Fimmtudaginn 21. febrúar var myndakvöld í Skeljanesi og var fyrst sýnd ný DVD mynd frá DX-leiðangri til Miðbaugs Gíneu og Annobon eyju undan vesturströnd Afríku. Í myndbandinu var áhugaverð frásögn frá DX-leiðangri leyfishafa frá Lettlandi, þeirra YL1ZF, YL2GM og YL2KL. Þeir höfðu alls 86 þúsund QSO og þ.á.m. við íslenska leyfishafa. Myndasýningin var í boði Óskars Sverrissonar, TF3DC.
Óskar sýndi okkur einnig úr mynd frá síðasta DX-leiðangri sem farinn var til Peter 1 eyju á Suðurheimsskautslandinu. Myndin veitti góða innsýn í erfiðar aðstæður leiðangursins sem farinn var árið 2006. Alls voru höfð 87 þúsund QSO. Myndin er í eigu félagsins og var gefin á sínum tíma af Brynjólfi Jónssyni, TF5B.
Að lokum fengum við að sjá úr mynd frá frægum DX-leiðangri til Malpelo eyju sem í raun er stór klettur í austur-Kyrrahafi, um 500 km vestur af Kólumbíu. Afar fróðleg mynd, en á sex vikum höfðu þátttakendur yfir 190 þúsund QSO. Þeir settu upp búðir efst á klettinum, sem ekki er nema 1600 metrar á lengd og 700 metrar á breidd.
Bestu þakkir til Óskars Sverrissonar, TF3DC fyrir skemmtilegt myndakvöld í Skeljanesi. Alls mættu 24 félagar þetta vindasama vetrarkvöld í Reykjavík, þar af þrír gestir.
Aðalfundur ÍRA árið 2019 var haldinn 16. febrúar s.l. á Hótel Sögu í Reykjavík. Meðal gagna sem lögð voru fram á fundinum var skýrsla formanns um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
Skýrslan var lögð fram á prentuðu formi. Hún skiptist í 11 kafla og tvo viðauka, auk formála og efnisyfirlits. Hún er alls 136 blaðsíður að stærð.
VEFSLÓÐ Á ÁRSSKÝRSLU ÍRA 2018-2019 ER HÉR FYRIR NEÐAN:
Fimmtudaginn 21. febrúar verður sýnt nýtt DVD myndband frá DX-leiðangri til Miðbaugs Gíneu og Annoban, 3C3W & 3CØW sem margir TF leyfishafar náðu sambandi við.
Í myndbandinu er áhugaverð frásögn frá ferðum þeirra YL1ZF,
YL2GM og YL2KL til þessara DXCC landa í febrúar og mars 2018. Skemmtileg og
fróðleg innsýn í ferðir af þessu tagi.
Þeir félagar hafa verið heiðraðir fyrir vel heppnaðar ferðir,
m.a. af SWODXA, The Intrepid DX Group og GDXF, sem „DXpedition of The Year“,
„The Intrepid DX Group Award“ og „GDXF Trophy Best DXpedition“.
Góðar kaffiveitingar verða í boði í Skeljanesi og
DX-umræður. Viðburðurinn er í boði Óskars Sverrissonar, TF3DC.
Þakka félagsmönnum símtöl og tölvupósta með góðum orðum og
umsögnum um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. Þessi jákvæðu viðbrögð í
kjölfar aðalfundar 2019 eru okkur í nýrri stjórn, hvatning til góðra verka á
komandi starfsári.
Þeir sem ekki áttu þess kost að koma á aðalfundinn á Hótel Sögu á laugardag spyrja um ársskýrsluna, sem afhent var prentuð á fundinum ásamt fleiri gögnum. Skýrslan verður til birtingar hér á heimasíðunni á PDF-formi innan örfárra daga.
Önnur gögn, þ.á.m. fundargerð og ársreikningur verða til birtingar í 2. tbl. CQ TF sem kemur út 31. mars n.k.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-02-18 13:11:082019-02-19 15:31:54Þakkir til félagsmanna…
Aðalfundur ÍRA 2019 var haldinn 16. febrúar í fundarsal Radisson Blu Hótel Sögu í Reykjavík. Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt ákvæðum í lögum félagsins.
Embættismenn fundarins voru kjörnir þeir Vilhjálmur Í.
Sigurjónsson, TF3VS, fundarstjóri og Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA,
fundarritari. Alls sóttu 37 félagsmenn fundinn samkvæmt skráningu í viðverubók.
