AUKNAR AFLHEIMILDIR Á 50 MHZ
ÍRA barst jákvætt svar frá Fjarskiptastofu (FST) 13. maí við ósk félagsins um endurnýjun aukinna heimilda á 6 metra bandi.
Fjarskiptastofa veitir íslenskum leyfishöfum auknar aflheimildir í 50-50,5 MHz tíðnisviðinu á 6 metrum frá og með 1. júní 2022. Gildistími er 4 mánuðir eða til 31. september. G-leyfishafar fá heimild til að nota allt að 1kW og N-leyfishafar allt að 100W.
Eftirfarandi skilyrði eru lögð til grundvallar: (1) Hámarks bandbreidd sendinga er 18 kHz; (2) Engin skilyrði hvað varðar mótun; (3) Heimild er með þeim fyrirvara að komi til truflana á annarri fjarskiptastarfsemi verður að hætta sendingum strax; (4) Æskilegt er að sendingar fari fram utan byggðar; og (5) Ákvörðun um framlengingu verður tekin síðar.
Leyfishafar þurfa að sækja sérstaklega um heimild hjá FST á sama hátt og verið hefur t.d. um 70 MHz tíðnisviðið. Póstfang: hrh(hjá)fjarskiptastofa.is Tilgreina skal að sótt sé um aukið afl á 50 MHz.
Stjórn ÍRA fagnar þessari heimild.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!