,

EMC á fimmtudagskvöld í ÍRA

Friðrik Alexandersson var með mjög áhugaverða og lærdómsríka umfjöllun um EMC, flökkustrauma og jarðbindingu í Skeljanesi á fimmtudagskvöld. Takk fyrir okkur Friðrik.

Friðrik sýndi okkur hvers vegna betra væri að vera með fimm víra veitukerfi, þrír fasar, núll og jörð í stað fjögurra eins og víðast er á Íslandi eða með öðrum orðum að vera með sérstakan jarðleiðara. Hann sagði okkur frá því að í helstu löndum yfir í Evrópu væru kerfin fimm víra en á Íslandi er fimm víra kerfi einungis í tveimur hverfum, Garðahverfi og einu hverfi á Akureyri. Friðrik sagði okkur frá því að steinsteypa væri góður leiðari sem kom flestum ef ekki öllum áheyrendum á óvart og sagði að ein besta aðferð við að búa til gott jarðskaut í steinsteypubyggingum væri að bora eða brjóta sig inn að járnagrind og tengja við grindina. Næstum tilgangslaust væri að tengja við ofn eða kaldavatnslagnir vegna einangrunar frá jörð og nýju plaströranna. Í timburhúsum og þar sem ekki er hægt að komast í járnagrindina væri ekkert annað ráð en að búa til utandyra jarðskaut með því að reka allt að þriggja metra langan tein niður í jarðveginn, einn eða fleiri. Því fleiri sem jarðteinarnir eru þeim mun betri jörð. Mikilvægt væri einning að nota vel sveran koparvír til að tengja jörðina við húskerfið og uppí/inní sjakkinn.

Hvað er þetta drengir þið vitð vel hvert rafeindirnar vilja fara!

Já hvernig ætli jörðin sé hjá mér?

Jú jú Benni, láttu ekki svona…en þær koma alltaf hina leiðina heim aftur…

í umræðum í lokin kom upp tillaga um að heimsækja sem flesta amatöra og skoða og mæla jörðina hjá þeim en heldur dró úr mönnum þegar Friðrik benti á að til að fá viðmiðun yrði annar púnkturinn í mælingunni helst að vera vel utan við stór-Reykjavíkursvæðið….

Hvernig er annars jörðin hjá þér?

 

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

twenty − 14 =