Næsta námskeið ÍRA til amatörprófs verður haldið í Háskólanum í Reykjavík 25. september til 7. nóvember n.k. Í boði verður hvorttveggja, staðnám og fjarnám.
Námskeiðið er öllum opið og eru ekki gerðar kröfur um sérstaka menntun eða undirbúning. Kennt verður á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum kl. 18:30-21:30. Hægt er að mæta í kennslustofu í HR þegar það hentar og/eða taka þátt yfir netið þegar það hentar.
Námskeiðsgjald er kr. 22.500. Miðað er við að greiðsla hafi borist til félagsins fyrir 3. september n.k. Í framhaldi verður námsefni á prenti póstlagt. Greiðsluupplýsingar: http://www.ira.is/skraning-a-namskeid/ Bent á fræðslustyrki stéttarfélaga og Vinnumálastofnunar til þeirra sem sækja námskeiðið.
Sjá meðfylgjandi vefslóðir á skipulag námskeiðsins, samantekt á vefslóðir með námsefni og kynningarefni um amatör radíó og félagið Íslenskir radíóamatörar (ÍRA).
Fyrirspurnum má beina póstfang félagsins: ira@ira.is
Félagsaðstaðan í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 22. júní fyrir félagsmenn og gesti frá kl. 20 til 22.
Fjarskiptaherbergi TF3IRA á 2. hæð verður opið ásamt QSL herbergi. Mathías Hagvaag, TF3MH QSL stjóri verður búinn að fara í pósthólfið og flokka kort í hólfin.
Enn hefur bæst við af radíódóti, m.a. tölvuhlutir, VHF stöðvar (Kenwood, Kraco, Yaesu o.fl.), fjarskiptahátalarar (Yaesu og Kris og fl.), standar fyrir heyrnartól o.m.fl.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-06-19 19:24:012023-06-19 19:26:32OPIÐ HÚS 22. JÚNÍ Í SKELJANESI
6 METRAR. Nú þegar 4 metra og 6 metra böndin eru byrjuð að opnast er bent á, að leyfishafar sem hafa áhuga á að stunda fjarskipti á auknu afli í 50 MHz tíðnisviðinu þurfa að senda beiðni þess efnis til Fjarskiptastofu. Póstfang: hrh(hjá)fjarskiptastofa.is Tilgreina skal að sótt sé um aukið afl á 50 MHz. G-leyfishafar fá heimild til að nota allt að 1kW og N-leyfishafar allt að 100W. Ánægjulegt er, að gildistími er jafn langur og á síðasta ári (2022) eða út septembermánuð.
4 METRAR. Leyfishöfum sem áhuga hafa á að stunda fjarskipti í 70 MHz tíðnisviðinu er bent á að sérheimild [2023-2024] til notkunar á 70.000-70.250 MHz hefur verið í gildi frá 1. janúar s.l. Leyfishafar þurfa að senda beiðni um heimild til Fjarskiptastofu fyrir nýtt tveggja ára tímabil á hrh(hjá) fjarskiptastofa.is Það nægir að senda eina umsókn sem gildir fyrir bæði árin, þ.e. 2023 og 2024.
RADÍÓVITAR. Bent er á að radíóvitarnir TF1VHF eru virkir á 50.457 MHz og 70.057 MHz. QTH er Álftanes á Mýrum. Til hagræðis er notað sama kallmerki, TF1VHF. Merki heyrast vel í Reykjavík, um Suðurnes, austur fyrir fjall, um Snæfellsnes og um Vesturland og til útlanda.
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
Mynd úr fjarskiptaherbergi TF3IRA í félagsaðstöðunni í Skeljanesi í Reykjavík.
Teknar voru saman upplýsingar um TF kallmerki sem fengu skráningu á þyrpingu (e. cluster) vikuna 11.-18. júní 2023.
Alls fengu 15 TF kallmerki skráningu. Flestir voru QRV á stafrænum mótunum (FT8 og FT4), en einnig á morsi (CW), fjarritun (RTTY) og tali (SSB). Bönd: 6, 10, 15, 17, 20, 40 og 60 metrar.
Kallmerki fær skráningu þegar leyfishafi [eða hlustari] hefur haft samband við [eða heyrt í] TF kallmerki. Svokallað „self spotting“ er ekki tekið með. Upplýsingarnar eru fengnar á http://new.dxsummit.fi/#/ Sambærilegar síður eru í boði á netinu til samanburðar.
Fyrst er skráð kallmerki, þá tegund(ir) útgeislunar og band/bönd sem kallmerki fær skráningu á.
Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.
Stjórn ÍRA.
TF1A FT8 á 10 metrum. TF1EIN FT8 á 17 metrum. TF2MSN FT4 og FT8 á 17, 20 og 40 metrum. TF3AO RTTY á 20 metrum. TF3DC CW á 17 metrum. TF3JB FT4 á 17 metrum. TF3PO RTTY á 20 metrum. TF3VE FT4 og FT8 á 6, 15, 17 og 60 metrum. TF3VG FT8 á 6 metrum. TF1VHF CW á 6 metrum. TF3VS FT8 á 10 og 15 metrum. TF4ZQ FT8 og SSB á 6 og 20 metrum. TF5B FT8 á 17 metrum. TF8KW SSB Á 20 metrum. TF8KY SSB á 20 metrum.
Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.
Stjórn ÍRA.