Fundurinn var settur kl. 13:10 og slitið kl. 14:30.
Eftirtaldir skipa nýja stjórn félagsins fyrir starfstímabilið 2019-2020: Jónas Bjarnason, TF3JB, formaður (endurkjörinn); Óskar Sverrisson, TF3DC (situr sitt síðara kjörtímabil), Georg Magnússon, TF2LL (situr sitt síðara kjörtímabil), Guðmundur Sigurðsson, TF3GS (kjörinn til 2 ára) og Jón Björnsson, TF3PW (kjörinn til 2 ára). Varamenn til 1 árs voru kjörnir þeir Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA (endurkjörinn) og Heimir Konráðsson, TF1EIN. Stjórnin mun skipta með sér verkum á næstunni.
Skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnir þeir Haukur
Konráðsson, TF3HK og Yngvi Harðarson, TF3Y og til vara, Vilhjálmur Í.
Sigurjónsson, TF3VS. Félagsgjald var samþykkt óbreytt frá fyrra ári, 6500
krónur fyrir starfsárið 2019-2020. Stjórnin mun skipta með sér verkum
fljótlega.
Skýrsla stjórnar og önnur aðalfundargögn verða til birtingar innan tíðar hér á heimasíðunni.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-02-17 12:03:552019-02-17 15:49:10FRÉTTIR FRÁ AÐALFUNDI ÍRA 16. febrúar 2019
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-02-13 16:36:562019-02-13 16:37:38Sæmundur TF3UA í viðtali á RÚV rás 1
https://www.ira.is/wp-content/uploads/2019/02/Hekla_hotelsaga_radisson.jpg444666TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-02-10 12:30:072019-02-10 12:30:09AÐALFUNDUR ÍRA 2019 VERÐUR Á LAUGARDAG
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætti í Skeljanes
fimmtudaginn 7. febrúar og flutti áhugavert erindi um stafræna fjarskiptakerfið
D-STAR (e. Digital Smart Technologies for Amateur Radio).
D-STAR á sér yfir 20 ára sögu, og komu japönsk stjórnvöld
fyrst að fjármögnun þess sem rannsóknarverkefnis með aðkomu landsfélags
japanskra radíóamatöra, JARL og fleirum. Icom kom síðar að verkefninu og fyrir
15 árum var D-STAR markaðssett. Kenwood bættist í hópinn fyrir tveimur árum en
Yaesu notar annað kerfi.
D-STAR tengir saman stafræn fjarskipti radíóamatöra og
netið. Stafrænn D-STAR endurvarpi er starfræktur í Bláfjöllum á UHF (TF3RPI).
Hann hefur gátt yfir netið út í heim. Endurvarpinn er í eigu Ólafs B.
Ólafssonar, TF3ML.
D-STAR fjarskiptastöðvar eru fáanlegar fyrir HF, VHF og UHF
tíðnisviðin og fór Ari vel yfir möguleikana og hvernig tengjast má kerfinu. Í
raun er kallmerkið lykillinn og aðgangur að kerfinu um allan heim.
Ari flutti okkur fróðlega innsýn í þennan forvitnilega heim
fjarskiptanna sem hefur ekki mikið verið nýtur hér á landi. Þó kom fram hjá Ara
að 18 íslensk kallmerki eru skráð í gagnagrunn D-STAR.
Alls mættu 24 félagsmenn í Skeljanes á þetta fyrsta erindi á
nýrri vetrardagskrá ÍRA fyrir febrúar-maí 2019. Ari fékk að lokum gott klapp
fyrir fróðlegt og áhugavert erindi þetta ágæta fimmtudagskvöld.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-02-08 02:01:082019-02-08 02:03:04ARI ÞÓRÓLFUR TF1A VAR MEÐ ERINDI UM D-STAR
Fyrsta erindi á nýrri vetrardagskrá ÍRA fyrir tímabilið febrúar-maí
verður í boði fimmtudaginn 7. febrúar kl. 20:30.
Þá mætir Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A í Skeljanes með
erindi um D-STAR fjarskiptakerfið (e. Digital Smart Technologies for Amateur
Radio).
D-STAR fjarskiptastöðvar eru fáanlegar fyrir HF, VHF og UHF tíðnisviðin.
Stafrænn D-STAR endurvarpi er starfræktur í Bláfjöllum á UHF (TF3RPI). Hann
hefur gátt yfir netið út í heim.
