,

SÉRHEIMILD Á 160 METRUM ÁRIÐ 2026.

ÍRA barst jákvætt svar frá Fjarskiptastofu (FST) í dag, 3. febrúar við ósk félagsins um endurnýjun heimildar til notkunar tíðnisviðsins 1850-1900 kHz á auknu afli vegna þátttöku í tilgreindum alþjóðlegum keppnum á almanaksárinu 2026. Sjá meðfylgjandi töflu neðar. G-leyfishafar hafa heimild til að nota fullt afl, eða allt að 1kW á tíðnisviðnu 1850-1900 kHz.

Heimildin er veitt með fullu samþykki Vaktstöðvar siglinga sem hefur forgang til notkunar tíðna á þessu tíðnibili. Um þessa notkun gilda að öðru leyti sömu kröfur og fyrir tíðnisviðið 1810-1850 kHz í reglugerð, en aukin skilyrði Fjarskiptastofu eru eftirfarandi: Aflheimild er einvörðungu veitt þann tíma sem tilgreindar alþjóðlegar keppnir standa yfir.

G-leyfishafar sem ætla að nýta sér þessa undanþágu skulu tilkynna það til fst@fst.is eða bjarni@fjarskiptastofa.is

Ath. að það nægir að senda eina umsókn sem þar með gildir fyrir allar 14 keppnirnar á árinu 2026.

Stjórn ÍRA.

Mynd úr fjarskiptaherbergi TF3IRA í félagsaðstöðunni í Skeljanesi í Reykjavík. Ljósmynd: TF3JB.

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

two × 4 =