Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 2. desember frá kl. 20-22:00.
Athugið að grímuskylda er í húsnæðinu. Kaffiveitingar verða ekki í boði. Fjarskiptaherbergi TF3IRA og QSL herbergi verða opin, en fjöldi félaga þar er takmarkaður.
Þessar kröfur eru gerðar í ljósi gildandi reglugerðar heilbrigðisráðherra um hertar opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna Covod-19 – en sér í lagi vegna ríkjandi óvissu í ljósi um nýja bylgju Covid-19 faraldursins.
Vegna kórónaveirunnar er þess farið á leit, að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2021-11-30 20:21:492021-11-30 20:25:01OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 2. DESEMBER
Teknar voru saman upplýsingar um TF kallmerki sem fengu skráningu á þyrpingu (e. cluster) vikuna 23.-29. nóvember 2021. Samskonar samantektir hafa verið gerðar í átta skipti fyrr á þessu ári.
Alls fengu 16 íslenskir radíóamatörar skráningu að þessu sinni. Flestir voru QRV á stafrænum mótunum (FT8 og FT4), en einnig á morsi (CW) og tali (SSB) á 10, 15, 17, 20, 30, 40, 60, 80 og 160 metrum, auk QO-100 gervitunglsins.
Upplýsingarnar eru fengnar á http://www.dxsummit.fi/#/ Sambærilegar síður eru í boði á netinu til samanburðar. Fyrst er skráð kallmerki, þá tegund/-ir útgeislunar og band/bönd:
TF1A FT8 á 15, 40 og 160 metrum. TF1AM CW á 40 og 160 metrum. TF1EIN FT8 á 15 og 60 metrum. TF1OL/P FT4 og FT8 á 15 og 20 metrum. TF2CT FT8 á 30 metrum. TF2MSN FT8 og SSB, 15, 20 og 160 metrum. TF3E SSB á 20 metrum og um QO-100. TF3IG CW á 10 metrum. TF3JB FT8 á 80 metrum. TF3PPN FT4 og FT8 á 15 og 20 metrum. TF3SG CW á 15, 20, 40, 80 og 160 metrum. TF3VE FT8 á 60 metrum. TF3VG FT8 á 60 metrum. TF3W CW á 40 og 80 metrum. TF3XO SSB á 20 metrum. TF5B FT8 á 17 og 40 metrum.
Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.
Stjórn ÍRA.
Guðmundur Ingi Hjálmtýsson TF3IG var virkur á tímabilinu á morsi á 10 metrum.Myndin er af glæsilegri fjarskiptaaðstöðu hans í Mosfellsbæ.Ljósmynd: Andrés Þórarinsson TF3AM.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2021-11-29 21:27:372021-11-30 15:33:05VÍSBENDING UM VIRKNI
Opið hús var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 25. nóvember.
Þetta var annað opnunarkvöldið í röð í nokkurn tíma með grímuskyldu, án kaffiveitinga og sem að fjarskiptaherbergi og QSL herbergi voru með takmarkaðan aðgang – enda ríkjandi óvissa þar sem nú virðist hafin ný bylgja af kórónaveirunni.
Góðar umræður voru í félagsaðstöðunni fram til kl. 22:30, enda ætíð næg umræðuefni þegar áhugamálið er annars vegar. Þakkir til Hans Konrads Kristjánssonar, TF3FG sem færði okkur meira af áhugaverðu radíódóti.
Alls komu 9 félagar í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld í froststillu í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
Góð stemning við stóra fundarborðið. Georg Kulp TF3GZ, Jón Björnsson TF3PW, Hans Konrad Kristjánsson TF3FG, Óskar Sverrisson TF3DC og Sveinn Goði Sveinsson TF3ID.Þó nokkuð hefur safnast upp að undanförnu af radíódóti í ganginum niðri í Skeljanesi.TF3FG færði okkur m.a. þessa fjóra Band Pass Filtera í 19″ “rack” kössum 25. nóvember. Ljósmyndir: TF3JB.
