,

ENDURNÝJUN 50 MHZ HEIMILDAR

Bent er á að mikilvægt er að leyfishafar sem hafa áhuga á að stunda fjarskipti á auknu afli á 50 MHz tíðnisviðinu (6 metrum) í sumar, sendi beiðni þess efnis til Fjarskiptastofu áður en sendingar eru hafnar. Hafi verið fengin heimild í fyrra (2021) gildir hún ekki í ár.

Leyfishafar þurfa að sækja sérstaklega um heimild hjá FST á sama hátt og verið hefur t.d. um 70 MHz tíðnisviðið. Póstfang: hrh(hjá)fjarskiptastofa.is  Tilgreina skal að sótt sé um aukið afl á 50 MHz.

Forsenda þessa er, að ÍRA barst jákvætt svar frá Fjarskiptastofu 13. maí s.l. við ósk félagsins um endurnýjun aukinna heimilda á 6 metra bandi og veitir stofnunin íslenskum leyfishöfum auknar aflheimildir í 50-50,5 MHz tíðnisviðinu frá og með 1. júní 2022. Gildistími er 4 mánuðir eða til 31. september. G-leyfishafar fá heimild til að nota allt að 1kW og N-leyfishafar allt að 100W.

Afar ánægjulegt er, að gildistími heimildarinnar er lengri í ár heldur en í fyrra, eða út septembermánuð. Sjá nánar innsetningu á heimasíðu ÍRA og FB síður 13. maí s.l.

Stjórn ÍRA.

Mynd úr fjarskiptaherbergi TF3IRA í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Ljósmynd: TF3JB.
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

4 × three =