Stjórn ÍRA hvetur félaga til að mæta tímanlega.
Kaffiveitingar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-02-05 01:46:342019-02-05 01:46:36ERINDI TF1A VERÐUR Á FIMMTUDAG 7. FEBRÚAR
ÍRA auglýsti 6. janúar s.l. eftir áhuga á að taka þátt í
námskeiði til amatörprófs í febrúar-maí 2019. Frestur var gefinn til 20. janúar,
en síðar framlengdur til 31. janúar. Fyrirspurnir bárust, en aðeins fjórir
skráðu sig.
Í ljósi þessa hefur verið ákveðið í samráði við prófnefnd og umsjónarmann námskeiða, að falla frá námskeiðshaldi nú, en stefna þess í stað að námskeiði í október-desember n.k.
Til greina kemur að félagið fari þess á leit við Póst- og fjarskiptastofnun að efnt verði til prófs til amatörleyfis í maí n.k. (án undangengins námskeiðs).
Áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst til félagsins á „ira hjá ira.is“ fyrir 15. febrúar n.k. Slíkum pósti fylgir engin skuldbinding, en veitir félaginu mikilvægar upplýsingar um áhuga á prófi.
Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A kemur með mælitækin í Skeljanes laugardaginn 2. febrúar. Húsið opnar kl. 14:00.
Að þessu sinni verða gerðar mælingar á fjórum ICOM HF/50 MHz stöðvum, IC-7100, IC-7300, IC-7610 og IC-7851. Þess má geta að 7851 er flaggskipið frá Icom og aðeins er vitað um tvær ICOM IC-7851 stöðvar á landinu.
MYNDAKVÖLD Í SKELJANESI, DX-LEIÐANGRAR
Fimmtudaginn 21. febrúar var myndakvöld í Skeljanesi og var fyrst sýnd ný DVD mynd frá DX-leiðangri til Miðbaugs Gíneu og Annobon eyju undan vesturströnd Afríku. Í myndbandinu var áhugaverð frásögn frá DX-leiðangri leyfishafa frá Lettlandi, þeirra YL1ZF, YL2GM og YL2KL. Þeir höfðu alls 86 þúsund QSO og þ.á.m. við íslenska leyfishafa. Myndasýningin var í boði Óskars Sverrissonar, TF3DC.
Óskar sýndi okkur einnig úr mynd frá síðasta DX-leiðangri sem farinn var til Peter 1 eyju á Suðurheimsskautslandinu. Myndin veitti góða innsýn í erfiðar aðstæður leiðangursins sem farinn var árið 2006. Alls voru höfð 87 þúsund QSO. Myndin er í eigu félagsins og var gefin á sínum tíma af Brynjólfi Jónssyni, TF5B.
Að lokum fengum við að sjá úr mynd frá frægum DX-leiðangri til Malpelo eyju sem í raun er stór klettur í austur-Kyrrahafi, um 500 km vestur af Kólumbíu. Afar fróðleg mynd, en á sex vikum höfðu þátttakendur yfir 190 þúsund QSO. Þeir settu upp búðir efst á klettinum, sem ekki er nema 1600 metrar á lengd og 700 metrar á breidd.
Bestu þakkir til Óskars Sverrissonar, TF3DC fyrir skemmtilegt myndakvöld í Skeljanesi. Alls mættu 24 félagar þetta vindasama vetrarkvöld í Reykjavík, þar af þrír gestir.
Ársskýrsla ÍRA 2018/19
Aðalfundur ÍRA árið 2019 var haldinn 16. febrúar s.l. á Hótel Sögu í Reykjavík. Meðal gagna sem lögð voru fram á fundinum var skýrsla formanns um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
Skýrslan var lögð fram á prentuðu formi. Hún skiptist í 11 kafla og tvo viðauka, auk formála og efnisyfirlits. Hún er alls 136 blaðsíður að stærð.
VEFSLÓÐ Á ÁRSSKÝRSLU ÍRA 2018-2019 ER HÉR FYRIR NEÐAN:
http://www.ira.is/wp-content/uploads/2019/02/20190216-arsskrysla-tf3jb.pdf
MYNDBAND Í SKELJANESI FIMMTUDAG, 21. FEBR.
Fimmtudaginn 21. febrúar verður sýnt nýtt DVD myndband frá DX-leiðangri til Miðbaugs Gíneu og Annoban, 3C3W & 3CØW sem margir TF leyfishafar náðu sambandi við.
