Á opnu húsi fimmtudagskvöldið 2. nóvember ætlar Einar Kjartansson, TF3EK, að fara yfir helstu atriðin sem talin eru upp í HAREC og varða stafræna merkjavinnslu.
Í reglugerð um starfsemi radíóáhugamanna er vísað í skjal, CEPT 61-02, HAREC, varðandi prófkröfur. Þar er gert ráð fyfir að undirstöðuatriði í stafrænni merkjavinnslu sé kennd. Þetta er eðlilegt þar sem öll farsímakrefi og sjónvarpsútsendingar eru nú á stafræmu formi og flestir nýir HF-móttakar radíoamatöra byggja að miklu eða öllu leiti á stafrænni meðhöndlun merkisins.
Úr HAREC:
1.10 Digital Signal Processing (DSP)
– sampling and quantization;
– minimum sampling rate (Nyquist frequency);
– convolution (time domain / frequency domain, graphical presentation);
– anti-aliasing filtering, reconstruction filtering;
– ADC / DAC.
3.8 Digital signal processing (DSP systems)
– FIR and IIR filter topologies;
– Fourier Transformation (DFT; FFT, graphical presentation);
– Direct Digital Synthesis.

Eftir því sem best er vitað verða tvær stöðvar í gangi á Vatnsenda, TF3CW á 40 metrum og TF3JB á 80 metrum. TF2LL á 40 metrum í Borgarfirðinum og TF3T í Grímsnesi. Eflaust verða fleiri í loftinu. Ef einhverjir hafa áhuga þá er félagsstöðin í ágætu standi og tilbúin í keppnina. Áhugasamir geta haft samband við einhvern úr stjórn og fengið lánaðan lykil ásamt leiðbeiningum.