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 25. nóvember frá kl. 20:00.
Athugið að grímuskylda er í húsnæðinu. Fjarskiptaherbergi TF3IRA verður opið en mest 3 samtímis og QSL herbergi en mest 2 samtímis. Kaffiveitingar verða ekki í boði.
Þessar kröfur eru gerðar í ljósi reglugerðar heilbrigðisráðherra um hertar opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna Covod-19 – en sér í lagi vegna ríkjandi óvissu í ljósi þess að nú virðist hafin ný bylgja Covid-19.
Vegna kórónaveirunnar er þess farið á leit, að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.
Töluvert er af radíódóti í boði á ganginum niðri. Myndin er af Hans Konrad Kristjánssyni TF3FG en hann færði stóra sendingu af áhugaverðu dóti í hús s.l. fimmtudag.Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB skoðar 90 cm. loftnetsdisk sem er upplagður fyrir fjarskipti gegnum Oscar 100 gervitunglið. Er í fullkomnu lagi. Armur og LNB festingar fylgja og veggfesting getur fylgt ef óskað er. Ljósmyndir: TF3JB.
Mathías Hagvaag, TF3MH, QSL stjóri ÍRA QSL Bureau hefur tilkynnt stjórn félagsins um fyrirhugaða hækkun á gjaldskrá stofunnar.
Forsendur hafa verið skoðaðar og hefur verið ákveðið að kostnaðurfyrir hvert kort hækki frá og með 1. desember 2021 í 12 krónur.
Gjaldskráin hækkaði síðast 15. apríl 2019, úr 9,50 í 10 krónur fyrir hvert QSL kort.
Stjórn ÍRA.
Mathías Hagvaag QSL stjóri TF ÍRA QSL Bureau. Mathías sagði, að um væri að ræða uppsafnaða hækkunarþörf auk þess sem Pósturinn hafi breytt verðskrá innbyrðis fyrr á þessu ári. Ljósmynd: TF3JB.
CQ World Wide DX CW keppnin fer fram helgina 27.-28. nóvember. Þetta er 48 klst. keppni og engin tímatakmörk.
Markmiðið er að ná eins mörgum samböndum og hægt er við aðra radíóamatöra um allan heim – í eins mörgum löndum (DXCC einingum) og á eins mörgum CQ svæðum og frekast er unnt. Keppt er á 1.8, 3.5, 7, 14, 21 og 28 MHz.
Þetta er stærsta alþjóðlega keppni ársins á morsi. Í boði eru 66 mismunandi keppnisflokkar (tveir nýir bætast við í ár, „Explorer“ og „Youth“).
Stjórn félagsins hvetur félagsmenn til þátttöku og að skila inn radíódagbókum að henni lokinni.
75 ára afmæli félagsins Íslenskir radíóamatörar, ÍRA. Afmælisgjöf frá ORG – Ættfræðiþjónustunni ehf.
Oddur Helgason framkvæmdastjóri ORG – Ættfræðiþjónustunnar ehf., afhenti Jónasi Bjarnasyni, TF3JB formanni ÍRA listaverk í tilefni 75 ára afmælis félagsins í Skeljanesi 17. nóvember s.l. Afhending fór fram að viðstaddri stjórn ÍRA.
Verkið ber nafnið „Bylgjur“ og er eftir listamanninn Lúkas Kárason. Það er unnið úr rekaviði af Ströndum. Oddur sagði, að þeim Reyni Björnssyni (meðeiganda hans í ORG ehf.) hafi fundist verkið passa svo vel við starfsemi radíóamatöra sem væru jú alltaf að fást við radíóbylgjur.
Jónas þakkaði Oddi góð orð og sagðist taka við gjöfinni fyrir hönd félagsins með ánægju og þakkaði góðan hug þeirra félaga til ÍRA.