Í myndbandinu er áhugaverð frásögn frá ferðum þeirra YL1ZF, YL2GM og YL2KL til þessara DXCC landa í febrúar og mars 2018. Skemmtileg og fróðleg innsýn í ferðir af þessu tagi.
Þeir félagar hafa verið heiðraðir fyrir vel heppnaðar ferðir, m.a. af SWODXA, The Intrepid DX Group og GDXF, sem „DXpedition of The Year“, „The Intrepid DX Group Award“ og „GDXF Trophy Best DXpedition“.
Góðar kaffiveitingar verða í boði í Skeljanesi og DX-umræður. Viðburðurinn er í boði Óskars Sverrissonar, TF3DC.
Þakkir til félagsmanna…
Þakka félagsmönnum símtöl og tölvupósta með góðum orðum og umsögnum um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. Þessi jákvæðu viðbrögð í kjölfar aðalfundar 2019 eru okkur í nýrri stjórn, hvatning til góðra verka á komandi starfsári.
Þeir sem ekki áttu þess kost að koma á aðalfundinn á Hótel Sögu á laugardag spyrja um ársskýrsluna, sem afhent var prentuð á fundinum ásamt fleiri gögnum. Skýrslan verður til birtingar hér á heimasíðunni á PDF-formi innan örfárra daga.
Önnur gögn, þ.á.m. fundargerð og ársreikningur verða til birtingar í 2. tbl. CQ TF sem kemur út 31. mars n.k.
73,
Jónas Bjarnson, TF3JB, formaður.
FRÉTTIR FRÁ AÐALFUNDI ÍRA 16. febrúar 2019
Aðalfundur ÍRA 2019 var haldinn 16. febrúar í fundarsal Radisson Blu Hótel Sögu í Reykjavík. Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt ákvæðum í lögum félagsins.
Embættismenn fundarins voru kjörnir þeir Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS, fundarstjóri og Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA, fundarritari. Alls sóttu 37 félagsmenn fundinn samkvæmt skráningu í viðverubók. Fundurinn var settur kl. 13:10 og slitið kl. 14:30.
Eftirtaldir skipa nýja stjórn félagsins fyrir starfstímabilið 2019-2020: Jónas Bjarnason, TF3JB, formaður (endurkjörinn); Óskar Sverrisson, TF3DC (situr sitt síðara kjörtímabil), Georg Magnússon, TF2LL (situr sitt síðara kjörtímabil), Guðmundur Sigurðsson, TF3GS (kjörinn til 2 ára) og Jón Björnsson, TF3PW (kjörinn til 2 ára). Varamenn til 1 árs voru kjörnir þeir Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA (endurkjörinn) og Heimir Konráðsson, TF1EIN. Stjórnin mun skipta með sér verkum á næstunni.
Skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnir þeir Haukur Konráðsson, TF3HK og Yngvi Harðarson, TF3Y og til vara, Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS. Félagsgjald var samþykkt óbreytt frá fyrra ári, 6500 krónur fyrir starfsárið 2019-2020. Stjórnin mun skipta með sér verkum fljótlega.
Skýrsla stjórnar og önnur aðalfundargögn verða til birtingar innan tíðar hér á heimasíðunni.
Sæmundur TF3UA í viðtali á RÚV rás 1
Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA var í viðtali í útvarpsþættinum „Mannlegi Þátturinn“ á RÚV Rás 1 í morgun, 13. febrúar.
Skemmtilegt og fróðlegt viðtal. Sjá meðfylgjandi slóð.
http://www.ruv.is/utvarp/spila/mannlegi-thatturinn/23616…
Skeljanesi 8. nóvember 2018. Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA flytur erindi um fæðilínur í félagsaðstöðunni. Ljósmynd: Jónas Bjarnason TF3JB.
FIMMTUDAGUR Í SKELJANESI, OPIÐ HÚS 14. FEB.
Opið hús verður í Skeljanesi fimmtudaginn 14. febrúar kl. 20-22.
Opin málaskrá, kaffi, kex, kökur og góður félagsskapur.
Vetrardagskrá 2019 heldur síðan áfram fimmtudaginn 21. febrúar n.k.
–
AÐALFUNDUR ÍRA 2019 VERÐUR Á LAUGARDAG
Minnt er á fyrri tilkynningar þess efnis að aðalfundur ÍRA 2019 verður haldinn laugardaginn 16. febrúar n.k.
Fundarstaður er Radisson BLU Hótel Saga við Hagatorg í Reykjavík og hefst fundurinn stundvíslega kl. 13:00.
