH, QSL stjóri ÍRA, verður búinn að flokka nýjar kortasendingar erlendis frá til félagsmanna fyrir opnunartíma. Stjórn ÍRA.
