,

Vel heppnað fimmtudagserindi TF3ML

Ólafur B. Ólafsson TF3ML flutti áhugavert erindi í félagsaðstöðunni í Skeljanesi þann 18. október.

Fimmtudagserindið þann 18. október var í höndum Ólafs Björns Ólafssonar, TF3ML og nefndist það: Að smíða færanlegt fjarskiptavirki. Erindi Ólafs var skilmerkilega flutt og fróðlegt og leiddi hann viðstadda í líflegri frásögn í gegnum það verkefni, að festa kaup á, innrétta og útbúa 12 tonna vöruflutningabifreið sem
færanlegt fjarskiptarými.

Ólafur skýrði jafnframt, hvernig hann náði að kaupa sérbúinn 4 tonna vagn sem er tengdur aftan í vörubifreiðina með áföstum turni sem hækka má í allt að 28 metra hæð yfir jörðu. Hönnun fjarskiptavirkisins, þ.m.t. innrétting kassa vörubifreiðarinnar og breytingar á loftnetsvagninum, tóku alls tæpt ár. Fjarskiptavirkið var síðan tekið í notkun um páskana í ár.

Á þeim tíma sem síðan er liðinn, hefur Ólafur farið í 10 leiðangra á bifreiðinni, á jafn ólíka staði og upp á Bolafjall við Bolungavík, til Stórhöfða í Vestmannaeyjum og Hafnar í Honafirði. Í erindinu kom fram, að fjárhagsáætlun fyrir verkefnið var 20 milljónir króna. Tæplega þrír tugir félagsmanna mættu í félagsaðstöðuna í Skeljanesi þetta fimmtudagskvöld og hlýddu á erindið.

Stjórn Í.R.A. þakkar Ólafi B. Ólafssyni, TF3ML, fyrir áhugavert og vel heppnað erindi.

Ólafur sýndi myndir frá ferðum sínum innanlands á árinu, m.a. frá ferð upp á Bolafjall við Bolungavík.

Glæsilegt fjarskiptavirki TF3ML var til sýnis fyrir félagsmenn Í.R.A. á Alþjóðlegu vita- og vitaskipahelginni á Garðskaga dagana 17.-19. ágúst s.l.

Verklegur turninn getur náð allt að 28 metra hæð. Turninn sjálfur er úr áli, en vagninn er úr stáli og vegur um 4 tonn. Í vagninum er 4 kW rafstöð sem knýr og hleður rafgeyma til stýringar á spili og rótorbúnaði. Vagninn var framleiddur árið 1999 fyrir þýska herinn.

TF3SA í loftinu á morsi sem TF8IRA í fjarskiptabifreið TF3ML. Stefán var mjög hrifinn af aðstöðunni.

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

17 − fifteen =