Dagskrá er samkvæmt 19. gr. félagslaga.
Fyrir hönd stjórnar,
Jónas Bjarnason, TF3JB, formaður.
ARI ÞÓRÓLFUR TF1A VAR MEÐ ERINDI UM D-STAR
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 7. febrúar og flutti áhugavert erindi um stafræna fjarskiptakerfið D-STAR (e. Digital Smart Technologies for Amateur Radio).
D-STAR á sér yfir 20 ára sögu, og komu japönsk stjórnvöld fyrst að fjármögnun þess sem rannsóknarverkefnis með aðkomu landsfélags japanskra radíóamatöra, JARL og fleirum. Icom kom síðar að verkefninu og fyrir 15 árum var D-STAR markaðssett. Kenwood bættist í hópinn fyrir tveimur árum en Yaesu notar annað kerfi.
D-STAR tengir saman stafræn fjarskipti radíóamatöra og netið. Stafrænn D-STAR endurvarpi er starfræktur í Bláfjöllum á UHF (TF3RPI). Hann hefur gátt yfir netið út í heim. Endurvarpinn er í eigu Ólafs B. Ólafssonar, TF3ML.
D-STAR fjarskiptastöðvar eru fáanlegar fyrir HF, VHF og UHF tíðnisviðin og fór Ari vel yfir möguleikana og hvernig tengjast má kerfinu. Í raun er kallmerkið lykillinn og aðgangur að kerfinu um allan heim.
Ari flutti okkur fróðlega innsýn í þennan forvitnilega heim fjarskiptanna sem hefur ekki mikið verið nýtur hér á landi. Þó kom fram hjá Ara að 18 íslensk kallmerki eru skráð í gagnagrunn D-STAR.
Alls mættu 24 félagsmenn í Skeljanes á þetta fyrsta erindi á nýrri vetrardagskrá ÍRA fyrir febrúar-maí 2019. Ari fékk að lokum gott klapp fyrir fróðlegt og áhugavert erindi þetta ágæta fimmtudagskvöld.
ERINDI TF1A VERÐUR Á FIMMTUDAG 7. FEBRÚAR
Fyrsta erindi á nýrri vetrardagskrá ÍRA fyrir tímabilið febrúar-maí verður í boði fimmtudaginn 7. febrúar kl. 20:30.
Þá mætir Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A í Skeljanes með erindi um D-STAR fjarskiptakerfið (e. Digital Smart Technologies for Amateur Radio).
D-STAR fjarskiptastöðvar eru fáanlegar fyrir HF, VHF og UHF tíðnisviðin. Stafrænn D-STAR endurvarpi er starfræktur í Bláfjöllum á UHF (TF3RPI). Hann hefur gátt yfir netið út í heim.
Stjórn ÍRA hvetur félaga til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar.
NÁMSKEIÐ TIL AMATÖRPRÓFS FRESTAST
ÍRA auglýsti 6. janúar s.l. eftir áhuga á að taka þátt í námskeiði til amatörprófs í febrúar-maí 2019. Frestur var gefinn til 20. janúar, en síðar framlengdur til 31. janúar. Fyrirspurnir bárust, en aðeins fjórir skráðu sig.
Í ljósi þessa hefur verið ákveðið í samráði við prófnefnd og umsjónarmann námskeiða, að falla frá námskeiðshaldi nú, en stefna þess í stað að námskeiði í október-desember n.k.
Til greina kemur að félagið fari þess á leit við Póst- og fjarskiptastofnun að efnt verði til prófs til amatörleyfis í maí n.k. (án undangengins námskeiðs).
Áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst til félagsins á „ira hjá ira.is“ fyrir 15. febrúar n.k. Slíkum pósti fylgir engin skuldbinding, en veitir félaginu mikilvægar upplýsingar um áhuga á prófi.
MÆLINGARLAUGARDAGUR Í SKELJANESI 2. FEBR.
Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A kemur með mælitækin í Skeljanes laugardaginn 2. febrúar. Húsið opnar kl. 14:00.
Að þessu sinni verða gerðar mælingar á fjórum ICOM HF/50 MHz stöðvum, IC-7100, IC-7300, IC-7610 og IC-7851. Þess má geta að 7851 er flaggskipið frá Icom og aðeins er vitað um tvær ICOM IC-7851 stöðvar á landinu.
Í boði verður kaffi og gott meðlæti.