Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, mætti í Skeljanes 11. apríl og sagði okkur ferðasögu
frá DX-leiðangri til Seychelles eyja sumarið 2016. Eftir kaffihlé, fór hann yfir
og kynnti reglur Páskaleikana 2019.
Keli sagðist hafa verið tiltölulega reynslulítill í DX og keppnum þegar honum var boðið að taka þátt í S79V leiðangrinum 1.-10. júlí 2016. Hann sýndi myndir og myndbönd úr ferðinni, lýsti m.a. undirbúningi og uppsetningu einsbands VDA loftneta og skýrði smíði þeirra og virkni. Hann sagði ferðina vel heppnaða og lærdómsríka, en höfð voru yfir 20 þúsund QSO. Ferðafélagar voru þeir Paul A65DR, Joel A65BX, Martin A65DC, Gerald A65CB og Obaid A61DJ.
Eftir kaffihlé var farið yfir komandi Páskaleika ÍRA. Keli fór yfir „log-viðmót“ og virkni, rifjaði upp reynslu fyrra árs leika, fór yfir tíðnisvið og reglur leikanna. Fjörlegar umræður urðu um reglurnar, samanborið við VHF leikana og 80 metra bandið og skipst á skoðunum. Reglur og leikjavefur verður sett á heimasíðu félagsins á næstu dögum til kynningar.
Erindi Kela var áhugavert og vel flutt. Hann svaraði spurningum greiðlega í líflegum umræðum. Að lokum fékk Hrafnkell verðskuldað klapp og þakkir viðstaddra. Menn ræddu málin síðan áfram allt fram undir kl. 23. Alls mættu 19 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld.
Skeljanesi 11. apríl. Hrafnkell Sigurðsson TF8KY sagði ferðasögu frá S79V DX-leiðangrinum. Aðrir á mynd frá vinstri: Bendikt Sveinsson TF3T, Wilhelm Sigurðsson TG3AWS. Með bak í myndavél: Höskuldur Elíasson TF3RF, Óðinn Þór Hallgrímsson TF2MSN og Óskar Sverrisson TF3DC. Ljósmynd: Kristján Benediktsson TF3KB. Unnið við samsetningu loftneta fyrir utan Villa Koket, aðsetur DX-leiðangursins á Mahe eyju í Seychelles eyjaklasanum. Ljósmynd: Hrafnkell Sigurðsson TF8KY.Hluti viðstaddra. Frá vinstri (fremst): Óskar Sverrisson TF3DC, Höskuldur Elíasson TF3RF, Einar Kjartansson TF3EK, Óðinn Þór Hallgrímsson TF2MSN, Wilhelm Sigurðsson TF3AWS, Benedikt Sveinsson TF3T, Þórður Adolfsson TF3DT, Þorvaldur Bjarnason TF3TB, Jón Björnsson TF3PW og Mathías Hagvaag TF3MH. Ljósmynd: Kristján Bendiktsson TF3KB.
Næst á vetrardagskrá ÍRA er ferðasaga Hrafnkels Sigurðssonar TF8KY frá DX-leiðangri til Seychelles eyja, sem flutt verður í Skeljanesi fimmtudaginn 11. apríl kl. 20:30.
Keli slóst í för með þeim Paul A65DR, Joel A65BX, Martin A65DC og Obaid A65DJ til Mahe eyju, sem er stærst í Seychelles eyjaklasanum í Indlandshafi, 1.-10. júlí 2016.
Hópurinn hafði alls 20.135 QSO. Fimm TF kallmerki náðu 14 samböndum við S79V á SSB, RTTY og PSK á 17, 20 og 40 metrum. Seychelles er á CQ svæði 39 og IOTA AS-024; fjarlægð frá TF er um 9500 km.
Mætum tímanlega! Veglegar kaffiveitingar.
P.s. Keli mun kynna Páskaleikana 2019 eftir frásögnina af ferðinni til Seychelles eyja.
Mynd af QSL korti DX-leiðangursins frá árinu 2016. TF8KY er lengst til hægri á myndinni.
ÍRA gekkst fyrir nýjung í félagsstarfinu í Skeljanesi í dag laugardaginn 6. apríl. Um er að ræða grunnnámskeið með Arduino örtölvur í formi sýnikennslu og verkefna fyrir byrjendur. Leiðbeinandi var Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS.
Fullbókað var á námskeiðinu, en miðað er við mest sex þátttakendur en átta voru mættir. Þegar tíðindamann bar að garði skömmu fyrir hádegið voru menn önnum kafnir líkt og sjá má á meðfylgjandi ljósmyndum.
Námskeiðið hófst kl. 10 árdegis og er miðað við að því ljúki um kl. 15 í eftirmiðdaginn. Aðspurður sagði TF3VS að athugað verði með að bjóða nýtt námskeið eftir páska.
