,

YFIRLIT YFIR SÉRHEIMILDIR.

Til glöggvunar fylgir stutt samantekt um sérheimildir sem íslenskum leyfishöfum standa til boða að sækja um til Fjarskiptastofu. Tvær sérheimildir stofnunarinnar hafa verið endurnýjaðar nýlega sem eru til eins árs, 2026 (sjá 1+2). Aðrar tvær sérheimildir eru frá fyrra ári (2025) og gilda til loka þessa árs, 2026 (sjá 3+4).

(1) Sérheimild fyrir 160 metra (frá 3.2.2026) – sem veitir heimild til notkunar tíðnisviðsins 1850-1900 kHz á auknu afli vegna þátttöku í tilgreindum alþjóðlegum keppnum á almanaksárinu 2026. G-leyfishafar hafa heimild til að nota allt að 1 kW í tíðnisviðinu á meðan keppnir standa yfir.

(2) Sérheimild fyrir 6 metra (frá 13.2.2026) – sem veitir heimild til notkunar tíðnisviðsins 50.000 til 50.500 MHz á tímabilinu apríl til september 2026. G-leyfishafar hafa heimild til að nota allt að 1 kW og N-leyfishafar allt að 100W.

Ath. að leyfishafar sem ekki sækja um heimildina á 6 metrum, geta eftir sem áður notað tíðnisviðið 50.000-52.000 MHz á lægra afli; þ.e. G-leyfishafar á allt að 100 W og N-leyfishafar á allt að 50 W.

Aðrar sérheimildir sem gilda á árinu 2026 og voru veittar til tveggja ára í fyrra (2025):

(3) Sérheimild fyrir 4 metra (frá 2.1.2025) – sem veitir heimild til notkunar tíðnisviðsins 70.000-70.250 MHz út árið 2026. G-leyfishafar og N-leyfishafar hafa sömu aflheimildir; allt að 100 W.

(4) Sérheimild fyrir 60 metra (frá 3.2.2025) – sem veitir heimild til notkunar tíðnisviðsins 5.260-5.410 MHz út árið 2026. G-leyfishafar hafa heimild til að nota allt að 1 kW og N-leyfishafar allt að 100 W.

Ath. að leyfishafar sem ekki sækja um heimildina á 60 metrum, geta eftir sem áður notað tíðnisviðið 5351.5–5366.5 kHz. G-leyfishafar og N-leyfishafar hafa sömu aflheimildir, allt að 15W (EIRP).

Þeir leyfishafar sem sem ætla sér að starfa á umræddum tíðnum skulu sækja um það sérstaklega til FST (bjarni@fjarskiptastofa.is og fst@fst.is).

Stjórn ÍRA.

Tafla yfir tilgreindar alþjóðlegar keppnir.
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

2 × two =