Velkomin á SYLRA-fund í Kungsbacka, Svíþjóð dagana 8. til 17. september 2017.
Við heimsækjum Onsala Space Observatory OSO og fáum að vita hvað örbylgjur utan úr geimi geta sagt okkur.
Á öðrum degi heimsækjum við langbylgju sendistöðina Grimeton sem byggð var á þriðja áratug síðustu aldar og er ennþá í góðu lagi sjá: www.grimeton.org. Og áfram höldum við og lærum miklu meira.
Opið er fyrir skráningu á SYLRA 2017.
Vonumst til að sjá ykkur, Anita SM6FXW and Solveig SM6KAT
Keppnishópur/ Úrvalslið ÍRA í alþjóðlegum MORSE keppnum teljum við að hafi verið ágætlega skipaður undanfarin ár /áratugi. Þar hafa eftirtaldir radíóamatörar a.m.k. komið við sögu:
Kristinn Andersen TF3KX, Sæmundur Þorsteinsson TF3UA, Yngvi Harðarson TF3Y, Óskar Sverrisson TF3DC, Haraldur Þórðarson TF3HP, Bjarni Sverrisson TF3GB, Jónas Bjarnason TF3JB, Stefán Arndal TF3SA, Gísli Ófeigsson TF3G, Guðmundur Sveinsson TF3SG, Egill Ibsen TF3EO, Sigurður Jakobsson TF3CW, Jakob býr í Noregi TF3EJ, Axel Sölvason TF3AX, Kristján Benediktsson TF3KB, Vilhjálmur Kjartansson TF3DX, Benedikt Sveinsson TF3T, Þorvaldur Stefánsson TF4M, Þór Þórisson TF3GW, Vilhjálmur Sigurjónsson TF3VS, Guðlaugur Jónsson TF8GX, Andrés Þórarinsson TF3AM, Sveinn Guðmundsson TF3T (SK). (Beðist er fyrirfram velvirðingar ef við höfum gleymt einhverjum).
Síðasta morse keppni sem ÍRA (TF3W) tók þátt í af sæmilegum krafti var CQWW CW 2015 en keppnisliðið þá var mannað af: TF3Y, TF3EO, TF3DC, TF3KX, TF3SA, TF3UA ásamt TF3EK og TF3JA með sérstaka áherslu á loftnetin. Þátttakan síðan þá í morse-keppnum frá félagsstöðinni hefur eiginlega verið til málamynda þó svo að hún hafi verið góð frá TF í einmenningsflokkunum.
Ekki stefnir í nein stórafrek frá félagsstöðinni um komandi helgi en áhugasamir eru beðnir að hafa sambandi við formann, TF3JA eða einhvern úr stjórninni ef áhugi er fyrir að virkja félagsstöðina í keppninni. Félagsstöðin er í ágætu lagi og er til afnota fyrir félaga ÍRA hvenær sem þeir óska.
Og ef ekki þá fylgir hér hvatning frá stjórn ÍRA til allra CW operatora um að þeir láti TF hljóma á böndunum um helgina.
Nánar um WPX keppnina, reglur o.fl.: https://www.cqwpx.com/
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Óskar Sverrissonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngÓskar Sverrisson2017-05-23 14:21:372017-06-06 14:02:41CQ World Wide WPX CW keppnin fer fram um næstu helgi.
Villi var virkur á 300/27 metrum hér á árum áður, eitt af loftnetunum hans var 4 staka Quad sem ætlunin var að fara með upp á Snæfellsjökul. Villi ætlar að koma á námskeið í haust og er þegar byrjaður að læra fyrir prófið. Villi hefur mikinn áhuga á 2 og 0,7 metrunum og jafnvel enn hærri böndum ef þar verður einhver virkni.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2017-05-19 09:24:252017-05-19 11:24:57Létt yfir Radíóhaukum í Skeljanesi í gærkvöldi
Með bréfi 2014120011 dags 2.12.2014 heimilaði PFS radíóáhugamönnum tímabundna notkun tíðnisviðsins 5260-5410 kHz út árið 2016. Heimildin var síðan framlengd til 1.5.2017. 25 radíóáhugamenn hafa sótt um slíka heimild og fengið. Heimildin hefur nú verið framlengd til 31.12.2017 á meðan framhaldið er skoðað.
Skeljanes opnar klukkan 20 með ilmandi kaffi og meðlæti núna á fimmtudagskvöldi 11. maí, að kveldi lokadags vertíðar.
“á árum áður þá var oft mikill slagur dagana fyrir Lokadaginn og var oft barist fram á síðasta dag um að verða aflahæstur. þá var iðulega miðað við netin enda voru þá netaveiðarnar mun meiri enn eru í dag,..”
