,

FRÁBÆRT ERINDI ANDRÉSAR, TF1AM

Andrés Þórarinsson, TF1AM mætti í Skeljanes fimmtudaginn 1. febrúar með með erindið: “Heppilegar tíðnir á stuttbylgju til innanlandsfjarskipta“.

Sýndar voru myndir frá gömlu góðu Víbon-tímunum þegar hver bíll var með sitt Gufunes-loftnet á þakinu.  Rakin voru nokkur dæmi um fjarskipti úr leitum og frá radíóæfingum og árangur tengdur við stöðu himinhvolfana þann daginn, þ.e. fjölda sólbletta, kyrrð (eða ókyrrð) í segulsviði, norðurljós, K-stuðul o fl. Ekkert augljóst samhengi er á meðal þessara þátta.

Þá var vísað í viðamiklar rannsóknir á vegum Bandaríkjamanna sem ásamt öðrum ráku háloftastöðvar víða um heim, en þessar stöðvar sendu tíðnisvíp upp og mældu tímann sem tók fyrir merkið að koma aftur niður, þannig má finna hæstu tíðni (MUF) sem hægt er að nota svo og hæð endurvarpsbelta og var samantektin var gefin út í þremur þykkum heftum. 

Svíar gáfu út hefti  þar sem spáð var fyrir um heppilegustu tíðni allt eftir tíma dags, mánuði og eftir sólblettum.  Niðurstaðan af öllu þessu er sú að að sumarlagi má trúlega nota eina tíðni allan sólarhringinn til fjarskipta um allt land með loftbylgju, en á vetrum er allt annað upp á teninginn þar sem velja þarf sífellt hærri tíðni frá sólarupprás og fram að hádegi og síðan sífellt lægri tíðni allt fram í myrkur.  Ef miklar truflanir að nóttu eru þá gæti verið ráð að nota lóðrétta stöng fyrir jarðbylgju og jafnvel hlusta á lárétt net sem síður eru næm fyrir truflunum. 

Að lokum var bent á TF útileika ÍRA sem heppilegan vettvang til að æfa þessa tækni alla, auðvitað væri áhugavert ef útileikarnir væru síðar um haustið þegar frekar  þarf að flakka á milli tíðna.  Erindinu var vel tekið og talsvert spurt.  Alls voru um 30 manns í sal og 11 fjartengdir yfir netið.  Á eftir sátu menn og spjölluðu um þessi mál og um heima og geima.

Sérstakar þakkir til Andrésar Þórarinssonar, TF1AM fyrir afar fróðlegt, áhugavert og vel flutt erindi sem veitti góða innsýn inn í þennan spennandi þátt áhugamálsins, sem útbreiðsla radíóbylgna á stuttbylgju er innanlands. Einnig sérstakar þakkir til Hrafnkels Sigurðssonar, TF8KY fyrir tæknistjórn við að streyma viðburðinum. Alls tóku 42 félagar og gestir þátt í viðburðinum þetta frábæra fimmtudagskvöld í Skeljanesi; 30 á staðnum og 12 tengdir yfir netið.

Stjórn ÍRA.

Andrés Þórarinsson TF1AM, Snorri Ingimarsson TF3IK og Ágúst H. Bjarnason TF3OM.
Andrés byrjaði erindið stundvíslega kl. 20:30.
Ágúst Úlfar Sigurðsson TF3AU, Snorri Ingimarsson TF3IK, tveir gestir, Björgvin Víglundsson TF3BOI og Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA.
Mynd af hluta gesta í sal.
Upplýsingar um ástandið í háloftunum sem hefur áhrif á útgeislun radíómerkja í stuttbylgjunni innanlands.
Andrés sagði m.a. frá “Ionospheric Preditions” sem er þekkt samantekt frá Fjarskiptastofu sænska hersins og fjallar um fjarskiptaspár mánuð fyrir mánuð fyrir MUF.
Andrés útskýrði m.a. fjarskiptaspár og sýndi hvernig þeir eru gerðar.
Hvað er jarðbylgja? Farið yfir skilyrðin á jarðbylgju sem er mismunandi eftir tíma dags.
Andrés endaði erindið með upplýsingum um mismunandi gerðir loftneta með tilliti til útbreiðslu radíóbylgna í stuttbylgju innanlands. Ljósmyndir: Þakkir til TF3JON og TF3GZ.
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

one × two =