,

VEL HEPPNAÐ ERINDI TF3T.

Opið var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 19. febrúar. Á dagskrá var 2. erindið á fræðsludagskrá félagsins vorið 2026 sem var í umsjá Benedikts Sveinssonar, TF3T og nefndist: „Sólgos og skilyrði á HF“.

Benedikt, sem hefur verið leyfishafi í yfir 30 ár hefur að baki ótrúlega fjölskrúðugan feril sem slíkur.  Fyrir mörgum er það fjarskiptastöð þeirra bræðra (hans og Guðmundar, TF3SG) skammt frá Eyrarbakka sem heldur merki hans á lofti. Eða EME samböndin sem hann hafði úr skotti bíls síns í Skerjafirði. En, eins og þessi fyrirlestur bar með sér, þá heillast Benedikt af því sem er erfitt og ófyrirsjáanlegt.  EME sambönd eru það ekki, þau má skipuleggja með fyrirvara, og þegar stundin er runnin upp þá fæst endurvarp frá tunglinu og það er einhver á hinum endanum.

Það sem Benedikt þykir heillandi er allt þetta ófyrirséða, öll þessi óáran sem hoppar til og frá með litlum fyrirvara. Hér er átt við áhrif vegna sólgosa, og tilheyrandi norðurljósa, og truflana í háloftunum sem stjórna því hvert er hægt að ná sambandi hverju sinni og á hvaða bandi. F-lögin koma þar við sögu, og styrkur sólgosa, og K-stuðullinn, og hvar á sólgosahringum við erum staddir.

Þá voru nefndir töfrar grálínunnar sem gera möguleg talsambönd á litlu afli langar leiðir, svo fremi sem grálínan liggi um báða staðina. Þannig verður um Bouvet-eyjuna í Suðurhöfum, þangað sem Guðmundur bróðir stefnir í þessum töluðu orðum. Svo ótrúlegt sem það er þá liggur grálínan um ísland og Bouvet-eyju á sama tíma á þessum tíma árs, og því er vonast til að allt gangi upp og þeir bræður fái samband á litlu afli og á tali sín á milli.

Það eru reyndar margir aðrir stuðlar sem koma við sögu sem gera málið flóknara og því er öllum bent að horfa á myndbandið þar sem Benedikt skýrir mál sitt svo vel og kynnir að auki fjölda hugbúnaðarkerfa sem sem birta þetta flökkt allt saman svo ágætlega. Það var gerður góður rómur að erindi Benedikts og hann fékk fjölda fyrirspurna. Alls voru um 20 manns mættir sem höfðu mikla ánægju af erindi Benedikts.

Sérstakar þakkir til Benedikts Sveinssonar, TF3T fyrir fróðlegt, áhugavert og vel flutt erindi. Þakkir einnig til Georgs Kulp, TF3GZ fyrir ljósmyndir og Sveins Goða Sveinssonar, TF3ID fyrir kaffi og meðlæti.

Þess má geta að erindið var tekið upp, sbr. eftirfarandi vefslóð: https://youtu.be/YRVN78hT6ek

Stjórn ÍRA.

Andrés Þórarinsson TF1AM kynnir fyrirlesara.
Benedikt hóf erindið stundvíslega kl. 20:30.
Mynd úr sal.
Eiður Kristinn Magnússon TF1EM, Gunnar B. Guðlaugsson TF5NN og Þór Eysteinsson TF3TE.
Fjör við stóra fundarborðið.
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

14 − 13 =