Oddur Helgason framkvæmdastjóri ORG, Ættfræðiþjónustunnar ehf. afhendir Jónasi Bjarnasyni TF3JB formanni ÍRA listaverkið Bylgjur að gjöf í tilefni 75 ára afmælis ÍRA sem var 14. ágúst 2021. Myndin var tekin þegar gjöfin var afhent formlega á stjórnarfundi í ÍRA 17. nóvember 2021. Ljósmynd: Óskar Sverrisson TF3DC.
Opið hús var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 18. nóvember.
Þetta var fyrsta opnunarkvöldið í nokkurn tíma með grímuskyldu, án kaffiveitinga og sem að fjarskiptaherbergi og QSL herbergi voru með takmarkaðan aðgang – enda ríkjandi óvissa þar sem nú virðist hafin ný bylgja af kórónaveirunni.
Menn áttu þó góða stund í félagsaðstöðunni enda ætíð næg umræðuefni þegar áhugamálið er annars vegar. Þakkir til Hans Konrads Kristjánssonar, TF3FG sem færði okkur áhugavert radíódót.
Alls komu 9 félagar í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
Allir með grímu og setið dreift. Frá vinstri: Hans Konrad Kristjánsson TF3FG, Óskar Sverrisson TF3DC, Gerog Kulp TF3GZ, Þórður Adolfsson TF3DT og Sveinn Goði Sveinsson TF3ID.Nýja HBradio blaðið frá Sviss skoðað. Georg sá m.a. frásögn frá Íslandi og ljósmyndir af þeim Ara Þórólfi Jóhannessyni TF1A í nýjasta tölublaðinu; nr. 5/2021.Hans Konrad Kristjánsson TF3FG færði okkur radíódót, m.a. tölvur, tölvuskjái og tvö eldri tæki, 100W VHF sendi og loftnets-aðlögunarrás. Ljósmyndir: TF3JB.
ÍRA barst í gær (17. nóvember) stór pakki frá landsfélagi radíóamatöra í Sviss, USKA. Um er að ræða árganga félagsblaðs þeirra, HBradio, fyrir árin 2016-2021.
USKA gefur út 6 tölublöð á ári og er hvert blað 50-80 bls. að stærð. Ný blöð munu hverju sinni berast til félagsins í pósti, það næsta í desember.
Blaðið veitir áhugaverða innsýn í viðamikið starf landsfélags radíóamatöra í Sviss. Greinar í blaðinu eru [mest] á þýsku, frönsku og ítölsku; en móðurmál meirihluta Svisslendinga er þýska.
HBradio mun liggja frammi á fimmtudagskvöldum í félagsaðstöðunni í Skeljanesi.
Erindi hefur verið sent til stjórnar USKA með þakklæti.
Stjórn ÍRA.
Myndin er af sendingunni sem barst til félagsins frá USKA í gær. Ljósmynd: TF3JB.
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 18. nóvember kl. 20-22 fyrir félagsmenn.
Stjórn ÍRA hefur ákveðið að á ný verði tekin upp grímuskylda í húsnæðinu. Fjarskiptaherbergi verður opið (mest 3 samtímis) og QSL herbergi (mest 2 samtímis). Kaffiveitingar verða ekki í boði.
Ákvörðunin er tekin í ljósi núverandi reglugerðar heilbrigðisráðherra um hertar opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna Covod-19 – en sér í lagi vegna ríkjandi óvissu í ljósi þess að nú virðist hafin ný bylgja Covid-19.
Vegna kórónaveirunnar er þess farið á leit, að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.
Teknar voru saman upplýsingar um TF kallmerki sem fengu skráningu á þyrpingu (e. cluster) vikuna 8.-14. nóvember 2021. Samskonar samantektir voru gerðar í janúar, febrúar, apríl, maí, júní, ágúst og september á þessu ári.
Alls fengu 13 íslenskir radíóamatörar skráningu að þessu sinni. Flestir voru QRV á stafrænum mótunum (FT8 og FT4), en einnig á morsi (CW), tali (SSB) og RTTY á 10, 15, 17, 20, 30, 40, 60, 80 og 160 metrum.