…en í Skeljanesi ætlar Einar, TF3EK að halda áfram þar sem fyrr var horfið í vetur á SOTA-kvöldi og fjallar um:
Reglur sem gilda um virkjun tinda.
Aðlögun fyrir endafædd hálfbylgjuloftnet
Uppsetning á fíberstöng fyrir portable loftnet, stög og hnútar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2017-05-09 11:28:002017-05-19 09:46:04SOTA og fleira á fimmtudagskvöld í Skeljanesi
Í dag fylgjum við góðri vinkonu og radíóamatör til grafar. Blessuð sé minning Fríðu. Við vottum Haraldi Þórðarsyni, TF8HP, eftirlifandi eiginmanni Fríðu og fjölskyldu okkar samúð.
Málfríður Haraldsdóttir TF8FH tók amatörpróf 1977 og fékk kallmerkið TF3FHT.
T-leyfispróf var haldið í fyrsta skipti 9. júní 1977. En þetta próf er í samræmi við nýju reglugerðina frá l. jan. ’77. Alls stóðust fimm íslenzkar konur prófið. Eru þá íslenzkir kvenleyfishafar orðnir 6 með Sigrúnu,TF3YL. Er félaginu mikill fengur af þeim, og bjóðum við þær hjartanlega velkomnar í félagið. – CQ TF 1978
Radíóáhugamannapróf verður haldið á morgun 29. apríl kl. 10 í Háskólanum í Reykjavík. Prófið er í tveimur hlutum, tæknipróf og próf í reglugerð og viðskiptum.
Ennþá er opið fyrir skráningu í prófið og eru sérstaklega amatörar með N-leyfi hvattir til að koma og reyna við G-leyfið. Áhugasamir tilkynni sig á ira@ira.is, þátttakendur á nýloknu námskeiði hjá ÍRA þurfa ekki að endurtaka skráningu í próf.
stjórn ÍRA
Radíóamatörar taka próf og fá leyfi hjá yfirvöldum í hverju landi til þess að stunda amatörfjarskipti og hanna og smíða amatörfjarskiptabúnað. Amatörum er úthlutað alþjóðlegum kallmerkjum sem þeir auðkenna sig með í sínum fjarskiptum. Íslensk kallmerki hefjast á bókstöfunum TF. Amatörradíó á sér fjölmargar hliðar. Radíóamatörar hafa víða komið við sögu í þróun fjarskiptatækninnar við hönnun og gerð senditækja, móttakara og loftneta. Sumir radíóamatörar státa af fjarskiptum kringum jarðkringluna með einföldum heimasmíðuðum tækjum og sáralitlu afli úr vasaljósarafhlöðum, meðan aðrir leggja metnað í að ná árangri í alþjóðlegum keppnum amatöra með kraftmiklum búnaði og öflugum loftnetum. Radíóamatörar hafa hannað og smíðað gervihnetti sem endurvarpa sendingum milli landa og enn aðrir nota yfirborð tunglsins til að spegla radíósendingum til fjarlægra heimshluta. Þekking radíóamatöra á tækni og nýtingu skilyrða í háloftunum til fjarskipta er ómetanleg auðlind og hefur oft skipt sköpum í neyðartilvikum þegar hefðbundin fjarskiptakerfi hafa brugðist. … úr CQ TF.
opið verður í Skeljanesi í kvöld frá klukkan átta að venju. Kaffi á könnunni og meðlætið er kex, engar kleinur í kvöld. Núna á laugardag verður haldið próf fyrir verðandi radíóamatöra og ekki ólíklegt að einhver nemandi komi í heimsókn í kvöld og hafi margs að spyrja. Við tökum vel á móti honum og svörum spurningum og sýnum aðstöðuna og jafnvel förum í loftið á stöð félagsins.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2017-04-20 15:02:402017-05-19 09:50:13Gleðilegt sumar radíóáhugamenn – lokað í kvöld í Skeljanesi en opið á laugardag frá klukkan 10 að morgni
SYLRA fundur í september 2017
Velkomin á SYLRA-fund í Kungsbacka, Svíþjóð dagana 8. til 17. september 2017.
Við heimsækjum Onsala Space Observatory OSO og fáum að vita hvað örbylgjur utan úr geimi geta sagt okkur.
Á öðrum degi heimsækjum við langbylgju sendistöðina Grimeton sem byggð var á þriðja áratug síðustu aldar og er ennþá í góðu lagi sjá: www.grimeton.org. Og áfram höldum við og lærum miklu meira.
Opið er fyrir skráningu á SYLRA 2017.