Skeljanesi 6. apríl. Frá vinstri: Kristján Benediktsson TF3KB, Yngvi Harðarson TF3Y, Guðmundur Ingi Hjálmtýsson TF3IG, Ársæll Óskarsson TF3AO, Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS, Mathías Hagvaag TF3MH. Bak í myndavél: Ólafur Örn Ólafsson TF1OL, Reynir Björnsson TF3JL og Jón Björnsson TF3PW. Ljósmynd: Jónas Bjarnason TF3JB.Skeljanesi 6. apríl. Frá hægri: TF3PW, TF3RL, TF1OL, TF3MH og TF3VS. Bak í myndavél: TF3AO, TF3IG, TF3Y og TF3KB. Mynd: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-04-06 13:32:292019-04-07 09:41:53FULLBÓKAÐ Á ARDUINO NÁMSKEIÐ HJÁ TF3VS
Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, mætti í Skeljanes 4. apríl með erindið „Radíótækni í árdaga“.
Hann fór yfir söguna (með dæmum) um hvernig frumherjarnir smíðuðu senda og viðtæki áður en lampar og transistorar voru fundnir upp. Upphaflegu radíótækin voru nefnilega vélræn (mekanísk) í grunninn, fremur en byggð á rafeindatækni á tímum þegar neistasendar voru alls ráðandi.
Erindið var vandað, forvitnilegt, skemmtilegt og afar vel flutt. Vilhjálmur sló á létta strengi á milli þess sem hann skýrði frá tækninni, dreifði á meðal viðstaddra tæknibókum og sýnishornum af ýmsu tagi. Rúsínan í pylsuendanum var síðan þegar hann ræsti raunverulegan neistasendi og leyfði viðstöddum að sjá neistann og síðar, að hlusta á neistann í viðtæki (sjá myndbandsbút neðst).
Það var góð mæting í Skeljanes þetta fallega síðvetrarkvöld í Reykjavík, eða alls 36 manns. Þar af voru 4 gestir. Vilhjálmur uppskar verðskuldað lófaklapp að lokum. Bestu þakkir til Vilhjálms Þórs TF3DX.
Skeljanesi 4. apríl. Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX flutti erindi um “Radíótækni í árdaga”. Ljósmynd: Kristján Bendiktsson TF3KB.Hluti fundargesta. Frá vinstri (fremst): Elín Sigurðardóttir TF2EQ, Yngvi Harðarson TF3Y, Georg Magnússon TF2LL, Guðrún Hannesdóttir TF3GD, Þórarinn Benedikz TF3TZ, Ágúst H. Bjarnason TF3OM, Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS, Ágúst Úlfar Sigurðsson TF3AU, Bjarni Sverrisson TF3GB, Ólafur Arason, Wilhelm Sigurðsson TF3AWS, Sigurður Smári Hreinsson TF8SM, Þórður Adolfsson TF3DT, Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB, Sigurður Harðarson TF3WS, Kolbeinn Ingólfsson, Sigurður Óskar Óskarsson TF2WIN, Þorvaldur Bjarnason TF3TB, Bernhard M. Svavarsson TF3BS og Óskar Sverrisson TF3DC. Ljósmynd: Kristján Benediktsson TF3KB.Hluti fundargesta. Frá vinstri (aftast): Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB, Þorvaldur Bjarnason TF3TB, Sigurður Óskar Óskarsson TF2WIN, Sigurður Harðarson TF3WS, Bernhald M. Svavarsson TF3BS, Kolbeinn Ingólfsson, Ágúst Úlfar Sigurðsson TF3AU, Bjarni Sverrrisson TF3GB, Ársæll Óskarsson TF3AO, Ólafur Arason, Wilhelm Sigurðsson TF3AWS og Sigurður Smári Hreinsson TF8SM. Uppi í fundarsal (til hægri): Mathías Hagvaag TF3MH, Ómar Magnússon TF3WZ, tveir gestir og Jón Björnsson TF3PW. Ljósmynd: Kristján Benediktsson TF3KB.Vinhjálmur TF3DX útskýrir m.a. að hvers vegna neistasendar hafa verið bannaðir áratugum saman. Einnig í mynd: Sigurður Harðarson TF3WS. Ljósmynd: Kristján Bendiktsson TF3KB.Myndband sem sýnir neistann í sendinum. Mynd: Yngvi Harðarson TF3Y.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-04-05 11:37:522019-04-07 09:36:58TF3DX FÓR Á KOSTUM Í SKELJANESI
Grunnnámskeið með Arduino örtölvur verður haldið í Skeljanesi laugardaginn 6. apríl. Um er að ræða sýnikennslu og verkefni fyrir byrjendur. Leiðbeinandi er Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS. Námskeiðið hefst kl. 10:00.
Miðað er við að þátttakendur komi með eigin Arduino örtölvur (er ekki skilyrði) og vinni hagnýt verkefni sem nýtast í amatör radíói. Menn þurfa helst að hafa eigin fartölvu þótt þeir komi ekki með Arduino.