Upplýsingarnar eru fengnar á http://www.dxsummit.fi/#/ Sambærilegar síður eru í boði á netinu til samanburðar. Fyrst er skráð kallmerki, þá tegund/-ir útgeislunar og band/bönd:
TF1A FT8 á 10, 15, 30 og 40 metrum. TF1EIN FT8 á 60 metrum. TF2MSN FT8, SSB, RTTY á 12, 15, 17 og 20 metrum. TF3AO RTTY á 20 metrum. TF3JB FT8 á 17, 30 og 160 metrum. TF3MH FT8 á 17 metrum. TF3PPN FT8 og RTTY á 20 metrum. TF3T SSB á 10 metrum. TF3VE FT4, FT8 á 20 og 60 metrum. TF3VG FT8 á 15 o 80 metrum. TF3XO FT8 og SSB á 20 og 80 metrum. TF3Y CW á 20 metrum. TF5B FT8 á 12 og 17 metrum.
Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.
Stjórn ÍRA.
Óðinn Þór Hallgrímsson TF2MSN var virkur á tímabilinu á FT8 og SSB. Myndin er Óðini Þór í glæsilegri fjarskiptaaðstöðu hans á Akranesi. Ljósmynd: TF2MSN.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2021-11-15 21:13:442021-11-15 21:17:23VÍSBENDING UM VIRKNI
Opið hús var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 11. nóvember. Sérstakur gestur var Baldur Sigurðsson, TF6-009 félagsmaður okkar á Reyðarfirði (áður Egilsstöðum).
Mikið var rætt um loftnet, þ.á.m. dípóla og balun, vertíkala og Yagi lofnet. Einnig rætt um deltur sem geta verið spennandi lausn fyrir marga og m.a. vísað í fróðlega grein TF3KB sem birtist í næst síðasta hefti CQ TF (3. tbl. 2021).
Rætt um skilyrðin, en um helgina er síðasta stóra RTTY keppni ársins (WAE) á HF. Að mörgu leyti mjög áhugaverð keppni og vinsæl. Margir eru ánægðir með að 80 metrarnir eru lægsta band í keppninni því fæstir sem búa í þéttbýli hafa tök á að setja upp vel nothæft DX loftnet á því bandi.
Góð mæting var miðað við hve Covid-19 faraldurinn er að ná sér á strik, en 12 félagar komu í Skeljanes þetta frostmilda fimmtudagskvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Nýjustu tímaritunum flett yfir kaffinu við stóra fundarborðið. Garðar Valberg Sveinsson TF8YY, Sveinn Goði Sveinsson TF3ID, Wilhelm Sigurðsson TF3AWS og Mathías Hagvaag TF3MH.Georg Kulp TF3GZ og Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS í herbergi QSL stofunnar á 2. hæð. Georg Kulp TF3GZ, Baldur Sigurðsson TF6-009 og Þórður Adolfsson TF3DT í fjarskiptaherbergi TF3IRA.Georg Kulp TF3GZ, Björgvin Víglundsson TF3BOI og Baldur Sigurðsson TF6-009. Bjögvin er m.a. að velta fyrir sér kaupum á nýrri HF sendi-/móttökustöð um þessar mundir. Við stóra fundarborðið. Mathías Hagvaag TF3MH, Hans Konrad Kristjánsson TF3FG, Kjartan Birgisson TF1ET og Sveinn Goði Sveinsson TF3ID. Ljósmyndir: TF3JB.
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 2. DESEMBER
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 2. desember frá kl. 20-22:00.
Athugið að grímuskylda er í húsnæðinu. Kaffiveitingar verða ekki í boði. Fjarskiptaherbergi TF3IRA og QSL herbergi verða opin, en fjöldi félaga þar er takmarkaður.
