ÓÐINN ÞÓR HALLGRÍMSSON, TF2MSN ER LÁTINN

Óðinn Þór Hallgrímsson, TF2MSN hefur haft sitt síðasta QSO; merki hans er hljóðnað.
Samkvæmt upplýsingum frá ættingjum lést hann 19. ágúst á hjartadeild Landspítala í Reykjavík.
Óðinn var á 62. aldursári og var handhafi leyfisbréfs radíóamatöra nr. 318.
Um leið og við minnumst Óðins Þórs með þökkum og virðingu færum við fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd stjórnar ÍRA,
Jónas Bjarnason, TF3JB
Formaður
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!