Félagsmenn eru beðnir að senda póst til félagsins á póstfangið ira hjá ira.is þar sem eftirfarandi kemur fram:
Nafn þátttakanda
Kemur viðkomandi með sína eigin Arduino örtölvu með sér (ekki skilyrði)
Hefur viðkomandi einhverja reynslu af arduino örtölvum
Hefur viðkomandi einhverja reynslu af forritun yfirleitt
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn að nýta þetta spennandi tækifæri. Vandaðar kaffiveitingar.
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn 4. apríl kl. 20:30. Þá mætir Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, í Skeljanes með erindið „Radíótækni í árdaga.“
Vilhjálmur segir sjálfur: „Hvernig var hægt að smíða senda
og viðtæki áður lampar og nórar (transistorar) voru fundnir upp? Segja má að
upphaflegu radíótækin hafi verið vélræn (mekanísk) í grunninn, fremur en byggð
á rafeindatækni. Neistasendar voru alls ráðandi, sjá mynd. Neistasendir verður ræstur,
þó ekki út í loftnet! Notkun þeirra til fjarskipta var bönnuð fyrir löngu“.
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Veglegar
kaffiveitingar.
Myndin er af neistasendi á raftæknisafninu í Frastanz, Austurríki.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-04-02 08:59:062019-04-02 09:00:11TF3DX Í SKELJANESI: RADÍÓTÆKNI Í ÁRDAGA
Mér er ánægja að tilkynna um útkomu 2. tölublaðs CQ TF 2019, sem nú kemur út á stafrænu formi hér á heimasíðunni. Margir hafa lagt hönd á plóg og mörgum ber að þakka, en sér í lagi TF3VS sem annaðist umbrotsvinnu. CQ TF er að þessu sinni 40 blaðsíður að stærð. 73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Ölvir Sveinssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngÖlvir Sveinsson2019-03-31 20:39:102019-03-31 22:32:12Nýtt CQ TF er komið út
Jónas Bjarnason TF3JB mætti í sófaumræður sunnudaginn 31. mars kl. 10:30 með erindið: „DX sambönd og hvernig best og fljótvirk-ast er staðið að öflun QSL korta“.
Fyrst var farið yfir nokkrar glærur í myndvarpanum, m.a. (1)
hvers vegna við notum QSL kort; (2) hvar menn „ná“ DX‘inum helst; (3) mikilvægi
þess að QSO sé örugglega í log; (4) hvaða aðferðum má beita til að fá QSL kort
fljótt; (5) umfjöllun um eigið QSL kort; og (6) umfjöllun um að erfiðara getur
verið að fá QSL kort frá sumum löndum en öðrum og fl.
Í sófasettinu var síðan rætt um hinar ýmsu aðferðir sem hægt er að beita til að ná „þeim feita“ og rætt um DX‘inn út frá QSO’um við einstaklinga, klúbbstöðvar og DX-leiðangra. Farið yfir fyrirbærin DIRECT kort, QSL MANAGER‘A, OQRS aðferð og kosti þess að gerast styrktaraðili DX-leiðangra.
Alls mættu 10 félagar og 1 gestur þennan veðurmilda sunnudagsmorgun í Skeljanes. Umræðum lauk formlega upp úr kl. 12:30 en umfjöllunarefnið var „heitt“ þannig að síðustu menn ræddu málin áfram fram undir kl. 14. TF3JB fékk að lokum gott klapp og lofaði að gera grein fyrir umfjöllunarefninu í CQ TF.
Skeljanesi 31. mars. Jónas Bjarnason TF3JB mætti í sunnudagsumræður og fjallaði um „DX sambönd og hvernig best og fljótvirkast er staðið að öflun QSL korta“. Ljósmynd: Óskar Sverrisson TF3DC.Umfjöllunin var almennt áhugaverð og ekki síður fyrir þær sakir þegar reynslumiklir félagsmenn í DX sögðu sögur úr loftinu. Frá vinstri: Reynir Björnsson TF3RL, Jónas Bjarnason TF3JB, Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A og Óskar Sverrisson TF3DC. Ljósmynd: Wilhelm Sigurðsson TF3AWS.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-03-31 19:45:232019-03-31 19:55:30SÓFAUMRÆÐUR Í SKELJANESI UM DX & QSL KORT
Jónas Bjarnason TF3JB mætir í sófaumræður sunnudaginn 31. mars kl. 10:30 og er yfirskriftin:
„DX sambönd og hvernig best og fljótvirkast er staðið að
öflun QSL korta“.
Húsið verður opnað kl. 10 árdegis. Miðað er við að dagskrá verði tæmd á hádegi. Kaffi og kaffibrauð frá Björnsbakaríi.
Um sunnudagsopnanir. Sunnudagsopnanir hafa verið skýrðar á þann veg að um sé að ræða fyrirkomulag menntandi umræðu á messutíma sem er hugsuð afslöppuð, þ.e. þar sem menn sitja með kaffibolla í leðursófasettinu og ræða amatör radíó. Tiltekinn leyfishafi sem hefur staðgóða þekkingu á viðkomandi umræðuefni leiðir umfjöllun og svarar spurningum.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætti í Skeljanes 28. mars og
flutti erindi um endurvarpa.