Þessar kröfur eru gerðar í ljósi gildandi reglugerðar heilbrigðisráðherra um hertar opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna Covod-19 – en sér í lagi vegna ríkjandi óvissu í ljósi um nýja bylgju Covid-19 faraldursins.
Vegna kórónaveirunnar er þess farið á leit, að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Undirritu%c3%b0%20regluger%c3%b0%201211%202021.pdf
VÍSBENDING UM VIRKNI
Teknar voru saman upplýsingar um TF kallmerki sem fengu skráningu á þyrpingu (e. cluster) vikuna 23.-29. nóvember 2021. Samskonar samantektir hafa verið gerðar í átta skipti fyrr á þessu ári.
Alls fengu 16 íslenskir radíóamatörar skráningu að þessu sinni. Flestir voru QRV á stafrænum mótunum (FT8 og FT4), en einnig á morsi (CW) og tali (SSB) á 10, 15, 17, 20, 30, 40, 60, 80 og 160 metrum, auk QO-100 gervitunglsins.
Upplýsingarnar eru fengnar á http://www.dxsummit.fi/#/ Sambærilegar síður eru í boði á netinu til samanburðar. Fyrst er skráð kallmerki, þá tegund/-ir útgeislunar og band/bönd:
TF1A FT8 á 15, 40 og 160 metrum.
TF1AM CW á 40 og 160 metrum.
TF1EIN FT8 á 15 og 60 metrum.
TF1OL/P FT4 og FT8 á 15 og 20 metrum.
TF2CT FT8 á 30 metrum.
TF2MSN FT8 og SSB, 15, 20 og 160 metrum.
TF3E SSB á 20 metrum og um QO-100.
TF3IG CW á 10 metrum.
TF3JB FT8 á 80 metrum.
TF3PPN FT4 og FT8 á 15 og 20 metrum.
TF3SG CW á 15, 20, 40, 80 og 160 metrum.
TF3VE FT8 á 60 metrum.
TF3VG FT8 á 60 metrum.
TF3W CW á 40 og 80 metrum.
TF3XO SSB á 20 metrum.
TF5B FT8 á 17 og 40 metrum.
Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.
Stjórn ÍRA.
GÓÐAR UMRÆÐUR 25. NÓVEMBER
Opið hús var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 25. nóvember.
Þetta var annað opnunarkvöldið í röð í nokkurn tíma með grímuskyldu, án kaffiveitinga og sem að fjarskiptaherbergi og QSL herbergi voru með takmarkaðan aðgang – enda ríkjandi óvissa þar sem nú virðist hafin ný bylgja af kórónaveirunni.
Góðar umræður voru í félagsaðstöðunni fram til kl. 22:30, enda ætíð næg umræðuefni þegar áhugamálið er annars vegar. Þakkir til Hans Konrads Kristjánssonar, TF3FG sem færði okkur meira af áhugaverðu radíódóti.
Alls komu 9 félagar í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld í froststillu í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
FÉLAGSAÐSTAÐA ÍRA 25. NÓVEMBER
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 25. nóvember frá kl. 20:00.
Athugið að grímuskylda er í húsnæðinu. Fjarskiptaherbergi TF3IRA verður opið en mest 3 samtímis og QSL herbergi en mest 2 samtímis. Kaffiveitingar verða ekki í boði.
Þessar kröfur eru gerðar í ljósi reglugerðar heilbrigðisráðherra um hertar opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna Covod-19 – en sér í lagi vegna ríkjandi óvissu í ljósi þess að nú virðist hafin ný bylgja Covid-19.
Vegna kórónaveirunnar er þess farið á leit, að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Undirritu%c3%b0%20regluger%c3%b0%201211%202021.pdf
VERÐSKRÁ QSL STOFU HÆKKAR 1. DESEMBER
Mathías Hagvaag, TF3MH, QSL stjóri ÍRA QSL Bureau hefur tilkynnt stjórn félagsins um fyrirhugaða hækkun á gjaldskrá stofunnar.
