Þrír mættu í loftnetavinnu í Skeljanesið í morgun
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/30082014-1.jpg)
TF3TNT, TF3HP og TF3JA sem tók myndina.
Formaðurinn var mættur snemma og heitt kaffi tilbúið á könnunni um 9:30. Benni klifraði í mastrið og sá að stýrikaballinn var í sundur og festing mastursins við skorsteininn brotin. Áður var búið að meta rótorinn og ákveða að opna hann. Ákveðið var að stefna að viðgerð á fimmtudeginum í næstu viku en skv spánni á að geta verið ágætis veður þann dag utandyra. Ýmislegt vantaði til að hægt væri að fella turninn í dag og stendur upp úr að fleiri hendur þarf við það verk og einnig að slökunarbúnaður sem félagið á fannst ekki á staðnum.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/30082014-2.jpg)
Ef vel er gáð má sjá slitna kapla á myndinni.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/30082014-3.jpg)
Fastursfóturinn er ílla ryðgaður.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!