Ari hefur hefur góða þekkingu á umfjöllunarefninu og veitti okkur áhugaverða innsýn í þennan tækniheim sem gerir okkur kleift að nota VHF/UHF stöðvar til sambanda yfir langar vegalengdir innanlands.
Hann útskýrði vel hvernig samtenging endurvarpa á VHF og UHF gerir leyfishöfum kleift að hafa krossband sambönd sem eykur mjög notagildi og útbreiðslu, t.d. þegar notaðar eru handstöðvar (jafnvel) búnar mjög litlu afli. Ari kynnti þá 5 VHF endurvarpa og 2 UHF endurvarpa sem eru í rekstri. Þeir eru allir nema einn fyrir FM mótun, en einn er fyrir starræna tegund útgeislunar (D-STAR).
Eftir kaffihlé tók Erik Finskas, TF3EY (OH2LAK) við og flutti áhugavert erindi um DMR (e. Digital Mobile Radio), sem rutt hefur sér til rúms síðustu ár, en yfir 3000 DMR endurvarpar hafa þegar verið settir upp fyrir radíóamatöra í 50 þjóðlöndum.
Erindi Eriks má skoða í heild á þessari vefslóð: http://dy.fi/vof
Stjórn ÍRA þakkar þeim Ara og Erik fyrir áhugaverð erindi. Þrátt fyrir snjófjúk og vindasamt veður, mættu 27 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld.
Skeljanesi 28. mars. Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A flutti erindi um endurvarpa. Ljósmynd: TF3JB.Erik Finskas TF3EY (OH2LAK) í Skeljanesi 28. mars. Erik fjallaði um og kynnti DMR og DMR endurvarpa. Ljósmynd: TF3KB.Mynd tekin aftarlega úr sal. Ljósmynd: TF3JB.Salurinn. Frá vinstri (fremst): Þorvaldur Bjarnason TF3TB, Wilhelm Sigurðsson TF3AWS, Þórarinn Benediktz TF3TZ, Einar Kjartansson TF3EK, Snorri Ingimarsson TF3IK, Guðmundur Sigurðsson TF3GS, Georg Kulp TF3GZ, Jón Björnsson TF3PW, Magnús Ragnarsson TF1MT, Jón E. Guðmundsson TF8-020, Þórður Adolfsson TF3DT, Sigurður Óskar Óskarsson TF2WIN, Óskar Sverrisson TF3DC og Njáll H. Hilmarsson TF3NH. Ljósmynd: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-03-29 14:52:332019-03-29 14:59:20TF1A og TF3EY kynntu endurvarpa 28. mars
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn
28. mars kl. 20:30. Þá mætir Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A í Skeljanes með
erindið: „Endurvarpar“.
Ari hefur mikla reynslu af uppsetningu, viðhaldi og notkun
endurvarpa. Hann hefur árum saman unnið við endurvarpa félagsins, fyrst í
félagi við Sigurð Harðarson, TF3WS og síðar einsamall og með Guðmundi
Sigurðssyni, TF3GS þegar Ólafur B. Ólafsson, TF3ML, keypti endurvarpa til
notkunar á 2 m og 70 cm. Þá kom hann að uppsetningu radíóvita Óla á Mýrum í
Borgarfirði, sem teknir voru í notkun í fyrra á 50 og 70 MHz.
Ari mun skýra hvernig endurvarpi vinnur. Hann mun t.d. svara
spurningunni hvers vegna tíðniafsetning í sendingu inn á endurvarpa á 2 m er
aðeins 600 Hz samanborið við 5 MHz á 70 cm.
Í dag eru 5 FM endurvarpar fyrir radíóamatöra í rekstri
hérlendis á 2 m, 2 á 70 cm; annar á FM og hinn á starrænni tegund útgeislunar
(D-STAR), auk 4 stafvarpa með internetgáttir og 2 radíóvita Á 50 MHz og 70 MHz.
Ari mun jafnframt upplýsa um fyrirhugaða uppsetningu DMR endurvarpa á 2 m.
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Veglegar
kaffiveitingar.
Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A. Myndin var tekin í fjarskiptaherbergi TF3IRA í Skeljanesi 5. janúar. Ljósmynd: Jónas Bjarnason TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-03-26 10:04:522019-03-28 22:50:08ERINDI TF1A UM ENDURVARPA VERÐUR 28. MARS
Ágúst H. Bjarnason, TF3OM, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 21. mars og flutti erindið „Radíóamatör í meira en 50 ár, reynslusögur úr áhugamálinu frá barnsaldri…“.