Vonumst til að sjá ykkur, Anita SM6FXW and Solveig SM6KAT
CQ World Wide WPX CW keppnin fer fram um næstu helgi.
Keppnishópur/ Úrvalslið ÍRA í alþjóðlegum MORSE keppnum teljum við að hafi verið ágætlega skipaður undanfarin ár /áratugi. Þar hafa eftirtaldir radíóamatörar a.m.k. komið við sögu:
Kristinn Andersen TF3KX, Sæmundur Þorsteinsson TF3UA, Yngvi Harðarson TF3Y, Óskar Sverrisson TF3DC, Haraldur Þórðarson TF3HP, Bjarni Sverrisson TF3GB, Jónas Bjarnason TF3JB, Stefán Arndal TF3SA, Gísli Ófeigsson TF3G, Guðmundur Sveinsson TF3SG, Egill Ibsen TF3EO, Sigurður Jakobsson TF3CW, Jakob býr í Noregi TF3EJ, Axel Sölvason TF3AX, Kristján Benediktsson TF3KB, Vilhjálmur Kjartansson TF3DX, Benedikt Sveinsson TF3T, Þorvaldur Stefánsson TF4M, Þór Þórisson TF3GW, Vilhjálmur Sigurjónsson TF3VS, Guðlaugur Jónsson TF8GX, Andrés Þórarinsson TF3AM, Sveinn Guðmundsson TF3T (SK). (Beðist er fyrirfram velvirðingar ef við höfum gleymt einhverjum).
Síðasta morse keppni sem ÍRA (TF3W) tók þátt í af sæmilegum krafti var CQWW CW 2015 en keppnisliðið þá var mannað af: TF3Y, TF3EO, TF3DC, TF3KX, TF3SA, TF3UA ásamt TF3EK og TF3JA með sérstaka áherslu á loftnetin. Þátttakan síðan þá í morse-keppnum frá félagsstöðinni hefur eiginlega verið til málamynda þó svo að hún hafi verið góð frá TF í einmenningsflokkunum.
Ekki stefnir í nein stórafrek frá félagsstöðinni um komandi helgi en áhugasamir eru beðnir að hafa sambandi við formann, TF3JA eða einhvern úr stjórninni ef áhugi er fyrir að virkja félagsstöðina í keppninni. Félagsstöðin er í ágætu lagi og er til afnota fyrir félaga ÍRA hvenær sem þeir óska.
Og ef ekki þá fylgir hér hvatning frá stjórn ÍRA til allra CW operatora um að þeir láti TF hljóma á böndunum um helgina.
Nánar um WPX keppnina, reglur o.fl.: https://www.cqwpx.com/
CQ World Wide WPX Contest
SOTA 11. maí 2017 TF3EK
TF3EK kynning
TF3EK að sýna SOTA-loftnetið sitt TF3OM, TF3ID og TF3LM fylgjast með
Villi og TF3JA
myndir TF3DC
Heimasmíðaður UNUN 1:40 Stöð tengd beint við UNUN með kóax sem fæðir lárétt, hallandi eða lóðrétt hálfbylgju loftnet, engin jörð
mynd TF3EK
Létt yfir Radíóhaukum í Skeljanesi í gærkvöldi
TF1GW, TF3MH, TF3GB, TF3DC og Villi
TF3DT og TF3VS
Villi og TF3ID
Villi var virkur á 300/27 metrum hér á árum áður, eitt af loftnetunum hans var 4 staka Quad sem ætlunin var að fara með upp á Snæfellsjökul. Villi ætlar að koma á námskeið í haust og er þegar byrjaður að læra fyrir prófið. Villi hefur mikinn áhuga á 2 og 0,7 metrunum og jafnvel enn hærri böndum ef þar verður einhver virkni.
Opið í Skeljanesi í kvöld 20 – 22
Opið í Skeljanesi í kvöld 20 – 22
Leyfi fyrir 5260-5410 kHz framlengt til áramóta
Með bréfi 2014120011 dags 2.12.2014 heimilaði PFS radíóáhugamönnum tímabundna notkun tíðnisviðsins 5260-5410 kHz út árið 2016. Heimildin var síðan framlengd til 1.5.2017. 25 radíóáhugamenn hafa sótt um slíka heimild og fengið. Heimildin hefur nú verið framlengd til 31.12.2017 á meðan framhaldið er skoðað.
SOTA og fleira á fimmtudagskvöld í Skeljanesi
Skeljanes opnar klukkan 20 með ilmandi kaffi og meðlæti núna á fimmtudagskvöldi 11. maí, að kveldi lokadags vertíðar.
