Niðurstöður úr CQ WW DX SSB keppninni 2010

Sigurður R. Jakobsson, TF3CW.
Í ágústhefti CQ tímaritsins 2011 eru birtar niðurstöður úr CQ World-Wide SSB CW keppninni sem fram fór helgina 30.-31. október 2010. Ágæt þátttaka var frá TF, en alls sendu sjö stöðvar inn keppnisdagbækur. Þessar stöðvar deilast á alls sex keppnisflokka (sbr. upplýsingar í meðfylgjandi töflu).
Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, var með afgerandi bestan árangur á meðal TF stöðva í keppninni, með nær 1 milljón stiga og yfir 3 þúsund QSO, en hann keppti á 14 MHz. Yngvi Harðarson, TF3Y, varð í efsta sæti í keppnisflokknum “öll bönd hámarks útgangsafl” eða með 287 þúsund stig og 905 QSO. Í öðru sæti varð Andrés Þórarinsson, TF3AM, með nær 269 þúsund stig (og í raun með fleiri QSO og margfaldara heldur en Yngvi en óhagstæðara hlutfall QSO stiga). Ársæll Óskarsson, TF3AO, var með 3. bestan árangur á meðal TF stöðva, en hann hafði 363 QSO á 21 MHz.
| 
 Keppnisflokkur  | 
 Kallmerki  | 
 Árangur  | 
 QSO  | 
 CQ svæði  | 
 DXCC einingar  | 
|---|---|---|---|---|---|
| Öll bönd – einmenningsflokkur, hámarks útgangsafl | TF3Y* | 
 287,272  | 
 905  | 
 45  | 
 104  | 
| Öll bönd – einmenningsflokkur, hámarks útgangsafl | TF3AM | 
 268,640  | 
 1057  | 
 47  | 
 183  | 
| Öll bönd – einmenningsflokkur, lágafl (100W) | TF8GX* | 
 45,510  | 
 219  | 
 31 
 | 
 80  | 
| Öll bönd – einmenningsflokkur, hámarks útgangsafl, aðstoð | TF3IG* | 
 7,840  | 
 111  | 
 21  | 
 59  | 
| 14 MHz – einmenningsflokkur, hámarks útgangsafl | TF3CW* | 996,853 | 
 3028  | 
 34  | 
 109  | 
| 21 MHz – einmenningsflokkur, hámarks útgangsafl, aðstoð | TF3AO* | 
 17,689  | 
 363  | 
 9  | 
 40  | 
| 1.8 MHz – einmenningsflokkur, hámarks útgangsafl | TF3SG* | 
 19,527  | 
 206  | 
 15  | 
 54  | 
*Bestur árangur í viðkomandi keppnisflokki (innan TF) og handhafi viðurkenningarskjals.
Hamingjuóskir til þátttakenda með árangurinn.

Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!