Ágústi tókst mjög vel upp og sagði skemmtilega frá áhugamálinu
sem hófst þegar á unga aldri. Hann lýsir fyrstu kynnum sínum eftirfarandi: „Fyrstu
minningarnar frá því er ég sá rafmagn í fyrsta skipti eru þegar ég skreið að
veggtengli í borðstofunni sem tengdur var við brauðrist. Ég var með stóran gosflöskuupptakara
í hendi og setti hann milli pinnanna sem glitti í. Bang! Svakalegur bláhvítur
blossi, enda öryggið 16 amper eða kannski rúmlega það, því á þessum tíma voru
sprungin öryggi lagfærð heima. Flestir kunnu það. Sjálfsagt hef ég rekið upp
öskur, en þetta vakti áhuga minn á rafmagni sem lét mig ekki í friði næstu
áratugina. Síðan er skarð í upptakaranum þar sem hann komst í námunda við
rafmagnið!“.
Hann fékk leyfisbréfið 8. ágúst 1964 og fékk þar með
morsleyfi, talleyfi og smíðaleyfi frá Póst- og símamálastofnun, undirritað af
Jóni Skúlasyni Póst- og símamálastjóra. Upp frá því varð hann virkur í ÍRA, tók
m.a. þátt í refaveiðum, gerðist ritstjóri CQ TF og fleira.
Fyrsta QSO‘ið var við TF3KB á morsi á 40 metrum þann
11.8.1964 kl. 19:45, en Ágúst sýndi mynd úr upphaflegu fjarskiptadagbókinni frá
þeim tíma (sem hann á allar enn). Síðan fylgdu sambönd m.a. við TF5TP, TF3CJ,
TF3DX, TF3IC og fleiri íslenska leyfishafa og að sjálfsögðu DX-sambönd.
Ágúst keypti notaða Heathkit HW-32A stöð þegar hann flutti til Svíþjóðar til náms 1969-1971 og var þá frjáls með að tala til Íslands eftir því sem skilyrði leyfðu.
Margir taka sér hlé frá áhugamálinu og hann er einn þeirra. Ágúst sagði, að þegar vinnan væri á svipuðum nótum og áhugamálið … þá gengi það aldrei til lengdar. Hann tók aftur til til við amatör radíó fyrir 2 árum (2017) og segist afar ánægður með það í dag.
Mikil ánægja var með erindi Ágústs. Að sögn eins viðstaddra „…hefði mátt heyra saumnál detta …“ slíkur var áhugi og athygli fundarmanna. Um kl. 22:30 var Ágústi þakkað með veglegu lófaklappi fyrir vel undirbúið og vel flutt erindi. Líflegar umræður héldu þó áfram og fram yfir kl. 23. Mæting var góð í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld, alls 25 félagar og 1 gestur. Bestu þakkir til Ágústs H. Bjarnasonar, TF3OM.
Skeljanesi 21. mars. Ágúst H. Bjarnason flytur erindi um 55 ár í amatör radíói. Á meðfylgjandi glæru má lesa að þegar hann var 14 ára fann hann spennubreyti úr víbrator aflgjafa á víðavangi, tók til við að mæla spennuna en gleymdi sér og fékk gríðarmikinn straum. Þegar hann hafði jafnað sig mældi hann aftur (þá með vinstri hönd í vasanum) sýndi mælirinn 620 volt AC…
Ágúst hefur verið duglegur við heimasmíðar í gegnum árin eins og sjá má á eftirfarandi ljósmynd og hann á enn mikið af „dótinu“ sem hann hefur smíðað á vísum stað í bílskúrnum.
Ágúst á DBS hjólinu við refaveiðar, ca. 1965. Með honum á myndinni er Sveinn Guðmundsson TF3SG. Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB tók ljósmyndina.
Frá vinstri (fremst): Stefán Arndal TF3SA, Wilhelm Sigurðsson TF3AWS, Yngvi Harðarson TF3YH, Óskar Sverrisson TF3DC, Guðmundur Ingi Hjálmtýsson TF3IG, Ársæll Óskarsson TF3AO, Bjarni Sverrisson TF3GB, Jón Björnsson TF3PW, Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX, Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS, Mathías Hagvaag TF3MH, Georg Kulp TF3GZ, Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A, Bernhard M. Svavarsson TF3BS og Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB.
Frá vinstri (aftast): Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB, Bernhard M. Svavarsson TF3BS, Ari þórólfur Jóhannesson TF1A, Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX, Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS, Guðmundur Ingi Hjálmtýsson TF3IG, Ársæll Óskarsson TF3AO og Bjarni Sverrisson TF3GB. Í hliðarsal til hægri: Þorvaldur Bjarnason TF3TB, Þórarinn Benediktz TF3TZ og Mathías Hagvaag TF3MH. Ljósmyndir: Kristján Benediktsson TF3KB og Óskar Sverrisson TF3DC.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-03-22 21:04:222019-03-28 22:51:14TF3OM: 55 ÁR LÍÐA FLJÓTT SEM RADÍÓAMATÖR
TF8KY: Ferðasaga og Páskaleikar ÍRA 2019
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, mætti í Skeljanes 11. apríl og sagði okkur ferðasögu frá DX-leiðangri til Seychelles eyja sumarið 2016. Eftir kaffihlé, fór hann yfir og kynnti reglur Páskaleikana 2019.
