,

TF3WPR QRV Á WSPRnet.

Fjarskiptastofa hefur úthlutað Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF1A kallmerkinu TF3WPR. Heimildin nær til rekstrar radíóvita á QRG 14,0971 MHz, með 23 dBm útgeisluðu afli. Vitinn er hluti af WSPRnet upplýsingakerfi radíóamatöra fyrir stafrænar sendingar til að kortleggja skilyrði til fjarskipta um heiminn. Staðsetning sendis er við Bústaðavegi í Reykjavík. Ábyrgðamaður og eigandi er Ari Jóhannesson TF1A.

WSPRnet upplýsingakerfið er rekið af radíóamatörum sem nota „MEPT_ JT“ forrit K1JT fyrir stafrænar sendingar til að kortleggja skilyrði til fjarskipta um heiminn. Kerfið notar merki frá radíóvitum radíóamatöra sem senda út allan sólarhringinn, allt árið um kring á QRP/QRPp afli á tilgreindum tíðnisviðum á 80, 40, 20, 15 og 10 met rum.

Þótt WSPRnet sé tiltölulega nýlegt verkefni (stofnað 17. maí 2021) er fyrsti áfanginn í þróun þess langt kominn. TF3D var gerist þátttakandi í WSPRnet kerfinu 16. ágúst 2022. TF4M í Vesturbyggð gerðist þátttakandi nokkru fyrr. WSPRnet kerfið veitir íslenskum sem og erlendum leyfishöfum sem áhuga hafa á útbreiðslu radíóbylgna mikilvægar upplýsingar sem nýtast í fjarskiptum radíóamatöra um allan heim.

Þakkir til Ara Þórs Jóhannessonar, TF1A fyrir uppsetningu radíóvitans.

Stjórn ÍRA.

http://www.youtube.com/watch?v=FVNH37vH80Y
https://www.wsprnet.org/drupal/wsprnet/map
https://www.wsprnet.org/olddb/drupal/wsprnet/map

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

19 + four =