Óðinn Þór Hallgrímsson TF2MSN var virkur í DX vikuna 11.-18. júní. Meðfylgjandi ljósmynd var tekin 17. júní þegar hópur góðra félaga mætti upp á Akranes í loftnetavinnu á Grenigrundina. Frá vinstri: Benedikt Sveinsson TF3T, Pier Kaspersma TF3PKN, Jón E. Guðmundsson TF8KW, Óðinn Þór Hallgrímsson TF2MSN og Gísli Guðnason.Ljósmynd: Helga XYL TF2MSN.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-06-18 09:05:512023-06-18 09:07:30VÍSBENDING UM VIRKNI
SMIRK keppnin hefst á laugardag 17. júní kl. 00:00 og lýkur á sunnudag 18. júní kl. 24:00. Keppnin fer fram á tali (SSB) og morsi (CW) á 6 metrum. Skilaboð: RS(T)+4 stafa reitur (e. grid square). http://smirk.info/contest.html
PAJAJARAN keppnin stendur yfir laugardaginn 17. júní frá kl. 00:00 til 23:59. Keppnin fer fram á tali (SSB) á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: RS+raðnúmer. https://pbdx-contest.id/
IARU REGION 1 50 MHz keppnin stendur yfir laugardaginn 17. júní frá kl. 14:00 til sunnudags 18. júní kl. 14:00. Keppnin fer fram á tali (SSB) og morsi (CW) á 6 metrum. Skilaboð: RS(T)+QSO númer+6 stafa reitur (e. grid square). https://www.iaru-r1.org/wp-content/uploads/2021/03/Rules-2021.pdf
STEW PERRY TOPBAND CHALLANGE keppnin stendur yfir laugardag 17. júní frá kl. 15:00 til sunnudags 18. júní kl. 15:00. Keppnin fer fram á morsi (CW) á 160 metrum. Skilaboð RST+4 stafa reitur (e. grid square). https://www.kkn.net/stew/
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
Heathkit SB-102 var vinsæl 100W HF stöð meðal leyfishafa sem tóku þátt í keppnum á árabilinu 1970-1975 (og lengur), einnig hér á landi. Stöðin vinnur á 80-10 metrum, SSB og CW. Útgangslampar eru 6146. Ljósmynd: SM5DFI.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-06-12 16:35:042023-06-12 16:43:13OPIÐ Í SKELJANESI FIMMTUDAG 15. JÚNÍ
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-06-07 19:47:492023-06-07 19:49:16ENN TEKIÐ Á MÓTI EFNI Í CQ TF
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-06-04 17:22:042023-06-04 17:22:05OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 8. JÚNÍ
Valgeir Pétursson TF3VP stendur hér við RF magnarann og aflgjafann skömmu áður en erindi hans hófst.
Valgeir Pétursson, TF3VP mætti í Skeljanes fimmtudaginn 1. júní og flutti erindið: „Samsetning á HF transistormagnara“.
Valgeir skýrði okkur frá í máli og myndum, hvernig smíði RF magnara fyrir HF böndin og 50 MHz fer fram. Hann getur gefið út allt að 1kW og vinnur frá 160-10m, auk 50 MHz. Fram kom hjá Valgeiri, að sumt er heimasmíðað en margt er keypt samsett og jafnvel forprófað, flest það veigamesta frá Jim, W6PQL.
Öll samsetning, uppröðun og fyrirkomulag eininganna var hönnum Valgeirs. Magnarinn var opinn til sýnis á staðnum ásamt aflgjafa og síueiningu og þótti flestum mikið til koma að sjá bæði eljuna og natnina sem lögð hefur verið í verkið.
Valgeir svaraði spurningum, þakkaði Benedikt Sveinssyni, TF3T fyrir dygga aðstoð og fékk að lokum verðskuldað klapp og þakkir viðstaddra. Menn ræddu síðan málin yfir kaffi fram undir kl. 23:00.
Sérstakir gestir félagsins þetta fimmtudagskvöld voru þeir Daggeir Pálsson, TF7DHP frá Akureyri, Kristján J. Gunnarsson, TF4WD frá Sauðárkróki og Dervin Beldman, PD9DX frá Holten í Hollandi.
Alls voru 35 félagsmenn og 2 gestir í Skeljanesi þetta ágæta fimmtudagskvöld í mildu sumarveðri í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
Erindi Valgeirs hófst stundvíslega kl. 20:30.Góð mæting var í félagsaðstöðuna þetta fimmtudagskvöld.Valgeir sýndi fjölmargar glærur frá mismunandi stigum í smíðinni. “Hvílík fegurð” eins og einn viðstaddra sagði.RF magnarinn var hafður opinn fyrir viðstadda til að skoða. Kassinn er frá W6PQL.Eftir flutning erindisins var skoðað og spekúlerað. Frá vinstri: Sveinn Goði Sveinsson TF3ID, Hans Konrad Kristjánsson TF3FG, Valgeir Pétursson TF3VP og Sigurður Smári Hreinsson, TF8SM.Sigmundur Karlsson TF3VE, Gísli Guðnason, Óðinn Þór Hallgrímsson TF2MSN, Hrafnkell Sigurðsson TF8KY, Georg Magnússon TF2LL og Andrés Þórarinsson TF1AM.Óðinn Þór Hallgrímsson TF2MSN, Hrafnkell Sigurðsson TF8KY og Georg Magnússon TF2LL.Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VP og Mathías Hagvaag TF3MH. Fyrir aftan: Benedikt Sveinsson TF3T, Dervin Beldman PD9DX og Guðmundur Birgir Pálsson TF3AK.Sveinn Goði Sveinsson TF3ID, Einar Kjartansson TF3EK, Daggeir Pálsson TF3DHP, Jón E. Guðmundsson TF8KW og Guðmundur V. Einarsson TF3VL.Dervin Beldman PD9DX í fjarskiptaherbergi TF3IRA. Ljósmyndir: Jón Svavarsson TF3JON.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-05-30 19:23:482023-05-30 19:24:47RITSTJÓRI KALLAR EFTIR EFNI Í CQ TF