Keli sagðist hafa verið tiltölulega reynslulítill í DX og keppnum þegar honum var boðið að taka þátt í S79V leiðangrinum 1.-10. júlí 2016. Hann sýndi myndir og myndbönd úr ferðinni, lýsti m.a. undirbúningi og uppsetningu einsbands VDA loftneta og skýrði smíði þeirra og virkni. Hann sagði ferðina vel heppnaða og lærdómsríka, en höfð voru yfir 20 þúsund QSO. Ferðafélagar voru þeir Paul A65DR, Joel A65BX, Martin A65DC, Gerald A65CB og Obaid A61DJ.
Eftir kaffihlé var farið yfir komandi Páskaleika ÍRA. Keli fór yfir „log-viðmót“ og virkni, rifjaði upp reynslu fyrra árs leika, fór yfir tíðnisvið og reglur leikanna. Fjörlegar umræður urðu um reglurnar, samanborið við VHF leikana og 80 metra bandið og skipst á skoðunum. Reglur og leikjavefur verður sett á heimasíðu félagsins á næstu dögum til kynningar.
Erindi Kela var áhugavert og vel flutt. Hann svaraði spurningum greiðlega í líflegum umræðum. Að lokum fékk Hrafnkell verðskuldað klapp og þakkir viðstaddra. Menn ræddu málin síðan áfram allt fram undir kl. 23. Alls mættu 19 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld.
TF8KY: DX-LEIÐANGUR TIL S79V – FERÐASAGA
Næst á vetrardagskrá ÍRA er ferðasaga Hrafnkels Sigurðssonar TF8KY frá DX-leiðangri til Seychelles eyja, sem flutt verður í Skeljanesi fimmtudaginn 11. apríl kl. 20:30.
Keli slóst í för með þeim Paul A65DR, Joel A65BX, Martin A65DC og Obaid A65DJ til Mahe eyju, sem er stærst í Seychelles eyjaklasanum í Indlandshafi, 1.-10. júlí 2016.
Hópurinn hafði alls 20.135 QSO. Fimm TF kallmerki náðu 14 samböndum við S79V á SSB, RTTY og PSK á 17, 20 og 40 metrum. Seychelles er á CQ svæði 39 og IOTA AS-024; fjarlægð frá TF er um 9500 km.
Mætum tímanlega! Veglegar kaffiveitingar.
P.s. Keli mun kynna Páskaleikana 2019 eftir frásögnina af ferðinni til Seychelles eyja.
FULLBÓKAÐ Á ARDUINO NÁMSKEIÐ HJÁ TF3VS
ÍRA gekkst fyrir nýjung í félagsstarfinu í Skeljanesi í dag laugardaginn 6. apríl. Um er að ræða grunnnámskeið með Arduino örtölvur í formi sýnikennslu og verkefna fyrir byrjendur. Leiðbeinandi var Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS.
Fullbókað var á námskeiðinu, en miðað er við mest sex þátttakendur en átta voru mættir. Þegar tíðindamann bar að garði skömmu fyrir hádegið voru menn önnum kafnir líkt og sjá má á meðfylgjandi ljósmyndum.
Námskeiðið hófst kl. 10 árdegis og er miðað við að því ljúki um kl. 15 í eftirmiðdaginn. Aðspurður sagði TF3VS að athugað verði með að bjóða nýtt námskeið eftir páska.
TF3DX FÓR Á KOSTUM Í SKELJANESI
Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, mætti í Skeljanes 4. apríl með erindið „Radíótækni í árdaga“.
Hann fór yfir söguna (með dæmum) um hvernig frumherjarnir smíðuðu senda og viðtæki áður en lampar og transistorar voru fundnir upp. Upphaflegu radíótækin voru nefnilega vélræn (mekanísk) í grunninn, fremur en byggð á rafeindatækni á tímum þegar neistasendar voru alls ráðandi.
Erindið var vandað, forvitnilegt, skemmtilegt og afar vel flutt. Vilhjálmur sló á létta strengi á milli þess sem hann skýrði frá tækninni, dreifði á meðal viðstaddra tæknibókum og sýnishornum af ýmsu tagi. Rúsínan í pylsuendanum var síðan þegar hann ræsti raunverulegan neistasendi og leyfði viðstöddum að sjá neistann og síðar, að hlusta á neistann í viðtæki (sjá myndbandsbút neðst).
Það var góð mæting í Skeljanes þetta fallega síðvetrarkvöld í Reykjavík, eða alls 36 manns. Þar af voru 4 gestir. Vilhjálmur uppskar verðskuldað lófaklapp að lokum. Bestu þakkir til Vilhjálms Þórs TF3DX.
