,

CQ WW morskeppnin 2012 er um helgina

CQ World-Wide DX CW keppnin 2012 verður haldin um næstu helgi, dagana 24.-25. nóvember. Keppnin er 48 klst. keppni og hefst kl. 00:00 á laugardag og lýkur kl. 23:59 á sunnudag. CQ World-Wide er fram á öllum böndum, þ.e. 80, 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Í boði eru fjölmargir keppnisriðlar, bæði fyrir einmennings- og fleirmenningsþáttöku (sjá reglur). Keppnisskilaboð eru einföld, RST+CQ svæði (e. zone), t.d. 599-40.

Þátttaka var góð frá TF í fyrra (2011) og sendu alls 9 stöðvar inn keppnisdagbækur. Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, náði afburðaárangi (882,444 stigum) sem tryggði honum 3. sæti yfir heiminn og 2. sætið yfir Evrópu í einmenningsflokki á 14 MHz, hámarksafli.

Keppnin er stærsta alþjóðlega keppni ársins á morsi og skipta þátttakendur tugum þúsunda um allan heim. Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að taka þátt í keppninni.

Sjá keppnisreglur hér: http://www.cqww.com/rules.htm

Heimasíða keppninnar: http://www.cqww.com/

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

five × 5 =