,

AÐALFUNDUR ÍRA 2026, SVIPMYNDIR

Aðalfundur ÍRA árið 2026 var haldinn 15. febrúar 2026 í fundarsal safnaðarheimilis Neskirkju við Hagatorg í Reykjavík. Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt félagslögum.

Embættismenn fundarins voru kjörnir þeir Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS, fundarstjóri og Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA fundarritari.

Undir liðnum „Önnur mál“ var lýst kjöri Vilhjálms Í. Sigurjónssonar, TF3VS sem heiðursfélaga ÍRA. Alls sóttu 32 félagar fundinn.

Meðfylgjandi eru nokkrar ljósmyndir frá fundinum. Sérstakar þakkir til Jóns Svavarssonar, TF3JON ljósmyndara félagsins. 

Stjórn ÍRA.

.

Aðalfundur ÍRA 2026 var haldinn í safnaðarheimili Neskirkju í Reykjavík 15. febrúar. Fundarstjóri var kjörinn Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS og sést hann hér í ræðupúlti.
Jónas Bjarnason TF3JB, formaður ÍRA flutti framlagða skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2025/26.
Jón Björnsson TF3PW gjaldkeri ÍRA flutti framlagðan ársreikning félagssjóðs fyrir rekstrarárið 2025.
Mynd úr fundarsal.
Sveinn Goði Sveinsson TF3ID, Guðjón Már Gíslason TF3GMG, Finnur Tómasson TF3FT, Einar Kjartansson TF3EK og Hans Konrad Kristjánsson TF3FG. Aftast til vinstri: Halldór Karl Högnason TF3DK.
Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A, Erling Guðnason TF3E, Gísli Gissur Ófeigsson TF3G og Þór Eysteinsson TF3TE.
Aftari röð: Rúnar Þór Valdimarsson TF3RJ og Halldór Karl Högnason TF3DK. Aftasta röð: Hinrik Vilhjálmsson TF3VH, Anna Henriksdóttir TF3VB og Bernhard M. Svavarsson TF3BS.
Kristinn Andersen TF3KX formaður Prófnefndar ÍRA gaf skýrslu um starfsemi nefndarinnar á árinu. Hann ræddi einnig störf í vinnuhópi IARU Svæðis-1 um uppfærslu HAREC námsefnis þar sem hann er fulltrúi ÍRA ásamt TF3KB.
Kristján Benediktsson TF3KB alþjóðafulltrúi ÍRA gaf skýrslu um störf sín. Hann ræddi m.a. fund IARU sem haldinn var í París í fyrra (2025) þar sem hann var fulltrúi ÍRA á 100 ára afmæli IARU. Hann fjallaði ennfremur um störf þeirra TF3KX í vinnuhópi IARU Svæðis-1 um uppfærslu HAREC námsefnisins.
Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA ritstjóri CQ TF og formaður í EMC nefndar ÍRA fjallaði annarsvegar um störf ritnefndar CQ TF sem gaf út 4 tölublöð á starfsárinu og hinsvegar um EMC málefni.
Andrés Þórarinsson TF1AM varaformaður ÍRA, fjallaði um störf sín að baki þess að semja fræðsludagskrár félagsins sem eru tvær á hverju starfsári, vor og haust. Hann þakkaði sérstaklega þeim félagsmönnum sem flutt hafa erindi og ennfremur góða aðsókn almennra félagmanna að þeim viðburðum í Skeljanesi.
Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS var lýstur heiðursfélagi ÍRA á aðalfundi félagsins 2026. Á myndinni tekur hann við innrömmuðu heiðursskjali og blómavendi úr höndum Jónasar Bjarnasonar TF3JB formanns ÍRA.
Nýkjörnir stjórnarmenn ÍRA starfsárið 2026/27. Jón Björnsson TF3PW, Njáll H. Hilmarsson TF3NH, Georg Kulp TF3GZ, Heimir Konráðsson TF1EIN, Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA, Andrés Þórarinsson TF1AM og Jónas Bjarnason TF3JB.
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

2 × 1 =