,

NÁMSKEIÐ ÍRA TIL AMATÖRPRÓFS.

Námskeið ÍRA til undirbúnings prófs til amatörleyfis verður haldið 15. september til 28. október í Háskólanum í Reykjavík. Um er að ræða 6 vikna námskeið sem lýkur með prófi Fjarskiptastofu til amatörleyfis, laugardaginn 1. nóvember.

Námskeiðið er öllum opið og eru ekki gerðar kröfur um sérstaka menntun eða undirbúning. Kennt verður í HR á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum kl. 18:30-21:30. Skipulag námskeiðs má sjá hér: http://www.ira.is/wp-content/uploads/2025/08/2025.Skipulag-namskeids-IRA-til-amatorprofs.pdf

Hægt er að skrá þátttöku hér: https://www.ira.is/skraning-a-namskeid/  Námskeiðsgjald er 24.500 krónur. Greiðsla þarf að hafa borist gjaldkera í síðasta lagi 10. september n.k. Reikningur ÍRA: 0116-26-7783 / kennitala: 610174-2809 / Ath. að skrá kennitölu greiðanda í athugasemdir. Bent á fræðslustyrki stéttarfélaga og Vinnumálastofnunar.

Fyrirspurnir eru velkomnar á póstfangið: ira@ira.is  Einnig má hafa samband við Jónas Bjarnason, TF3JB umsjónarmann námskeiðsins í síma 898-0559 eða á póstfang: jonas.bjarnason.hag@gmail.com

Stjórn ÍRA.

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

2 × 2 =