TF3VS: NÁMSKEIÐ UM ARDUINO ÖRTÖLVUR
Grunnnámskeið með Arduino örtölvur verður haldið í Skeljanesi laugardaginn 6. apríl. Um er að ræða sýnikennslu og verkefni fyrir byrjendur. Leiðbeinandi er Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS. Námskeiðið hefst kl. 10:00.
Miðað er við að þátttakendur komi með eigin Arduino örtölvur (er ekki skilyrði) og vinni hagnýt verkefni sem nýtast í amatör radíói. Menn þurfa helst að hafa eigin fartölvu þótt þeir komi ekki með Arduino.
Félagsmenn eru beðnir að senda póst til félagsins á póstfangið ira hjá ira.is þar sem eftirfarandi kemur fram:
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn að nýta þetta spennandi tækifæri. Vandaðar kaffiveitingar.
TF3DX Í SKELJANESI: RADÍÓTÆKNI Í ÁRDAGA
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn 4. apríl kl. 20:30. Þá mætir Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, í Skeljanes með erindið „Radíótækni í árdaga.“
Vilhjálmur segir sjálfur: „Hvernig var hægt að smíða senda og viðtæki áður lampar og nórar (transistorar) voru fundnir upp? Segja má að upphaflegu radíótækin hafi verið vélræn (mekanísk) í grunninn, fremur en byggð á rafeindatækni. Neistasendar voru alls ráðandi, sjá mynd. Neistasendir verður ræstur, þó ekki út í loftnet! Notkun þeirra til fjarskipta var bönnuð fyrir löngu“.
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Veglegar kaffiveitingar.
Nýtt CQ TF er komið út
Ágætu félagsmenn!
Mér er ánægja að tilkynna um útkomu 2. tölublaðs CQ TF 2019, sem nú kemur út á stafrænu formi hér á heimasíðunni.
Margir hafa lagt hönd á plóg og mörgum ber að þakka, en sér í lagi TF3VS sem annaðist umbrotsvinnu.
CQ TF er að þessu sinni 40 blaðsíður að stærð.
73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF.
Hér fyrir neðan má finna hlekk á blaðið.
http://www.ira.is/wp-content/uploads/2019/03/cqtf_33arg_2019_02tbl.pdf
SÓFAUMRÆÐUR Í SKELJANESI UM DX & QSL KORT
Jónas Bjarnason TF3JB mætti í sófaumræður sunnudaginn 31. mars kl. 10:30 með erindið: „DX sambönd og hvernig best og fljótvirk-ast er staðið að öflun QSL korta“.
Fyrst var farið yfir nokkrar glærur í myndvarpanum, m.a. (1) hvers vegna við notum QSL kort; (2) hvar menn „ná“ DX‘inum helst; (3) mikilvægi þess að QSO sé örugglega í log; (4) hvaða aðferðum má beita til að fá QSL kort fljótt; (5) umfjöllun um eigið QSL kort; og (6) umfjöllun um að erfiðara getur verið að fá QSL kort frá sumum löndum en öðrum og fl.
Í sófasettinu var síðan rætt um hinar ýmsu aðferðir sem hægt er að beita til að ná „þeim feita“ og rætt um DX‘inn út frá QSO’um við einstaklinga, klúbbstöðvar og DX-leiðangra. Farið yfir fyrirbærin DIRECT kort, QSL MANAGER‘A, OQRS aðferð og kosti þess að gerast styrktaraðili DX-leiðangra.
Alls mættu 10 félagar og 1 gestur þennan veðurmilda sunnudagsmorgun í Skeljanes. Umræðum lauk formlega upp úr kl. 12:30 en umfjöllunarefnið var „heitt“ þannig að síðustu menn ræddu málin áfram fram undir kl. 14. TF3JB fékk að lokum gott klapp og lofaði að gera grein fyrir umfjöllunarefninu í CQ TF.
Sunnudagur: Sófaumræður í Skeljanesi
Jónas Bjarnason TF3JB mætir í sófaumræður sunnudaginn 31. mars kl. 10:30 og er yfirskriftin:
„DX sambönd og hvernig best og fljótvirkast er staðið að öflun QSL korta“.
Húsið verður opnað kl. 10 árdegis. Miðað er við að dagskrá verði tæmd á hádegi. Kaffi og kaffibrauð frá Björnsbakaríi.
Um sunnudagsopnanir.
Sunnudagsopnanir hafa verið skýrðar á þann veg að um sé að ræða fyrirkomulag menntandi umræðu á messutíma sem er hugsuð afslöppuð, þ.e. þar sem menn sitja með kaffibolla í leðursófasettinu og ræða amatör radíó. Tiltekinn leyfishafi sem hefur staðgóða þekkingu á viðkomandi umræðuefni leiðir umfjöllun og svarar spurningum.
TF1A og TF3EY kynntu endurvarpa 28. mars
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætti í Skeljanes 28. mars og flutti erindi um endurvarpa.
