,

VITA- OG VITASKIPAHELGIN 2020

Alþjóðlega vita- og vitaskipahelgin 2020 fer fram helgina 22.-23. ágúst n.k. Um er að ræða tveggja sólarhringa viðburð, en miðað er við að flestir sem koma til dvalar í vita, á vitaskipi eða í nágrenni vita hafi komið sér fyrir upp úr hádegi á laugardag.

Í dag, 11. ágúst, hafa tveir íslenskir vitar verið skráðir til þátttöku á heimasíðu viðburðarins:

  • Knarrarósviti, ÍS-0001: Svanur Hjálmarsson TF3AB og Ársæll Óskarsson TF3AO ásamt fleirum. Knarrarósviti er staðsettur í um 5 km fjarlægð frá Stokkseyri.
  • Selvogsviti, ÍS-0006: Ólafur Örn Ólafsson TF1OL. Selvogsviti er staðsettur austarlega á sunnanverðum Reykjanesskaga.

Að jafnaði eru yfir 500 tilgreind kallmerki starfrækt þessa helgi frá um 40 þjóðlöndum.

Stjórn ÍRA óskar viðkomandi góðs gengis.

Vefslóð:  https://www.illw.net/index.php/entrants-list-2020

Knarrarósviti stendur austan við Stokkseyri. Hann er 26,2 metrar á hæð og var hannaður af Axel Sveinssyni verkfræðingi eftir hugmyndum Guðjóns Samúelssonar húsameistara ríkisins árin 1938-1939 og var fyrsti viti hér á landi byggður úr steinsteypu.
Selvogsviti er staðsettur á sunnanverðum Reykjanesskaga. Hann var byggður árið 1919 og endurbyggður árið 1931 þegar byggður var 15,8 m hár vitaturn úr steinsteypu. Árið 1987 voru veggir ljóshúss endurnýjaðir. Vitinn var raflýstur ári síðar og settur á hann radarsvari.

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

four × 3 =