Fyrsti viðburður á nýrri vetrardagskrá ÍRA verður haldinn í félagsaðstöðunni fimmtudaginn 11. október. Þá mætir Einar Kjartansson TF3EK á staðinn og kynnir úrslit í TF útileikunum 2018 og veitir viðurkenningar félagsins.
Síðan er hugmyndin að ræða stuttlega hvort menn vilja eitthvað breyta núverandi fyrirkomulagi eða keppnisreglum fyrir leikana 2019, en þá verða liðin 40 ár frá því fyrstu TF útileikarnir voru haldnir.
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar verða í boði félagssjóðs.

Myndin var tekin í Skeljanesi 26. júlí s.l. þegar Einar Kjartansson TF3EK kynnti TF útileikana 2018. Ljósmynd: TF3JB.

ÍRA auglýsti eftir áhuga á að taka þátt í námskeiði til amatörprófs þann 17. september. Tíu dögum síðar var fresturinn framlengdur til 2. október. Fyrirspurnir voru nokkrar, en aðeins tveir skráðu sig. Þetta kemur ekki á óvart þar sem námskeiðshald hefur verið mjög þétt undanfarin misseri.