“á árum áður þá var oft mikill slagur dagana fyrir Lokadaginn og var oft barist fram á síðasta dag um að verða aflahæstur. þá var iðulega miðað við netin enda voru þá netaveiðarnar mun meiri enn eru í dag,..”
…en í Skeljanesi ætlar Einar, TF3EK að halda áfram þar sem fyrr var horfið í vetur á SOTA-kvöldi og fjallar um:
Reglur sem gilda um virkjun tinda.
Aðlögun fyrir endafædd hálfbylgjuloftnet
Uppsetning á fíberstöng fyrir portable loftnet, stög og hnútar.
……úti ef veður leyfir.
Rafhlöður
DX á 20 metrum
Portable jt65, tölva skilyrði og aflþörf.
http://www.sotawatch.org/ og sotalite
loggar og http://www.sotadata.org.uk/
Myndirnar eru frá ferð TF3EK á Trönu
Opið í Skeljanesi í kvöld 20 – 22
Kevin Scofield, KD0VHD, Colorado, USA kemur í heimsókn
www.qrz.com/db/KD0VHD
kaffi og kleinur
TF8FH er látin
Í dag fylgjum við góðri vinkonu og radíóamatör til grafar. Blessuð sé minning Fríðu. Við vottum Haraldi Þórðarsyni, TF8HP, eftirlifandi eiginmanni Fríðu og fjölskyldu okkar samúð.
Málfríður Haraldsdóttir TF8FH tók amatörpróf 1977 og fékk kallmerkið TF3FHT.
T-leyfispróf var haldið í fyrsta skipti 9. júní 1977. En þetta próf er í samræmi við nýju reglugerðina frá l. jan. ’77. Alls stóðust fimm íslenzkar konur prófið. Eru þá íslenzkir kvenleyfishafar orðnir 6 með Sigrúnu,TF3YL. Er félaginu mikill fengur af þeim, og bjóðum við þær hjartanlega velkomnar í félagið. – CQ TF 1978
Radíóáhugamannapróf
Radíóáhugamannapróf verður haldið á morgun 29. apríl kl. 10 í Háskólanum í Reykjavík. Prófið er í tveimur hlutum, tæknipróf og próf í reglugerð og viðskiptum.
Ennþá er opið fyrir skráningu í prófið og eru sérstaklega amatörar með N-leyfi hvattir til að koma og reyna við G-leyfið. Áhugasamir tilkynni sig á ira@ira.is, þátttakendur á nýloknu námskeiði hjá ÍRA þurfa ekki að endurtaka skráningu í próf.
stjórn ÍRA
Radíóamatörar taka próf og fá leyfi hjá yfirvöldum í hverju landi til þess að stunda amatörfjarskipti og hanna og smíða amatörfjarskiptabúnað. Amatörum er úthlutað alþjóðlegum kallmerkjum sem þeir auðkenna sig með í sínum fjarskiptum. Íslensk kallmerki hefjast á bókstöfunum TF. Amatörradíó á sér fjölmargar hliðar. Radíóamatörar hafa víða komið við sögu í þróun fjarskiptatækninnar við hönnun og gerð senditækja, móttakara og loftneta. Sumir radíóamatörar státa af fjarskiptum kringum jarðkringluna með einföldum heimasmíðuðum tækjum og sáralitlu afli úr vasaljósarafhlöðum, meðan aðrir leggja metnað í að ná árangri í alþjóðlegum keppnum amatöra með kraftmiklum búnaði og öflugum loftnetum. Radíóamatörar hafa hannað og smíðað gervihnetti sem endurvarpa sendingum milli landa og enn aðrir nota yfirborð tunglsins til að spegla radíósendingum til fjarlægra heimshluta. Þekking radíóamatöra á tækni og nýtingu skilyrða í háloftunum til fjarskipta er ómetanleg auðlind og hefur oft skipt sköpum í neyðartilvikum þegar hefðbundin fjarskiptakerfi hafa brugðist. … úr CQ TF.
Opið hús í Skeljanesi í kvöld 20 – 22
sælir félagar,
opið verður í Skeljanesi í kvöld frá klukkan átta að venju. Kaffi á könnunni og meðlætið er kex, engar kleinur í kvöld. Núna á laugardag verður haldið próf fyrir verðandi radíóamatöra og ekki ólíklegt að einhver nemandi komi í heimsókn í kvöld og hafi margs að spyrja. Við tökum vel á móti honum og svörum spurningum og sýnum aðstöðuna og jafnvel förum í loftið á stöð félagsins.
Gleðilegt sumar radíóáhugamenn – lokað í kvöld í Skeljanesi en opið á laugardag frá klukkan 10 að morgni