Forsendur hafa verið skoðaðar og hefur verið ákveðið að kostnaður fyrir hvert kort hækki frá og með 1. desember 2021 í 12 krónur.
Gjaldskráin hækkaði síðast 15. apríl 2019, úr 9,50 í 10 krónur fyrir hvert QSL kort.
Stjórn ÍRA.
CQ WW DX KEPPNIN 2021 Á MORSI
CQ World Wide DX CW keppnin fer fram helgina 27.-28. nóvember. Þetta er 48 klst. keppni og engin tímatakmörk.
Markmiðið er að ná eins mörgum samböndum og hægt er við aðra radíóamatöra um allan heim – í eins mörgum löndum (DXCC einingum) og á eins mörgum CQ svæðum og frekast er unnt. Keppt er á 1.8, 3.5, 7, 14, 21 og 28 MHz.
Þetta er stærsta alþjóðlega keppni ársins á morsi. Í boði eru 66 mismunandi keppnisflokkar (tveir nýir bætast við í ár, „Explorer“ og „Youth“).
Stjórn félagsins hvetur félagsmenn til þátttöku og að skila inn radíódagbókum að henni lokinni.
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
Heimasíða keppninnar: https://www.cqww.com/index.htm
Keppnisreglur: https://www.cqww.com/rules
ÍRA FÆRT LISTAVERK AÐ GJÖF
75 ára afmæli félagsins Íslenskir radíóamatörar, ÍRA.
Afmælisgjöf frá ORG – Ættfræðiþjónustunni ehf.
Oddur Helgason framkvæmdastjóri ORG – Ættfræðiþjónustunnar ehf., afhenti Jónasi Bjarnasyni, TF3JB formanni ÍRA listaverk í tilefni 75 ára afmælis félagsins í Skeljanesi 17. nóvember s.l. Afhending fór fram að viðstaddri stjórn ÍRA.
Verkið ber nafnið „Bylgjur“ og er eftir listamanninn Lúkas Kárason. Það er unnið úr rekaviði af Ströndum. Oddur sagði, að þeim Reyni Björnssyni (meðeiganda hans í ORG ehf.) hafi fundist verkið passa svo vel við starfsemi radíóamatöra sem væru jú alltaf að fást við radíóbylgjur.
Jónas þakkaði Oddi góð orð og sagðist taka við gjöfinni fyrir hönd félagsins með ánægju og þakkaði góðan hug þeirra félaga til ÍRA.
SKELJANES FIMMTUDAG 18. NÓVEMBER
Opið hús var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 18. nóvember.
Þetta var fyrsta opnunarkvöldið í nokkurn tíma með grímuskyldu, án kaffiveitinga og sem að fjarskiptaherbergi og QSL herbergi voru með takmarkaðan aðgang – enda ríkjandi óvissa þar sem nú virðist hafin ný bylgja af kórónaveirunni.
Menn áttu þó góða stund í félagsaðstöðunni enda ætíð næg umræðuefni þegar áhugamálið er annars vegar. Þakkir til Hans Konrads Kristjánssonar, TF3FG sem færði okkur áhugavert radíódót.
Alls komu 9 félagar í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
GÓÐ SENDING FRÁ USKA
ÍRA barst í gær (17. nóvember) stór pakki frá landsfélagi radíóamatöra í Sviss, USKA. Um er að ræða árganga félagsblaðs þeirra, HBradio, fyrir árin 2016-2021.
USKA gefur út 6 tölublöð á ári og er hvert blað 50-80 bls. að stærð. Ný blöð munu hverju sinni berast til félagsins í pósti, það næsta í desember.
Blaðið veitir áhugaverða innsýn í viðamikið starf landsfélags radíóamatöra í Sviss. Greinar í blaðinu eru [mest] á þýsku, frönsku og ítölsku; en móðurmál meirihluta Svisslendinga er þýska.