Ari hefur hefur góða þekkingu á umfjöllunarefninu og veitti okkur áhugaverða innsýn í þennan tækniheim sem gerir okkur kleift að nota VHF/UHF stöðvar til sambanda yfir langar vegalengdir innanlands.
Hann útskýrði vel hvernig samtenging endurvarpa á VHF og UHF gerir leyfishöfum kleift að hafa krossband sambönd sem eykur mjög notagildi og útbreiðslu, t.d. þegar notaðar eru handstöðvar (jafnvel) búnar mjög litlu afli. Ari kynnti þá 5 VHF endurvarpa og 2 UHF endurvarpa sem eru í rekstri. Þeir eru allir nema einn fyrir FM mótun, en einn er fyrir starræna tegund útgeislunar (D-STAR).
Eftir kaffihlé tók Erik Finskas, TF3EY (OH2LAK) við og flutti áhugavert erindi um DMR (e. Digital Mobile Radio), sem rutt hefur sér til rúms síðustu ár, en yfir 3000 DMR endurvarpar hafa þegar verið settir upp fyrir radíóamatöra í 50 þjóðlöndum.
Erindi Eriks má skoða í heild á þessari vefslóð: http://dy.fi/vof
Stjórn ÍRA þakkar þeim Ara og Erik fyrir áhugaverð erindi. Þrátt fyrir snjófjúk og vindasamt veður, mættu 27 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld.
ERINDI TF1A UM ENDURVARPA VERÐUR 28. MARS
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn 28. mars kl. 20:30. Þá mætir Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A í Skeljanes með erindið: „Endurvarpar“.
Ari hefur mikla reynslu af uppsetningu, viðhaldi og notkun endurvarpa. Hann hefur árum saman unnið við endurvarpa félagsins, fyrst í félagi við Sigurð Harðarson, TF3WS og síðar einsamall og með Guðmundi Sigurðssyni, TF3GS þegar Ólafur B. Ólafsson, TF3ML, keypti endurvarpa til notkunar á 2 m og 70 cm. Þá kom hann að uppsetningu radíóvita Óla á Mýrum í Borgarfirði, sem teknir voru í notkun í fyrra á 50 og 70 MHz.
Ari mun skýra hvernig endurvarpi vinnur. Hann mun t.d. svara spurningunni hvers vegna tíðniafsetning í sendingu inn á endurvarpa á 2 m er aðeins 600 Hz samanborið við 5 MHz á 70 cm.
Í dag eru 5 FM endurvarpar fyrir radíóamatöra í rekstri hérlendis á 2 m, 2 á 70 cm; annar á FM og hinn á starrænni tegund útgeislunar (D-STAR), auk 4 stafvarpa með internetgáttir og 2 radíóvita Á 50 MHz og 70 MHz. Ari mun jafnframt upplýsa um fyrirhugaða uppsetningu DMR endurvarpa á 2 m.
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Veglegar kaffiveitingar.
TF3OM: 55 ÁR LÍÐA FLJÓTT SEM RADÍÓAMATÖR
Ágúst H. Bjarnason, TF3OM, mætti í Skeljanes fimmtudaginn 21. mars og flutti erindið „Radíóamatör í meira en 50 ár, reynslusögur úr áhugamálinu frá barnsaldri…“.
Ágústi tókst mjög vel upp og sagði skemmtilega frá áhugamálinu sem hófst þegar á unga aldri. Hann lýsir fyrstu kynnum sínum eftirfarandi: „Fyrstu minningarnar frá því er ég sá rafmagn í fyrsta skipti eru þegar ég skreið að veggtengli í borðstofunni sem tengdur var við brauðrist. Ég var með stóran gosflöskuupptakara í hendi og setti hann milli pinnanna sem glitti í. Bang! Svakalegur bláhvítur blossi, enda öryggið 16 amper eða kannski rúmlega það, því á þessum tíma voru sprungin öryggi lagfærð heima. Flestir kunnu það. Sjálfsagt hef ég rekið upp öskur, en þetta vakti áhuga minn á rafmagni sem lét mig ekki í friði næstu áratugina. Síðan er skarð í upptakaranum þar sem hann komst í námunda við rafmagnið!“.
Hann fékk leyfisbréfið 8. ágúst 1964 og fékk þar með morsleyfi, talleyfi og smíðaleyfi frá Póst- og símamálastofnun, undirritað af Jóni Skúlasyni Póst- og símamálastjóra. Upp frá því varð hann virkur í ÍRA, tók m.a. þátt í refaveiðum, gerðist ritstjóri CQ TF og fleira.
Fyrsta QSO‘ið var við TF3KB á morsi á 40 metrum þann 11.8.1964 kl. 19:45, en Ágúst sýndi mynd úr upphaflegu fjarskiptadagbókinni frá þeim tíma (sem hann á allar enn). Síðan fylgdu sambönd m.a. við TF5TP, TF3CJ, TF3DX, TF3IC og fleiri íslenska leyfishafa og að sjálfsögðu DX-sambönd.