,

VITA- OG VITASKIPAHELGIN 2022

Alþjóðlega vita- og vitaskipahelgin verður haldin nú um helgina, 20.-21. ágúst. Vefslóð viðburðarins: https://illw.net/index.php/entrants-list-2022

Tveir íslenskir vitar höfðu verið skráðir í dag, 19. ágúst. Það eru Knarrarósviti (IS-0001) austan við Stokkseyri og Garðskagaviti (IS-0002) á Reykjanesi.

Svanur Hjálmarsson, TF3AB mun virkja Knarrarósvita á HF og Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A um QO-100 gervihnöttinn.

Á sunnudag mun Ari Þórólfur flytja sig um set og virkja Garðskagavita (einnig um QO-100).

Bestu þakkir til þeirra Svans og Ara Þórólfs fyrir fyrir gott framtak.

Stjórn ÍRA.

Myndin er af Svani Hjálmarssyni, TF3AB þegar hann virkjaði TF1IRA frá Knarrarósvita í fyrra (2021). Hér er hann við tækin sem hann setti upp í fortjaldi við hjólhýsi sitt við vitann. Ljósmynd: Andrés Þórarinsson TF3AM.

Myndin er af Daggeiri Pálssyni TF7DHP og Ari Þórólfur Jóhannessyni TF1A við QO-100 ferðaloftnet Ara þegar hann virkjaði gervitunglið á Akureyri fyrr í mánuðinum. Ljósmynd: XYL TF1A.
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

four − two =