FRÁBÆR FIMMTUDAGUR Í SKELJANESI
Ágúst H. Bjarnason, TF3OM, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 29. nóvember með með erindið: „Fjarstýring á amatörstöð yfir netið“.
Ágúst flutti afar greinargott og fróðlegt erindi um reynslu sína í þessum efnum, en hann hefur aðstöðu fyrir loftnet og búnað í sumarhúsi sínu sem er í u.þ.b. 100 km fjarlægð frá heimili hans í Garðabæ.
Hann notar Kenwood TS-480 stöð og tengibúnað frá RemoteRig. https://www.remoterig.com/wp/ og
https://shop.microbit.se/webshop/catalog Stöðin er með laustengdu stjórnborði, þannig að RF hlutinn er hafður í sumarhúsinu og stjórnborðið heima. Kosturinn við þetta fyrirkomulag er, að ekki þarf sérstaka tölvu í sveitinni. Ágúst nefndi, að sambærilegt fyrirkomulag sé í boði fyrir fleiri gerðir af stöðvum sem eru með laustengd stjórnborð, t.d. Icom IC-7100, en Kenwood hefur hætt framleiðslu á TS-480. Hefðbundnar stöðvar þurfa hins vegar flestar tölvur á báðum endum.
Meginkosturinn við þessa lausn að nota RemoteRig boxin, er að þetta eru litlar sérhæfðar tölvur sem sjá sjálfvirkt um öll samskipti og merkjaflutning milli staða. Nóg er að setja 12VDC á boxin og þá tengja þau sjáfvirkt stjórnborðið á stöðinni heima og RF hlutann í sveitinni. Meginvandinn var til að byrja með léleg netþjónusta þar sem sumarhúsið er staðsett. Aukin samkeppni og þróun í netbúnaði hefur hins vegar auðveldað málið og gat Ágúst þess, að í dag sé tengingin yfir netið hnökralaus og kostnaður ásættanlegur. Hann notar 4G í sveitinni og ljósleiðara heima í Garrðabæ, hvort tveggja frá Mílu/Símanum.
Ágúst sýndi forritið Ping Plotter sem hentar vel til að greina hnökra í netsambandinu.
Ágúst kynnti einnig CATSync forritið sem má nota til að vera í loftinu með hlustun gegnum KiwiSDR viðtækin sem eru í boði hér á landi yfir netið. Áhugaverð lausn fyrir þá sem eru með miklar truflanir. https://catsyncsdr.wordpress.com/ og https://swling.com/blog/2020/09/catsync-control-web-sdr-tuning-from-your-rig/
Ágúst hafði með sér fjarstýribúnað í fundarsal og sýndi virkan hans eftir erindið og mátti greinilega heyra að truflanir eru litlar sem engar í sveitinni. Hann fékk fjölda fyrirspurna sem hann leysti greiðlega úr.
Sérstakar þakkir til Ágústar fyrir vel flutt og vandað erindi. Alls mættu 30 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta regnmilda fimmtudagskvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!