,

FJARSKIPTALEIKAR/PÁSKALEIKAR 2024

Kæru félagar!

Jæja, loksins loksins… Páskar löngu liðnir og tími til kominn að halda Páskaleika. Það hvíslaði að mér lítill fugl að ýmsir radíóamatörar séu að undirbúa stórsókn í næstu leikum. Ætla að skáka þeim sem vermt hafa efstu sætin síðustu ár. Nú þurfa allir sem vettlingi geta valdið að gera þetta ekki of auðvelt. Allir upp með græjurnar, upp á heiðar, fjöll og út í eyjar. Eða bara láta fara vel um sig heima í sjakknum.

Frábært tækifæri til að prófa nýja dótið, eða gamla dótið. Það besta er, það þarf ekki að vera með rándýrar græjur. Einföld handstöð frá Kína er allt sem þarf til að vera með. Það þarf ekkert að nota öll böndin sem eru í boði. Oft koma bestu sögurnar frá afrekum með litlum búnaði. Ertu upptekin(n) þessa helgi? Það þarf ekkert endilega að vera „all-in“ alla helgina. Endilega hoppa inn á tíðnirnar þegar tími gefst. Þetta verður B A R A gaman. Gerum þetta með stæl, sýnum á Facebook hvað við erum virkir amatörar. Allir grobbpóstar úr leiknum kærkomnir. Pósta, pósta og pósta meira.

Eins og venjulega verður “online” leikjavefur þar sem þátttakendur skrá sig til leiks. Hægt verður að skrá sig inn í leikinn allan tímann þangað til leikurinn endar. Slóðin á leikjavefinn er ….

http://leikar.ira.is  Endilega kíkið á vefinn, lesið leiðbeiningar og skráið ykkur til leiks. Þetta er ekkert mál. Svo eru allir til í að hjálpa. Óðinn, TF2MSN hefur verið duglegur að hjálpa eins og svo oft áður.

Blásið verður til leiks kl. 18 föstudaginn 3. maí og leikurinn stendur til kl. 18 sunnudaginn 5. maí.

Hittumst í loftinu…. 23cm, 70cm, 2m, 4m, 6m, 80m og síðast en ekki síst, endurvarpar.

P.s.: Er að skoða það að bæta QO-100 við sem band. Ef einhverjir hafa áhuga á því endilega henda í komment. Komast í fílinginn sko 😉 73 de TF8KY.

.

Verðlaunagripir fyrir fyrstu 3 sætin í Páskaleikunum í fyrra (2023).
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

14 − seven =