OPIÐ HÚS VAR Í SKELJANESI.
Opið hús var í Skeljanesi fimmtudaginn 26. febrúar. Þetta var skemmtilegt kvöld. Menn hressir, góður andi í húsinu og mæting alls 27 manns að meðtöldum 1 gesti.
Mikið var rætt um stöðvar, m.a. Elecraft K4 línuna, FlexRadio 8600 og nýju FlexRadio Aurora 500 línuna sem notar m.a. CESSB (RF Compression). Einnig rætt um Icom 7300, en af þeirri tegund og gerð eru komin yfir 200 tæki til landsins – allt frá því sú stöð kom fyrst á markað í apríl 2016. Nú er komin ný uppfærsla hennar, IC-7300MK2 sem þegar eru komnar a.m.k. 9 stöðvar af til landsins. Einnig rætt um Yaesu FTdx10 sem hefur fengið umsagnir um að vera erfið í notkun m.a. vegna hönnunar á stjórnborði, staðsetningar á tökkum og valmyndakerfis (e. menus). Einar Kjartansson, TF3EK kom með TX-500 Discovery stöðina frá LAB599 og sýndi okkur á staðnum. Ótrúlega skemmtileg stöð sem býður upp á mikla möguleika og sem hann notar í SOTA. https://www.hamradio.com/images_managed/misc/H0-017255_Lab599-TX500-User-Manual-EN-v03-2021.pdf
Benedikt Sveinsson, TF3T spurði um aðgang félagsmanna að búnaði félagsstöðvarinnar með það að markmiði að geta náð sambandi við Bouvet DX leiðangurinn. Fram kom, að almenna reglan væri sú að nota eingöngu kallmerki félagsins, en þegar um væri að ræða svo sjaldgæfan DX viðburð eins og Bouvet væri sjálfsagt að gera undirtekningu, þ.e. að menn gætu notað eigin kallmeki í því skyni að ná sambandi við 3YØK.
Sigurður Harðarson, TF3WS mætti í Skeljanes með fullan bíl af margskonar radíódóti sem hann og þrír hjálparmenn báru inn í ganginn niðri. Þakkir góðar til Sigga, TF3WS fyrir að hugsa vel til félagsins. Alls mættu 27 (að meðtöldum 1 gesti) þetta ágæta vetrarkvöld í snjófjúki og -4°C frosti í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
.







Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!