HBradio mun liggja frammi á fimmtudagskvöldum í félagsaðstöðunni í Skeljanesi.
Erindi hefur verið sent til stjórnar USKA með þakklæti.
Stjórn ÍRA.
FÉLAGSAÐSTAÐA ÍRA 18. NÓVEMBER
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 18. nóvember kl. 20-22 fyrir félagsmenn.
Stjórn ÍRA hefur ákveðið að á ný verði tekin upp grímuskylda í húsnæðinu. Fjarskiptaherbergi verður opið (mest 3 samtímis) og QSL herbergi (mest 2 samtímis). Kaffiveitingar verða ekki í boði.
Ákvörðunin er tekin í ljósi núverandi reglugerðar heilbrigðisráðherra um hertar opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna Covod-19 – en sér í lagi vegna ríkjandi óvissu í ljósi þess að nú virðist hafin ný bylgja Covid-19.
Vegna kórónaveirunnar er þess farið á leit, að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Undirritu%c3%b0%20regluger%c3%b0%201211%202021.pdf
VÍSBENDING UM VIRKNI
Teknar voru saman upplýsingar um TF kallmerki sem fengu skráningu á þyrpingu (e. cluster) vikuna 8.-14. nóvember 2021. Samskonar samantektir voru gerðar í janúar, febrúar, apríl, maí, júní, ágúst og september á þessu ári.
Alls fengu 13 íslenskir radíóamatörar skráningu að þessu sinni. Flestir voru QRV á stafrænum mótunum (FT8 og FT4), en einnig á morsi (CW), tali (SSB) og RTTY á 10, 15, 17, 20, 30, 40, 60, 80 og 160 metrum.
Upplýsingarnar eru fengnar á http://www.dxsummit.fi/#/ Sambærilegar síður eru í boði á netinu til samanburðar. Fyrst er skráð kallmerki, þá tegund/-ir útgeislunar og band/bönd:
TF1A FT8 á 10, 15, 30 og 40 metrum.
TF1EIN FT8 á 60 metrum.
TF2MSN FT8, SSB, RTTY á 12, 15, 17 og 20 metrum.
TF3AO RTTY á 20 metrum.
TF3JB FT8 á 17, 30 og 160 metrum.
TF3MH FT8 á 17 metrum.
TF3PPN FT8 og RTTY á 20 metrum.
TF3T SSB á 10 metrum.
TF3VE FT4, FT8 á 20 og 60 metrum.
TF3VG FT8 á 15 o 80 metrum.
TF3XO FT8 og SSB á 20 og 80 metrum.
TF3Y CW á 20 metrum.
TF5B FT8 á 12 og 17 metrum.
Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.
Stjórn ÍRA.
SKELJANES FIMMTUDAGINN 11.11.
Opið hús var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 11. nóvember. Sérstakur gestur var Baldur Sigurðsson, TF6-009 félagsmaður okkar á Reyðarfirði (áður Egilsstöðum).
Mikið var rætt um loftnet, þ.á.m. dípóla og balun, vertíkala og Yagi lofnet. Einnig rætt um deltur sem geta verið spennandi lausn fyrir marga og m.a. vísað í fróðlega grein TF3KB sem birtist í næst síðasta hefti CQ TF (3. tbl. 2021).
Rætt um skilyrðin, en um helgina er síðasta stóra RTTY keppni ársins (WAE) á HF. Að mörgu leyti mjög áhugaverð keppni og vinsæl. Margir eru ánægðir með að 80 metrarnir eru lægsta band í keppninni því fæstir sem búa í þéttbýli hafa tök á að setja upp vel nothæft DX loftnet á því bandi.
Góð mæting var miðað við hve Covid-19 faraldurinn er að ná sér á strik, en 12 félagar komu í Skeljanes þetta frostmilda fimmtudagskvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
Vefslóð á 3. tbl. CQ TF 2021: http://www.ira.is/wp-content/uploads/2021/07/CQTF2021-3.pdf